Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Side 16

Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Side 16
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (2) 201116 raddir Ungs fólks Um stærðfræðinám niðurstöður og ræða þær. Einnig voru kynntar fyrir þeim ólíkar niðurstöður um kynjamun á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu og þeir einnig beðnir um að ígrunda þær niðurstöður. Þriðji hluti viðtalsins var síðan um þær kenningar sem settar hafa verið fram til skýringar á þessum kynjamun á landsbyggðinni og höfuðborgar- svæðinu. Kynntar voru kenningar um hin svokölluðu „jokkmokk“-áhrif 2 (Ragnar F. Ólafsson, Almar M. Halldórsson og Júlíus K. Björnsson, 2006) og hlutverk menntunar í því að einstaklingur geti öðlast fjárhagslegt sjálfstæði. Viðtölin stóðu yfir í 60–90 mínútur. Viðtölin voru skrifuð upp til greiningar þar sem leitað var eftir þemum sem voru sameiginleg fyrir hópana. (Sjá ítarlegri lýsingu gagna í Ólöf Björg Steinþórsdóttir og Sriraman, 2008.) Endurgreining gagna Endurgreining gagna fór fram í ársbyrjun 2009. Við endurgreininguna var notuð þemagreining (Braun og Clarke, 2006) til að koma auga á, greina og segja frá mynstrum sem fram koma í gögnunum. Í þemagreiningunni var notast við greinandi aðleiðslu (Patton, 2002). Í leit sinni að mynstrum og til að svara rannsóknarspurningunni Hvaða sjónarmið og hugmyndir hefur ungt fólk um stærðfræði og stærðfræðinám? leituðu höfundar að þemum sem rúmað gætu sem flest þeirra sjónarmiða sem fram koma í gögnunum. Þannig var áhersla lögð á að varpa ljósi á sem flestar hugmyndir viðmælenda og flokka þær en ekki sérstaklega hugað að fjölda tilvika (Braun og Clarke, 2006). Gagnagreiningin var handgerð. Til að byrja með var hvert viðtal lesið með rann- sóknarspurninguna í huga. Fyrst var kannað hvaða sjónarmið kæmu fram í hverju viðtali og lýsandi kóði gefinn. Textinn var þá klipptur og flokkaður samkvæmt kóð- unum. Sömu aðferð var beitt við hvert viðtal. Að því loknu voru sjónarmið sem fram komu flokkuð saman og þeim gefin ný og lýsandi heiti sem síðan urðu meginþemu. Eftir fyrstu yfirferð komu fram tvö meginþemu úr inntaki viðtalanna, þ.e. (1) hefð- bundið stærðfræðinám og (2) kynjamyndir. önnur yfirferð á gögnum var gerð til að leita eftir undirþemum innan hvors meginþema. Svipuðum aðferðum var beitt og í fyrstu umferð. Gögn hvors meginþema voru lesin og inntak textans greint frekar. Samhliða voru þemun mátuð við fyrri rannsóknir. Að lokum var skrifuð frásögn sem birtist í næsta kafla. Strauss og Corbin (1998) telja að samanburður dragi fram eiginleika gagnanna sem síðan megi máta við fræðilegan bakgrunn rannsóknarinnar. Þannig voru þemun sem birtust mátuð við kenningarnar sem gengið var út frá í fræði- legum bakgrunni rannsóknarinnar. niðurstöður Niðurstöður eru settar fram í tveimur meginþemum, þ.e. hefðbundið stærðfræðinám og kynjamyndir. Þessar niðurstöður gefa mynd af þeim hugmyndum um stærð- fræði og stærðfræðinám sem komu fram hjá viðmælendum okkar innan hvers þema. Meginþemun voru greind í sjö undirþemu (sjá mynd). Undirþemum voru gefin heiti sem tekin voru beint úr viðtölunum. Þemað hefðbundið stærðfræðinám var greint í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.