Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1997, Page 87
Sameiginlegur rekstur VFÍ/TFÍ 85
6.2 Skipun endurmenntunar- og símenntunarnefndar
VFÍ, TFÍ og SV (ENSÍM)
Til að fylgja eftir þeirri stefnumótun í endurmenntunarmálum verkfræðinga og tæknifræðinga
sem samþykkt var af fyrrgreindri nefnd var skipuð ný nefnd, með þátttöku Stéttarfélags verk-
fræðinga, sem kölluð er Endurmenntunar- og símenntunamefnd VFI, TFI og SV, skamm-
stafað ENSÍM.
Nefndina skipa: Jón Vilhjálmsson VFÍ formaður, Örn Steinar Sigurðsson VFÍ, Sigurður
Grímsson TFÍ, Nicolai Jónasson TFI og Sigurður Ass Grétarsson SV.
Tekið saman úr ársskýrslum um starfssemi Sammenntar sem Nicolai Jónasson og Guðleif-
ur M. Kristmundsson fulltrúar TFÍ og VFÍ í Sammennt skrifuðu (RR).
6.3 Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands
Endurmenntunarnefnd Háskóla Islands starfaði frá árinu 1983 til 1991 eða þar til Endur-
menntunarstofnun HI var stofnuð. Að EHI standa, auk Háskóla Islands, Tækniskóli Islands,
Bandalag háskólamanna-BHMR, Arkitektafélag íslands, Hið íslenska kennarafélag, Tækni-
fræðingafélag Islands og Verkfræðingafélag Islands. Meginviðfangsefni EHI er símenntun á
háskólastigi. A árinu 1995 hélt stofnunin um 370 námskeið með nálægt 7000 þátttakendum.
í nóvember 1995 var haldinn sérstakur fundur með Sveinbirni Björnssyni rektor HI og
fulltrúum frá stjórnum aðildarfélaga EHÍ til að ræða stöðu og framtíð Endurmenntunar-
stofnunar. Fundurinn var að hluta til með hugarflugssniði og komu fram ýmsar hugmyndir og
ábendingar. Helstu tillögur sem samþykktar voru:
• Tengsl EHÍ við aðstandendur verði styrkt, m.a. með ársfundi þar sem lagðar verði fram
skýrslur um stöðu stofnunarinnar og stærri framtíðaráform.
• Dagskrárstjórum verði fjölgað.
• Haldið verði áfram uppbyggingu lengra náms með starfi.
• Leitað verði samstarfs við deildir HÍ og háskólaráðs um öldungadeildarnám með
starfi.
• Undirbúið verði fjamám í rekstrar- og viðskiptagreinum. Jafnframt verði leitað eftir
samstarfi um þróun fjarnáms við Kennaraháskóla íslands og erlenda háskóla.
I febrúar 1996 hófst í fyrsta sinn nám í markaðs- og útflutningsfræðum. Þetta nám mun
standa í eitt ár og er samtals 246 kennslustundir. Að auki verður boðið tungumálanám fyrir
þá sem vilja, í tengslum við þetta nýja nám EHÍ.
A árinu 1995 hófst samvinna milli EHÍ og tölvunarfræðiskorar HÍ um sameiginlegan
rekstur á tölvuveri. Það er til húsa í svokallaðri Vetrarhöll vestan við Tæknigarð og í því eru
12 tölvur. Þátttaka í tölvunámskeiðum EHI hefur aukist og tölvuverið bætir úr brýnni þörf.
Arið 1996 er evrópskt ár símenntunar. Endurmenntunarstofnun HI mun af því tilefni m.a.
standa að gerð hálftíma sjónvarpsþáttar ásamt fleiri aðilum um gildi símenntunar og mikil-
vægi menntunar allt lífið.
Á stjórnarfundi í EHÍ í febrúar 1996 var lagt fram bréf frá Tæknifræðingafélagi íslands
um starfsemi EHÍ. Þar er lýst þeirri skoðun TFÍ að færa beri rekstur EHÍ meira í það horf sem
hentar stofnun á samkeppnismarkaði í ljósi sívaxandi starfsemi stofnunarinnar.