Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Page 20
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (2) 201120
raddir Ungs fólks Um stærðfræðinám
Það er mjög mikilvægt að skilja efnið því annars stoppar maður alltaf ef erfið dæmi
koma. Einnig ef maður skilur efnið er ekkert mál að muna aðferðina.
Tilgangur námsins er ekki bara tengdur árangri heldur er lögð áhersla á mikilvægi
þess að sjá tengsl við daglegt líf og notkun þeirrar stærðfræði sem læra á. Ekki skiptir
máli að nemendur sjái fram á að þeir muni nota stærðfræði beint í daglegu lífi eða
starfi heldur að þeir geti fengið mynd af því hvernig inntakið er notað:
Og eins og í menntaskóla fattaði maður oft ekki tilganginn með sumu sem maður
var að gera. Líka eitthvað gæti verið að í kennslunni, að maður vissi ekki alveg til
hvers maður þyrfti að nota þetta. Bara látinn reikna eitthvað eins og vektor eða vigra
og maður vissi ekkert hvað maður var að gera. Ekkert sett í samhengi. Ekki endilega
stærðfræðinni að kenna heldur hvernig farið var að því í skólanum. Myndi hjálpa
mjög mikið ef tengt væri við daglegt líf. En það er kannski bara, veit ekki, mér finnst
stærðfræðin hafa verið það eina sem ég hef þurft að leggja geðveikt mikið á mig til
þess, þú veist, til að læra og það hefur verið langerfiðast fyrir mig, en þá er það líka
skemmtilegra þegar maður skilur það.
Kennsluaðferðir og framsetning kennarans skipta miklu máli. Samræður kennara við
hópinn og einstaka nemendur hafa afgerandi áhrif að mati viðmælenda. Þeir gera sér
grein fyrir að þeir þurfa sjálfir að skilja samhengi og röð aðgerða. Þeir telja ýmist að
þeir skilji fyrst út frá útskýringum kennara eða að skilningur komi við að endurtaka
aðferðir sem kennari hefur útskýrt.
„Þegar ég skil fer ég í sæluvímu“
Markmið stærðfræðináms telja viðmælendur vera að ná skilningi og er velgengni í
náminu metin út frá því hve vel gengur að skilja. Margir þeirra leggja áherslu á tilfinn-
ingalega þætti sem tengjast því að skilja eða skilja ekki:
Alltaf þegar maður skilur eitthvað sem maður átti í erfiðleikum með fer um mann
smá sæluvíma, maður verður svo stoltur af því að geta reiknað dæmi vandræðalaust.
Þá veit maður að afgangurinn verður léttari.
Á sama hátt verða nemendur vondaufir ef illa gengur að skilja og finnst þá mikilvægt
að hafa kennara sem getur hvatt þá áfram, gefið vísbendingar og útskýrt. Mat á eigin
getu er háð því hvernig gengur að leysa dæmi og verkefni. Viðfangsefnin eiga að fela
í sér hæfilega ögrun því það að sigrast á erfiðleikum vekur vellíðan, meðan vonleysi
kemur fram ef illa gengur í glímunni við dæmin:
Þegar ég skil ekki eitthvað verður maður oft vonlaus og finnst maður ekki kunna neitt
í þessu. En þegar ég skil efnið sem ég er að glíma við finnst mér það bara skemmtilegt
og gefandi.
Viðmælendur nefna oft atriði sem snerta líðan þeirra, pirring ef þeir skilja ekki eitt-
hvað og gleði þegar skilningur næst loks á einhverju eftir langa glímu. Þeir vilja að
námið sé hæfilega ögrandi og krefjist hugsunar af þeim: