Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Page 73

Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Page 73
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (2) 2011 73 Jóhanna einarsdóttir sem minna mega sín verði ýtt enn lengra út á jaðarinn (Vandenbroeck og Bie, 2006; Warming, 2005); og að áhersla á að hlusta á raddir barna og auka þátttöku þeirra geti orðið til þess að ýta undir rétt einstaklingsins ofar rétti hópsins. Jafnframt hefur verið bent á að börn hafa margar raddir sem eru ekki endilega samhljóma (Bühler- Niederberger og Van Krieken, 2008). Aðrir hafa velt því upp hvort áhersla á sjónarmið barna geti gengið of langt, þ.e. ef litið er á þeirra sjónarmið sem þau mikilvægustu, æðri sjónarmiðum annarra, svo sem kennara og foreldra (MacNaughton, Hughes og Smith, 2007; Mannion og I'Anson, 2004). Einnig hefur verið gagnrýnt að oft hafi verið litið fram hjá því félagslega og menn- ingarlega samhengi sem börn eru sprottin úr og viðhorf þeirra mótast af (Komulainen, 2007). Mannion (2007) telur t.d. nauðsynlegt að endurskoða hugmyndir um þátttöku barna og beina í staðinn sjónum að samskiptum barna og fullorðinna. Mikilvægt sé að hlusta á það sem börn hafa að segja en um leið að átta sig á að líf þeirra og við- horf eru ekki einangruð heldur mótast þau í samskipum við lykilpersónur í lífi þeirra og að samskipti barna og fullorðinna ráði miklu um það hvaða raddir heyrast, hvað börnin geta talað um og hvaða áhrif þau hafa. Í sama streng taka Redding-Jones, Bae og Winger (2008) og vekja athygli á að þegar hlustað er á sjónarmið barna þarf að hafa í huga samskipti og valdaskipan fullorðinna og barna. rannsóknir á viðhorfum barna til lEikskólans Margvíslegar aðferðir hafa verið notaðar til að fá fram sjónarmið barna, t.d. viðtöl, teikningar, ljósmyndir, hlutverkaleikur og athuganir (Dockett, 2008; Jóhanna Einars- dóttir, 2007b). Rannsóknir með íslenskum leikskólabörnum sýna að góð samskipti við önnur börn og leikur úti og inni eru börnum mikilvægust. Þau vilja geta valið um viðfangsefni og vilja forðast verkefni sem krefjast þess að þau sitji kyrr og hafi hljóð (Jóhanna Einarsdóttir, 2006c, 2008c). Þessar niðurstöður eru í samræmi við niður- stöður Tauriainen (2000) í finnskum leikskólum sem sýna að börn telja mikilvægast að geta leikið sér án afskipta fullorðinna. Mörg börn í þeirri rannsókn nefndu einnig að þeim líkaði illa að sitja lengi og vildu fá að hreyfa sig. Börnin í rannsókn Sheridan og Pramling Samuelsson (2001) í Svíþjóð nefndu einnig að það sem þau vildu helst gera í leikskólanum væri að leika við önnur börn. Þrátt fyrir ólíkar áherslur í leikskólastarfi í hinum norræna og hinum enskumælandi heimi sýna rannsóknir með börnum þar einnig sambærilegar niðurstöður. Vinátta við önnur börn og að vera viðurkenndur í barnahópnum er börnum mikilvægt. Leikur er undantekningarlaust vinsælasta við- fangsefnið og frelsi til að velja sér verkefni er börnum mikilvægt (Clark og Moss, 2001; Evans og Fuller, 1998; Page, 2008; Stephen og Brown, 2004; Wiltz og Klein, 2001). Fremur fáar rannsóknir eru til þar sem hefur verið leitað eftir sjónarmiðum barna á leikskólanum eftir að þau hafa lokið leikskóladvölinni. Nefna má að Strander (1997) tók viðtöl við 16 og 17 ára unglinga og bað þá að rifja upp reynsluna úr leikskólanum. Ung- lingarnir mundu best atburði sem tengdust jákvæðum eða neikvæðum tilfinningum. Leikur, vinir og samskipti voru mikilvægust. Einnig minntust þeir starfsfólks sem var skemmtilegt og bar virðingu fyrir börnunum og óskum þeirra. Torstenson-Ed (2007)
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.