Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1997, Page 68
66 Árbók VFÍÍTFÍ 1995/96
3.2 Stéttarfélag tæknifræðinga - ST
Helstu verkefni stjórnar ST á árinu hafa tengst kjaramálum og breyttri uppbyggingu TFI.
Stjórnin fundar um það bil einu sinni í mánuði og er þar fjallað um hin ýmsu málefni. í stjórn
fyrir þetta starfsár sitja Stefán Ragnarsson formaður, Kristinn Alexandersson varaformaður
og Gunnar Þór Gunnarsson gjaldkeri. Meðstjórnendur eru Kristinn Kristinsson, Helgi Bald-
vinsson og varamenn Olafur Hermannsson og Helgi Helgason.
Samningur við FRV hefur verið í gildi þetta ár og hefur samninganefnd ST og SV náð
fram hækkunum, 3,5% í mars 1995, 3,5% í október 1995 og 3% í janúar 1996. Gert er ráð
fyrir að samningafundur verði með FRV í þessum mánuði.
Launanefnd Sambands sveitarfélaga fór fram á að gera kjarasamning fyrir hönd nokkurra
sveitarfélaga við ST og voru skipaðir í samninganefnd þeir Stefán Ragnarsson, Jón Ásbjörns-
son og Hrafn Jóhannsson. Haldnir hafa verið nokkrir samningafundir og eru viðræður nokkuð
langt komnar, en endanlegur samningur er ekki kominn á. Mikil vinna liggur í því að gera
slíkan samning í fyrsta skipti.
í málum einstakra félaga er fallinn dómur í máli Gests Gunnarssonar gegn Silfurtúni, en
félagið styrkti hann til málssóknar og vann hann þann hluta málsins sem fjallaði um van-
goldin laun en tapaði þeint hluta sem fjallaði um greiðslu fyrir hugverk.
Stjórninni barst ósk frá félagsmönnum í Vestmannaeyjum um að kannað yrði hvort löglegt
sé að segja upp hluta ráðningarsamnings og fékk stjórnin lögfræðilegt álit Láru V. Júlíusdóttir
hdl. um þessi mál, en mikið hefur verið spurt um þetta atriði. Geta þeir sem þess óska fengið
afrit af þessari niðurstöðu.
Haldinn var á fslandi fundur norrænu tæknifræðingafélaganna og var formanni ST boðin
þátttaka. Það er fróðlegt fyrir okkur að fylgjast með því hvað er að gerast á hinum Norður-
löndunum í kjaramálum. Einnig stendur okkur til boða að gerast gestafélagar í hinum félög-
unum með skemmri búsetu á hinum Norðurlöndunum.
Stjórn ST hefur ákveðið að gera kjarakönnun á árinu 1996, en slík könnun hefur ekki verið
gerð síðan 1991. Þessi kjarakönnun er gerð í samvinnu við KT og SV, en með því móti náum
við niður kostnaði við könnunina.
Góð samvinna hefur verið á milli ST og SV á árinu, en samninganefndir félaganna starfa
saman að öllum kjarasamningum sem félögin gera. Á síðasta aðalfundi ST var samþykkt
ályktun um að stefna að meiri samvinnu við SV. Ákveðið var í stjórn ST að leggja áherslu á
sameiningu ST og KT áður en skoðuð yrði nánari samvinna, t.d. um rekstur skrifstofu SV. Til
þess að það sé hægt þarf að breyta árgjöldum ST og hækka þau til ntuna.
Stjórnin ákvað að halda áfram þátttöku í samningi stéttarfélaganna við Samvinnuferðir-
Landsýn um flugfargjöld innanlands og utanlands ásamt samningum við bílaleigur o.fl.
Hugmyndir um sameiningu ST og KT hafa verið ræddar í nokkur ár. Hugmyndir eru um
nýja skipan TFÍ þar sem TFÍ yrði deildarskipt félag með launþegadeild og deild fyrir þá sem
eru sjálfstætt starfandi eða eigendur. Stjórnir félaganna hafa fundað oft og liggja fyrir drög að
lögum, markmiði og stefnu sameinaðs félags.
Stéttarfélag tœknifrœðinga
Stefcín Ragnarsson formaður