Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1997, Page 172
170 Árbók VFÍ/TFÍ 1995/96
Bifreiðaeign: Samkvæmt tölum
frá Bifreiðaskoðun Islands hf.
voru nýskráðar fólksbifreiðar
6.931 á árinu 1995 á móti 5.583
árið áður eða um 24% aukning. Á
sama tfma voru nýskráðar hóp-
ferðabifreiðar 70 á móti 62 árið
áður eða um 13% fleiri. Nýskráðar
vöru- og sendibifreiðar voru 891 á
árinu 1995 en voru 660 árið áður
og er aukningin 35%. Endumýjun
bifreiða landsmanna á árinu 1995
var í heild um 6%. Innflutningur
og sala á bifreiðum tók nokkurn
fjörkipp á árinu 1995 eftir nokkurra
ára lægð.
Bensíngjald: Bensínsala á tekjuárinu nam 179 milljónum lítra og var um að ræða 0,8% sölu-
minnkun milli ára. I vegáætlun var hins vegar gert ráð fyrir 1,8% aukningu milli ára. Afleið-
ingin varð sú að tekjur af bensíngjaldi urðu um 100 m.kr. minni er áætlað hafði verið. Bensín-
gjald var hækkað um 5,68% í byrjun desember 1994, í framhaldi af ákvörðun um átak í
framkvæmdum.
Sala á blýbensíni fer stöðugt minnkandi og er markaðshlutdeild þess komin niður í um
12%. Bensíngjald af blýlausu bensfni er enn 5,88% lægra en af blýbensíni. Afsláttur þessi
skerti tekjur vegasjóðs um 245 m.kr. á árinu 1995.
Ekki voru miklar sveiflur í bensínverði á árinu. í ársbyrjun var verð á 92 oktana bensíni
66,80 kr/1 en í árslok var það komið upp í 67,70 kr/1.
Meðaleyðsla á bíl hel'ur aukist jafnt og þétt á meðan bifreiðar verða sífellt sparneytnari
(undantekningar eru árin 1988 og 1995). Bendir þetta til þess að akstur hverrar bifreiðar sé
að aukast. Eðlilegt er að þetta gerist þegar bifreiðaeign landsmanna minnkar en þetta á einnig
við þegar bifreiðaeignin eykst.
Þungaskattur: Gjaldskrár þungaskatts, bæði kílómetragjalds og árgjalds, voru lækkaðar um
4,3% þann l.janúar 1995.
I ársbyrjun 1994 tók vegaeftirlit Vegagerðarinnar við eftirliti með þungaskatti og við það
stórjókst eftirlitið. Ljóst er að þetta aukna eftirlit auk innheimtuátaks sem fjármálaráðuneytið
stóð fyrir hefur skilað verulegum árangri. Við gerð vegáætlunar var reiknað með áðurnefndri
gjaldskrárhækkun og eðlilegri magnaukningu miðað við umferðarspá. Auk þess var reiknað
með 100 m.kr. vegna bættrar innheimtu í kjölfar aukins eftirlits. Miðað við bráðabirgðatölur
ríkisbókhalds skilaði þungaskatturinn um 188 m.kr. umfram þessar 100 m.kr. á árinu 1995.
Vinnuhópur fjármálaráðuneytis, ríkisskattstjóra og Vegagerðarinnar hefur unnið að endur-
skoðun kaflans um þungaskatt í lögunum um fjáröflun til vegagerðar.
Fært í ríkissjóð: í vegáætlun fyrir 1995 var gert ráð l'yrir að 275 m.kr. af mörkuðum tekjum
rynnu í ríkissjóð. Miðað við bráðabirgðatölur um innheimtu verður þessi tala öllu hærri eða
357 m.kr.
Tekjur vegasjóðs m.kr.
1. Markaðar tekjur:
1. Bensíngjald 4.264
2. Þungaskattur, árgjald 659
3. Þungaskattur, km-gjald 1.509
4. Bætt innheimta þungaskatts 100
2. Fært f ríkissjóð -357
6.175
3. Framkvæmdaátak:
1. Frá mörkuðum tekjustofnum 310
2. Framlag úr rfkissjóði 350
3. Lánsfé 590
7.250
Samtals 7.425