Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1997, Page 24
22 Árbók VFÍ/TFÍ 1995/96
Á fundi formanna verkfræðingafélaganna á Norðurlöndum í Visby í sumar sagði formaður
sænska félagsins að þeir beittu sér fyrir að fleiri nemendur færu í verkfræðinám til þess að
auka þjóðarframleiðslu Svía. Það væri eina leiðin til þess að bæta þjóðarhag. Þurfum við ekki
einnig að hugsa um þjóðarhag?
Tvær orðanefndir starfa á vegum VFI, Orðanefnd rafmagnsverkfræðinga og Orðanefnd
byggingarverkfræðinga, sem skiptist í tvo vinnuhópa, A og B.
I Tímariti VFI má sjá að á fyrstu starfsárum félagsins vaknaði áhugi á að fá nýyrði yfir
ýmis erlend tækniorð. A fundi VFI 30. október árið 1918 flutti dr. Björn Bjarnason frá Við-
firði fyrirlestur sent bar heitið „Nýyrði“ og var hann birtur í Tímaritinu árið 1919. Þetta hefur
sennilega verið einn af síðustu fyrirlestrum dr. Björns því hann lést 18. nóvember 1918.
Arið 1919 var stofnuð málhreinsunamefnd á vegum félagsins og vom í hana valdir pró-
fessorarnir dr. Guðmundur Finnbogason, dr. Sigurður Nordal og Geir G. Zoéga vegamálastjóri.
Orðanefnd byggingarverkfræðinga var stofnuð 1980 og hefur starfað óslitið síðan.
I skýrslu nefndarinnar segir:
„Verkefni Orðanefndar er að semja heilsteypl íðorðakerfi fyrir hverja grein byggingar-
verkfræðinnar, svo að ræða megi og rita um hana á fullgildri íslensku og af þeirri fræði-
legu nákvæmni, sem við hæfi er.
Einingar íðorðakerfis eru huglökin, sent fræðigreinin byggist á. íðorðasafn nefndarinnar
er því safn íslenskra skilgreininga á hugtökum ásamt íslenskum íðorðum um þau og sam-
svarandi íðorðum á fjórum eða fimm erlendum tungum."
Formaður nefndarinnar er heiðursfélagi okkar, Einar B. Pálsson, og nefndin nýtur aðstoð-
ar dr. Halldórs Halldórssonar prófessors. Á síðastliðnu ári veitti Málræktarsjóður orðanefnd-
inni 1.200.000 kr. styrk vegna íðorðasafnsins.
í skýrslu Orðanefndar rafmagnsverkfræðinga kemur fram að störf nefndarinnar á starfs-
árinu mótuðust einkum af þrennu: Undirbúningi og útgáfu 5. bindis Raftækniorðasafns, þýð-
ingum íðorða um ljósfræði í 845. kafla alþjóða raftækniorðasafnsins, sem IEC gefur út, og
undirbúningi að útgáfu 6. bindis Raftækniorðasafns.
Orðanefndin hafði hlotið styrk Menningarsjóðs til útgáfu 5. bindis Raftækniorðasafns og
ákvað að gefa bókina út á eigin vegum eftir árangurslausa leit að útgefanda.
Orðanefnd RVFÍ færði félaginu Raftækniorðasafnið að gjöf og hel'ur bókunum verið
komið fyrir uppi í hinum nýja sal á 3. hæð Verkfræðingahússins, vonandi sem fyrsta vísi að
bókasafni VFI. Bækurnar fást í Bókaverslunum Eymundssonar.
Bergur Jónsson er formaður nefndarinnar. Þeir sem vinna í orðanefndum leggja fram ótrú-
lega mikla vinnu. Fundir eru vikulega og ýmislegt er unnið milli funda. Öllum sem vinna í
orðanefndunum ber að þakka merkt og óeigingjarnt starf sem eykur hróður félagsins út á við
og hlúir að móðurmálinu okkar.
Lítil starfsemi hefur verið hjá Norðurlandsdeild VFI undanfarin ár, en á síðastliðnu ári
lifnaði nokkuð yfir deildinni.
Á vordögum 1995 funduðu formaður og varaformaður VFI og formaður TFÍ með félags-
mönnum á Akureyri og fjölluðu um samstarf verkfræðinga og tæknifræðinga á Akureyri.
Samlokufundur með sjónvarpstengingu milli Reykjavíkur og Akureyrar var haldinn 2. nóv-
ember 1995 og sóttu um 30 manns fundinn fyrir norðan. Fundarefnið var „Ástand og horfur
í íslenskum iðnaði.“