Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Side 78

Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Side 78
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (2) 201178 horft Um öxl Karen: Þegar ég hitti Helgu í fyrsta skipti, þegar við vorum orðnar vinkonur, þá leið mér alveg rosalega vel. Bryndís: Mér fannst skemmtilegt að leika við Alex og leika við Kristin í dýnunum og líka með einingakubbana. Haraldur: Mér fannst gaman að leika við Rúnar og Bjarna, Einar og Birgir. Fremur fátítt var að börnin ræddu sérstaklega um starfsfólkið í leikskólanum. Aðeins ein stúlka talaði mikið um einn leikskólakennara. Það var hins vegar ljóst að starfs- fólkið hafði mikilvægu hlutverki að gegna í lífi margra barnanna í leikskólanum, einkum ef þau höfðu þurft á hjálp eða stuðningi að halda. Nokkur börn nefndu að þau hefðu verið örugg í leikskólanum þegar kennarinn var nálægur. Hér ræða tvær stúlkur um það hvenær þær voru öruggar í leikskólanum. R.: Hvenær voruð þið örugg í leikskólanum? Elsa: Í kjöltu kennarans. Anna: Við hliðina á honum – kennaranum. Leikskólakennararnir ræddu um þetta og sögðu að það kæmi þeim ekki á óvart að önnur börn væru mikilvægari en starfsfólkið því að síðasta árið í leikskólanum væru börnin orðin örugg með sig, þar sem þau væru búin að vera í leikskólanum í nokkur ár „þannig að þau þurfa minna á manni að halda svona síðasta árið“. Þetta er í sam- ræmi við það sem ein stúlka sagði, að hún hefði verið ánægðust þegar hún hefði verið í elsta hópnum „því þá var ég búin að kynnast öllum“. Hlutir og atburðir sem voru öðruvísi og tilheyrðu ekki daglegu skipulagi voru oft nefndir sem minnisstæðir og ánægjulegir. Til dæmis öskudagurinn, vettvangsferðir, þegar lögreglan kom í heimsókn, þegar börnin fengu að fara á hestbak, þegar for- eldrarnir komu og sungu fyrir þau, sumarhátíð, útskriftarhátíð og þegar þau léku Víkingaleikritið. Þegar börnin ræddu um það leikefni eða leiksvæði sem þeim hefði líkað best í leikskólanum voru svör þeirra nokkuð fjölbreytt. Flest börnin í báðum leikskólunum nefndu leik úti við. Þau nefndu bæði „leika úti“, ákveðin leiktæki eins og rólur og kastala eða leiki eins og fótbolta eða þau nefndu ákveðna vini sem þau léku við úti. Kristján og Jónas sögðu báðir að þeim hefði fundist skemmtilegast úti. Þegar þeir voru spurðir nánar út í það sagði Jónas: „Ég fór alltaf í fótbolta við Óla“ og Kristján sagði að það hefði verið skemmtilegt úti: „Af því að þar var doldið leiktækjaval. Og við gátum farið bak við hól og þannig.“ Leikskólakennurunum fannst áhugavert að heyra að börnin vildu helst vera þar sem þau voru úr augsýn fullorðinna svo sem á bak við hæðina. Myndirnar, sem börnin teiknuðu, og frásagnir þeirra um myndirnar lýsa þessum sjónarmiðum og sýna margar þeirra börn að leik úti við. Af 55 myndum af ánægjulegum hlutum eru 28 þeirra af leik- skólalóðinni, 13 frá stúlkum og 15 frá drengjum. Börnin teiknuðu myndir af sjálfum sér að leika við önnur börn úti eða myndir af tækjum eins og rólum, kastölum og rennibrautum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.