Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1997, Page 23
Skýrsla formarms VFI 21
verkfræðideild HÍ og var þá ætlunin að leita til þeirra sem hafa útskrifast úr deildinni.
Stúdentaráð Háskóla íslands stóð að stofnun Hollvinasamtaka Háskóla íslands þann
1. desember 1995. I stofnskrá samtakanna er gert ráð fyrir að stofnuð verði hollvinafélög í
tengslum við ákveðnar deildir Háskóla íslands. Senatið hefur í hyggju að beita sér fyrir stofnun
Hollvinafélags verkfræðideildar HÍ og stefnir að því að stofnfundur verði 17. júní 1996.
1.13 Tengiliðir á vinnustöðum
Á tæplega 50 vinnustöðum verkfræðinga hafa félagsmenn tekið að sér að vera nokkurs konar
tengiliðir vinnustaðarins og VFÍ. Tengiliðirnir koma á framfæri til félaga upplýsingum um
fundi, ráðstefnur og aðrar samkomur á vegum félagsins.
1.14 Hugleiðingar formanns
Verkfræðingatalsnefnd hefur unnið ötullega að útgáfu talsins og í því eru starfsskrár (æviskrár)
um 2000 verkfræðinga. Af þeim eru um 300 látnir. I verkfræðingatalinu eru eingöngu þeir
sem hafa leyfi til þess að kalla sig verkfræðing. I samningi við Þjóðsögu hf. um útgáfuna var
fjöldi æviskráa áætlaður 1300-1600 og þar var einnig kveðið á um að verkið yrði í tveim
bindum. Verkfræðingatalið kostar um 11.000 kr. með virðisaukaskatti. Til þess að halda stærð
ritsins í skefjum var ákveðið að fella niður ritskiár en stefna að því að koma þeim á tölvutækt
form í staðinn. í framtíðinni lægju ritskrár frammi hjá Verkfræðingafélaginu og bókasöfnum.
Þrátt fyrir þetta er Verkfræðingatalið umfangsmeira en ætlað hafði verið og sömuleiðis er það
dýrara. Samkvæmt samningi greiðir VFl 570 þús. kr. til útgáfunnar en fær sölulaun fyrir þær
bækur sem það selur. Það er því mikilvægt að félagar hafi í huga að kaupa verkfræðingatalið
hér á skrifstofunni.
Kynningarnefnd hefur starfað af miklum krafti á þessu starfsári eins og undanfarin ár. Sér-
staka athygli vekja samlokufundir nefndarinnar sem haldnir voru eftir áramót um skattamál,
Hvalfjarðargöng og um hugsanlega sameiningu Hitaveitu og Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Á
fyrsta fundinum voru Friðrik Sophusson fjármálaráðherra og Oli Björn Kárason frá Við-
skiptablaðinu framsögumenn, en um Hvalfjarðargöngin töluðu þrír fulltrúar frá Speli, þeir
Baldur Jóhannesson, Pálmi Kristinsson og Ágúst Guðmundsson. Andmælandi var Friðrik H.
Guðmundsson. Á síðasta fundinum talaði All’reð Þorsteinsson, formaður stjórnar veitustofnana.
Mæting á þessum fundum var mjög góð, á bilinu 70-80 manns á þeim fyrri. Það var
ánægjulegt að fréttamenn voru á þessum fundum og var talsverð umfjöllun í fjölmiðlum um
efni þeirra, meðal annars í sjónvarpinu. Ber sérstaklega að þakka kynningarnefndinni fyrir að
gera félagið sýnilegt með þessum hætti.
Menntamálanefnd hefur eins og á undanförnum árum haldið marga fundi og rætt um
áhugaverð mál sem varða menntun verkfræðinga. Hér skal aðeins drepið á eitt þeirra. Nefndin
gekkst i'yrir röð funda um kennslu í raungreinum á ffamhaldsskólastigi. Mörgu málsmetandi fólki,
sem gegnir lykilhlutverki í þjóðfélaginu í þessu sambandi, var boðið að taka þátt í umræðunum.
Ymislegt athyglisvert kom fram og ljóst er að brýn mál bíða úrlausnar í þessum efnum.
Formaður menntamálanefndar sagði að tífalt fleiri stúdentar innritist samanlagt í heim-
spekideild og félagsvísindadeild HÍ en í verkfræðideild. Ennfremur kom fram að aðeins 40
nemendur eru í eðlisfræðideild MS, af 870 nemendum skólans.