Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1997, Page 31
Skýrslur fastanefnda VFI 29
Evrópurannsókna (KER) og Euro-Info-upplýsingamiðstöðvarinnar sem Útílutningsráð íslands
starfrækir, en báðar hófu rekstur á árinu 1995, hefur þörfin fyrir þessa starfsemi á vegum
útflutningsnefndar ntinnkað að mun. Verkefninu verður þó haldið áfram innan nefndarinnar
og áhugaverð tækifæri kynnt í Verktækni þegar ástæða þykir.
Þróunarsamvinnustofnun: Nefndin hélt áfram að vinna að auknu samstarfi við Þróunarsam-
vinnustofnun Islands á starfsárinu. Haustið 1995 var skipuð ný stjórn ÞSSÍ. Nefndin hefur átt
tvo fundi með nýskipuðum stjórnarformanni ÞSSÍ, Hilmari Þ. Hilmarssyni, aðstoðarmanni
utanrfkisráðherra. A þessum fundum var áhugi nefndarinnar kynntur en hann beinist að því
að auka samvinnu og samstarf íslenskra fyrirtækja við stofnunina.
Það er mat nefndarinnar að ef beinn og óbeinn ávinningur er sannanlega rneðal íslenskra
fyrirtækja af starfi ÞSSÍ muni það að öllum líkindum efla hana, auka skilning á starfi hennar
og þar með auðvelda að tryggja fjárveitingar til verkefna á vegum stofnunarinnar í þróunar-
löndunum. Formaður ÞSSI tók tillögum nefndarinnar vel og vænta aðilar góðs af frekara
samstarfi.
Fjárinögnunarsjóður: Fjármögnunarmál útflutningsstarfsemi meðal verktaka og verkfræði-
fyrirtækja hefur verið til umfjöllunar á vegum nefndarinnar eins og fyrr. Á fyrri hluta árs 1995
var hlutverki Iðnþróunarsjóðs breytt með setningu nýrra Iaga um hann. Leggur sjóðurinn nú
mesta áherslu á áhættulánastarfsemi. Af þessu tilefni fékk nefndin Þorvarð Alfonsson,
framkvæmdastjóra Iðnþróunarsjóðs, á fund sinn til að greina frá hinu nýja hlutverki sjóðsins
og hvernig hann getur nýst verkfræðingum, t.d. í verkefnaútflutningi. Frásögn af breyttri
starfsemi sjóðsins birtist f Verktækni í september 1995.
Lokaorð: Útflutningsnefnd VFI hefur nú starfað í þrjú ár. Á þessum árum hafa ntörg verkefni
verið til umfjöllunar og þessi þáttur í starfsemi VFI verið rækilega kynntur víða í þjóðfélag-
inu. Nefndin hefur átt viðræður við fjölda aðila eins og fram kemur í fundargerðum nefndar-
innar og greinilegt er að málin hafa þokast áleiðis. Margir hafa orðið til þess að taka undir
sjónarmið nefndarinnar varðandi stuðningsaðgerðir hins opinbera og sum þeirra eru nú í
góðum farvegi. Mestur árangur hefur þó væntanlega náðst með stofnun Samstarfsnefndar um
atvinnustarfsemi og fjárfestingar erlendis sem utanríkisráðherra skipaði haustið 1995. Segja
má að í starfi þeirrar nelndar endurspeglist flest áherslumál útfiutningsnefndar VFÍ. Skiptir
miklu máli að það sainstarf sem nú er hafið um að móta stuðningsaðgerðir stjórnvalda verði
farsælt. Nú er lag og hafa líkur til árangurs á þessu sviði sennilega aldrei verið meiri.
Útflutningsnefnd tœknifekkingar
Andrés Svanbjörnsson formaður
2.5 Aðrar nefndir
2.5.1 Oröanefnd byggingarverkfræöinga
Byggingarverklræðideild Verkfræðingafélags íslands stofnaði Orðanefnd byggingarverk-
fræðinga árið 1980. Hefur nefndin starfað óslitið frá 1. des. 1980. Framan af starfaði hún í
einum hópi, en vegna mikilla verkefna var henni skipt í tvo vinnuhópa, A og B, árið 1988 og
jafnframt hefur nefndarmönnum fjölgað.