Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1997, Page 47
Aðalfundur VFI 45
Umræður um sameiningarmál VSÍ, SV
og TFÍ
Bergur Jónsson tekur undir sameiningu félags-
manna og styður heils hugar stefnu sameiningar-
nefndar um sameiningu VFI og SV. Aftur á móti
er Bergur alfarið á móti sameiningu VFÍ og TFÍ.
Hann telur að góð samvinna eigi að vera með
félögunum og nefndi m.a. sameiginlegt skrifstofu-
hald.
Jón Möller kvaðst hafa gengið í félagið daginn
áður, eftir að hafa gengið úr því fyrir átta eða níu
árum síðan. Hann sagði að hagsmunaárekstrar
væru á milli ráðgjafarverkfræðinga og stéttarfé-
laga. Af þeim ástæðum væri hann alfarið á móti
sameiningu VFI og SV. Hagsmunir SV yrðu
kaffærðir af Félagi ráðgjafarverkfræðinga. Allt
sameiningartal væri tímaskekkja og sameining
algjört bull. Jón Möller óskaði eftir því sérstaklega að þetta yrði bókað. Ennfremur óskaði Jón
eftir því að sameiningarnefndin legði niður störf.
Gísli Júlíusson, einn af stofnendum SV, sagði að VFÍ hefði ekkert gert í launamálum á sínum
tíma. Hann skildi ekki tal um sameiningu VFI og SV og væri hræddur við sameiningu félag-
anna, það mundi fara í sama farið og áður. Gísli vildi fara varlega í sameiningu VFÍ og TFÍ.
Magnús Bjarnason sagði að stéttarfélagið væri deild í VFI, skv. lögum. Magnúsi leist vel
á tillögu sameiningarnefndar um sameiningu VFÍ og SV en kvaðst vera á móti sameiningu
VFÍ og TFÍ. Við þá sameiningu myndu launakjör verkfræðinga versna. Enginn hagnaður
hefði verið af samstarfi við tæknifræðinga. Máli sínu til stuðnings nefndi hann sameiginlegt
skrifstofuhald. Verkfræðingar eru fyrir verkfræðinga en ekki aðra.
Jónas Jónasson, framkvæmdastjóri SV og LVFI, sagði að samningar við FRV undanfarið
hefðu gengið vel. Meðal annars hafi verið tekið fyrir fæðingarorlof karla.
Páll Gíslason nefndarmaður sagði að sameina ætti félögin.
Ólafur Jensson ræddi lög VFÍ og SV og stöðu SV f dag.
Karl Ómar Jónsson, fráfarandi formaður, fannst gott að fá alls konar skoðanir fram. í
Danmörku sameinuðust félögin og taldi Karl að fara ætti að dæmi Dana. Kynna þarf málið
betur og láta tvær til þrjár skoðanakannanir fara fram.
GuðleifurM. Kristmundsson vill að starfað verði áfram að sameiningarmálum. Hann styður
sameiningu SV og VFÍ, sömuleiðis styður hann sameiningu VFÍ og TFÍ.
Halldór Halldórsson sagði að það að ná inn fleiri nýjum félögum skipti meira máli en sam-
einingarmálin. Sameiningarmál eru ekki efst á dagskrá í markmiðum félagsins. Að ná í nýja
unga félagsmenn er markmið númer eitt.
Karl Ómar Jónsson sagði að SV hefði breytt um aðferðir í launabaráttu, sbr. launa-
kannanir. Nú væri barist fyrir launum eftir hæfni en ekki eftir aldri. Karl notaði tækifærið og
þakkaði félagsmönnum ánægjulegt samstarf á þeim tíma sem hann hefði verið formaður VFÍ.
Jónas Jónasson vill öðruvísi VFI, félag á breiðum grundvelli.
Mynd 15 Magnús Bjamason í rœðustól á
aðalfundi. (Ljósnu: Ambjörg Edda Guð-
björnsdóttir)