Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1998, Side 16

Læknablaðið - 15.10.1998, Side 16
Ahrífaríkt 28% sjúklinga fá merkjanleg áhrif innan 12 klukkustunda Mómetasón fúróat er öflugur barksteri (af flokki III) Lítiftætta er á kerfisbundnum áhrifum (< 0,1%) Lág tiðníibloðnasa (8% á móti 5% lyfleysu) Einfalt Einn skammtur á dag Handhægar umbúðir Nasonex mómetason furoat - nefúði, dreifa - nýr barksteri í vatnslausn > Schering-Plough tesonex Q mikrog/dos/annos Nasonex Schering-Plough A/S, 960233 NEFÚÐI, DREIFA; R 01 A D: R E Hver úðaskammtur inniheldur: Mometasonum INN, furoate, monohydrat, samsvarandi Mometasonum INN, furoate 50 mikróg., Cellulosum microcryst., Carmellosum natricum, Glycerolum, Natrii citras, dihydric., Acidum citricum, monohydric.. Polysorbatum 80, Benzalkonii chloridum, Phenethanolum, Aqua purificata. Eiginleikar: Mometason fúróat er barksteri með staðbundna bólgueyðandi eiginleika í skömmtum sem hafa ekki almenna steraverkun. Það er talið liklegt að áhrif lyfsins gegn ofnæmi og bólgu séu vogna þess að það hindrar losun efna sem leysa úr læðingi ofnæmisviðbrögð. Mometason hindrar losun leukotriena úr hvítum blóðkornum hjá sjúklingum sem eru með ofnæmi. í fru- muræktun var sýnt fram á að mometason er mjög virkt í að hindra myndun og losun á IL-1, IL-5, IL-6, og TNF; það er einnig öflugur hemill á framleiðslu leukotriena. Þar að auki er það mjög öflugur hemill á framleiðslu Th2-cytokínanna IL-4 og IL-5 í CD4 + T-frumum manna. í rannsóknum þar sem mótefnavakar voru gefnir i nef reyndist Nasonex nefúði, dreifa hafa bólgueyðandi eiginleika bæði snemma og seint í ofnæmissvöruninni. Þetta hefur verið sýnt fram á með minnkun (miðað við lyfleysu) á losun histamíns og virkni eósínfíkla og fækkun eósínofíkla, hlutley- siskyrninga og viðloðunarpróteina þekjufruma. Hjá 28% sjúklinga með árstíðabundið ofnæmisnefkvef reyndist verkun Nasonex nefúða, dreifu hefjast innan 12 klst. eftir fyrsta skammt. Miðgildi (50%) þess þegar verkun hófst var 35,9 klst. Lyfið frásogast mjög illa frá slímhúö í nefi og meltingarfærum (nýting <0,1%). Ábendingar: Nasoncx nefúði er notaður fyrir fullorðna og börn 12 ára og eldri til meðhöndlunar á árstíðabundnum eða heilsárseinkennum ofnæmisnefkvefs. Hjá sjúklingum sem hafa sögu um miðlungs eða alvarleg einkenni af árstíðabundnu ofnæmisnefkvefi, má nota Nasonex fyrirbyggjandi í allt að fjórar vikur áður en frjókornatímabilið hefst. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum Nasonex. Ekki ætti að nota Nasonex ef um ómeðhöndlaða, staðbundna sýkingu er að ræða i nefslímhúð. Sjúklingar, sem nýlega hafa gengist undir skurðaðgerðir á nefi eða eru með áverka á nefi, ættu ekki að nota barkstera í nef fyrr en sárin hafa gróið að fullu, þar sem þeir hamla að sár grói. Varúð: Nasonex nefúða skyldi ekki nota, eða þá með mikilli varúð, ef sjúklingar hafa virka eða óvirka berklasýkingu í öndunarfærum eða ómeðhöndlaða sveppasýkingu, bakteriusýkingu, útbrei- dda veirusýkingu eða herpessýkingu í auga. Eftir 12 mánaða meðferð með Nasonex nefúða sáust engin merki um rýrnun i nefslímhúð. Eins og við alla langtimameðferð þarf að skoða reglubundið þá sjúklinga sem nota lyfið í nokkra mánuði eða lengur, m.t.t. hugsanlegra breytinga í nefslimhúð. Ef staðbundnar sveppasýkingar koma fram i nefi eða koki þarf hugsanlega að hætta Nasonex nefúðameðferð og gera viðeigandi ráöstafanir. Ef um langvarandi ertingu í nefi og koki er að ræða kann að vera ástæða til að hætta meðferð með Nasonex. Það eru engin merki um hömlun á undirstúku/heiladinguls/nýrnahettubarkar starfse- mi eftir langvarandi meðferð með Nasonex nefúða, dreifu. Engu að síður þarf að fylgjast nákvæmlega með sjúklingum sem fara af langvarandi almennri sterameðferð yfir í Nasonex nefúða. dreifu. Þegar slikri almennri meðferð með barksterum er hætt getur verið hætta á nýrnahettubarkarbilun í nokkra mánuði þangað til að starfsemi undirstúku/heiladinguls/nýrnahettubarkar hefur jafnað sig. Sýni slikir