Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.1996, Page 79

Læknablaðið - 15.04.1996, Page 79
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 331 Könnun á upplýsingaflæði milli sérfræðinga og heimilislækna íslenskt heilbrigðiskerfi er mjög flókið og dreift. Þannig er algengt að margir aðilar á mörg- ’um stofnunum og mismunandi stöðum séu að fást við sama sjúklinginn oft samtímis eða í framhaldi hver af öðrum. Til að starf þeirra sé markvisst og nái sem bestum árangri er mjög nauðsynlegt að upplýsingaflæði milli þeirra aðila sem eru að fást við viðkomandi sjúkling sé sem best. I þessu skyni hefur verið komið upp kerfi svokallaðra til- vísana og læknabréfa auk rann- sóknasvara sem ætlað er að tryggja upplýsingaflæðið. Menn hefur mjög greint á um hvort upplýsingaflæði milli lækna og annarra heilbrigðis- starfsmanna sé í viðunandi ástandi. Vegna skorts á könn- unum á þessu hafa menn haldið uppi órökstuddum einkaskoð- unum. Astæða er til að fá vitn- eskju um hvernig þessum mál- um er háttað með það fyrir aug- um að reyna að bæta úr ef þurfa þykir. Tilgangur rannsóknar þessar- ar er að kanna upplýsingaflæði milli heimilis- og heilsugæslu- lækna annars vegar og sérfræð- inga á einkastofum hins vegar, Könnunina unnu eftirtaldir læknar: Gestur Þorgeirsson, Guðmundur B. Guðmundsson, Gunnar Baarregaard, Hafsteinn Skúlason, Högni Óskarsson, Kristján Guðmundsson, Ludvig Guðmundsson, Lúðvík Ólafs- son, Ólafur F. Magnússon, Páll Torfi Önundarson og Sveinn Magnússon. það er að segja tíðni tilvísana frá heimilislækni til sérfræðings annars vegar og tíðni lækna- bréfa frá sérfræðingum til heim- ilislækna hins vegar. Könnunin er unnin á vegum nefndar sem heilbrigðisráð- herra skipaði á síðastliðnu ári og átti að fjalla um samskipti heimilis- og heilsugæslulækna annars vegar og sérfræðinga hins vegar. Ákveðið var að gera aftur- skyggna könnun sem næði til tímabilsins október til nóvem- ber 1994. Þetta tímabil var valið vegna þess að þá ríkti tiltölulega góður friður í samskiptum of- annefndra hópa en tveimur mánuðum seinna hófst eins og þekkt er hatrömm deila þeirra á milli. Könnunin var sett upp þannig að Tryggingastofnun ríkisins valdi af handahófi 1200 læknis- verkareikninga frá sérfræðing- um sem bárust fyrir mánuðina október og nóvember 1994. Rannsóknarsvæðið náði til íbúa Stór-Reykjavíkursvæðisins, það er að segja Hafnarfjarðar, Álftaness, Garðabæjar, Kópa- vogs, Seltjarnarness, Reykja- víkur og Mosfellsbæjar. Undanskildir í rannsókninni voru reikningar frá rannsóknar- læknum, röntgenlæknum og augnlæknum. Prjár heilsugæslustöðvar og ein heimilislæknastöð voru valdar til að gera hina eiginlegu könnun. Þær voru stöðvarnar í Garðabæ, Efra-Breiðholti, á Seltjarnarnesi og í Kringlu, (fjórir af fimm læknum stöðvar- innar tóku þátt í könnuninni, einn var forfallaður). Þeir sjúklingar sem lentu í úr- takinu og voru örugglega skráð- ir á viðkomandi heimilislækna og heilsugæslustöðvar voru at- hugaðir. Þannig fengust samtals 216 sjúklings/sérfræðings sam- skipti (ef sami sjúklingur kom oftar en einu sinni til sama sér- fræðings töldust það vera ein sjúklings/sérfræðings sam- skipti). Reikningar svæfinga- lækna sem komu til vegna að- gerða annarra lækna voru ekki taldir með en sæi hins vegar svæfingalæknir sjúklinginn einn síns liðs, þá væntanlega vegna einhvers konar verkja — eða deyfingarmeðferðar, voru sam- skiptin talin. Kannað var hversu oft heim- ilislæknir sjúklings hafði sent skriflega eða sannanlega munn- lega tilvísun til viðkomandi sér- fræðings. Heimilislæknir taldist hafa sent tilvísun til sérfræð- ingsins ef hún var skrifuð eftir 1. nóvember 1991. Þá var kannað hversu oft læknabréf bárust frá viðkom- andi sérfræðingi til heimilis- læknis. Læknabréf taldist hafa borist ef viðkomandi sérfræð- ingur hafði sent læknabréf til heimilislæknisins eftir 1. ágúst 1994, það er að segja tveimur til fjórum mánuðum áður en sam- skipti sjúklings og sérfræðings áttu sér stað og fram að þeim tíma sem rannsóknin fór fram en hún var framkvæmd á tíma- bilinu lok október 1995 til jan- úar 1996. Ef eldri tilvísanir en ofan greinir eða eldri læknabréf voru til voru þau ekki talin með í aðal könnuninni. Helstu niðurstöður könnun- arinnar eru þær að læknabréf
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.