sjúklingar merki og einkenni um nýrnahettubarkarbilun þarf að byrja aftur á almennri sterameðferð og grípa til annarra viðeigandi ráðstafana. Þegar farið er yfir i meðferð með Nasonex nefúða, dreifu eftir almenna sterameðferð finna sumir sjúklingar í fyrstu fyrir einkennum um fráhvarf frá kerfissterameðferð t.d. lið- og/eða vöð- vaverkir, slappleiki og þunglyndi þrátt fyrir að einkennin frá nefi lagist. Þessa sjúklinga þarf að hvetja sérstaklega til að halda áfram að nota lyfið. Þegar slfk meðferðarbreyting er gerð geta komið fram einkenni um aðra ofnæmissjúkdóma svo sem augnslímhúðarbólga og exem sem héldust í skefjum vegna almennu sterameðferðarinnar. Vara ætti ónæmisbælda sjúklinga, sem eru á sterameðferð, við hættunni á sýkingum (t.d. hlaupabólu og mislingum) og um mikilvægi þess að leita sér læknishjálpar ef þeir verða fyrir slíkum sýkingum. Einstaka sinnum hafa komið göt á miðsnesiö og augnþrýstingur aukist eftir notkun á barksterum í nef. Meðganga og brjóstagjöf: Engar fullnægjandi rannsóknir hafa farið fram á þunguðum konum. Eftir að hafa gefið hámarks ráðlagðan lækningalegan dagsskammt, var mometasone ekki mælan- legt í blóðvökva. Þannig er talið ólíklegt að fóstur verði fyrir tjóni af stórum skammti af lyfinu og hætta á fósturskemmdum talin mjög lítil. Eins og við notkun annarra barkstera i nef ætti aðeins að nota Nasonex hjá þunguðum konum eða konum sem hafa börn á brjósti, ef gagnið af meðferðinni vegur meira en hugsanleg áhætta fyrir móður, fóstur eða ungbarn. Börn sem eru fædd af mæðrum sem fengið hafa barkstera á þungunartímabilinu þarf að athuga sérstaklega m.t.t. nýrnahettubarkarbilunar. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir sem fram hafa komið í klinískum prófunum eru eftirfarandi: Höfuðverkur (8%), blóðnasir (8%), kokbólga (4%), sviði í nefi (2%) og erting í nefi (2%). Þessar aukaverkanir eru einkennandi þegar barksterar eru notaðir í nefúða. Blóðnasir voru yfirleitt minniháttar og stöðvuðust af sjálfu sér. Ofskömmtun: Þar sem aðgengi Nasonex er mjög lítið (<0,1%), er mjög ólíklegt að veita þurfi sérstaka meðferð við ofskömmtun. Fylgjast ber þó með sjúklingum eftir að venjulegir skammtar eru gefnir að nýju. Þegar gefnir eru of stórir skammtar af barksterum til innúðunar eða inntöku í langan tíma getur það valdið bælingu á starfsemi undirstúku/heiladinguls/nýrnahettna. Skammtastærðir: Þegar byrjað er að nota nýja úðaflösku er þrýst á dæluna (venjulega 6-7 sinnum þar til úðagjöfin er jöfn), hver úðun gefur u.þ.b. 100 ji g af mometason fúróat dreifu, sem samsvarar 50 ji g af virka efninu. Ef úðadælan hefur ekki verið notuð í 14 daga eða lengur, ætti að fara að eins og að ofan greinir. Skammtastærðir handa fullorðnum (þ.m.t. aldraðir) og börn 12 ára og eldri: Venjulegur ráðlagður skammtur er 2 úðanir (50 n g/úðun) í hvora nös einu sinni á dag (heildarskammtur 200 p g). Þegar sjúkdómseinkennin hafa lagast má minnka skammtinn í eina úðun í hvora nös (heildarskammtur 100 )i g). Ef einkenni lagast ekki má auka skammtinn í 4 úðanir í hvora nös einu sinni á dag (heildarskammtur 400 ii g). Við meðferð með Nasonex nefúða fást merkjanleg áhrif innan 12 klst. eftir fyrsta skammt hjá mörgum sjúklingum sem þjást af árstíðabundnu ofnæmisnefkvefi. Samt sem áður geta liðið nokkrir dagar áður en full verkun næst. Þessir sjúklingar ættu þvi að halda meðferð áfram þar til fullum áhrifum er náð. Ekki er vitaö um lækningalegt gildi lyfsins fyrir börn undir 12 ára aldri og er ekki mælt með Nasonex fyrir þennan aldur- shóp. Athugið: Áður en fyrsti skammtur er gefinn skal hrista úðaflöskuna vel og þrýsta á dæluna 6-7 sinnum þangað til jafn úði fæst. Hafi dælan ekki verið notuð í 14 daga eða lengur skal endurtaka þetta fyrir notkun. Hristið flöskuna vel fyrir hverja notkun. Pakkningar og verð: 1 úðastaukur, 18 g (120 úðaskammtar). Heildsöluverð án vsk: 1.353.-Smásöluverð með vsk. 2.728.- Schering-Plough umboðsaðm: ÍSFARM ehf.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.