Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.1998, Qupperneq 21

Læknablaðið - 15.10.1998, Qupperneq 21
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 733 meðferð. Ennfremur myndi þetta hvetja lækn- inn til að fylgja betur eftir sjúklingi sem líkleg- ur væri til að fá útbreiddan sjúkdóm og veita honum meiri meðferð. Islenskir vísindamenn hafa bent á að sameindaerfðafræðilegar rann- sóknir á blöðruhálskirtilskrabbameini kynnu að hafa betra forspárgildi um gang sjúkdóms- ins en nútíma aðferðir bjóða upp á. En það voru rannsóknir á arfbundnu brjóstakrabbameini á Islandi sem komu mönnum á sporið. Þannig kom í ljós að ákveðin kímlínustökkbreyting í BRCA2 geninu (999del5) tengdist ekki aðeins brjóstakrabbameini heldur einnig ýmsum öðr- um krabbameinum, þar á meðal blöðruhálskirt- ilskrabbameini (28). Við nánari rannsóknir á þessum fjölskyldum kom í ljós að fyrsta og annars stigs karlkyns ættingjar brjóstakrabba- meinssjúklinga með kímlínustökkbreytingu í þessu geni, voru í aukinni hættu á að fá blöðru- hálskirtilskrabbamein. Ennfremur reyndust sjúklingar með blöðruhálskirtilskrabbamein, sem höfðu þessa kímlínustökkbreytingu, hafa verri horfur heldur en þeir sem ekki höfðu hana (68). Ekki er Ijóst á þessu stigi hvort sjúklingur með blöðruhálskirtilskrabbamein og þessa til- teknu kímlínustökkbreytingu í BRCA2 geninu hefði hag af hertu eftirliti eða meiri meðferð, en framtíðarrannsóknir munu væntanlega varpa ljósi á þetta mál. Fyrir sjúklinga með hvítblæði geta sam- eindaerfðafræðilegar rannsóknir komið að gagni við greiningu sjúkdómsleifa (minimal residual disease), enda er blóð og mergur sér- lega aðgengilegur vefur til rannsókna af þessu tagi. Næmni þessara rannsóknaraðferða er slík að þær geta greint eina hvítblæðisfrumu innan allt að milljón eðlilegra frumna (3). Að greina með þessum hætti sjúkdómsleifar eftir kröftuga krabbameinslyfjameðferð getur til dæmis hjálp- að læknum að ákveða hvort áframhaldandi meðferð sé nauðsynleg eða ekki (69). Auk þess gætu þær nýst við nákvæma greiningu á endur- komu sjúkdóms (70). Lokaorð Niðurstöður sameindaerfðafræðilegra rann- sókna eru famar að hafa áhrif á ýmsum sviðum krabbameinslækninga. Eflaust verða forvarnir gegn krabbameinum í brennidepli en væntan- lega verða einnig miklar framfarir í meðferðar- úrræðum fyrir krabbameinssjúklinga. Niður- stöður rannsókna undanfarinna ára hafa sýnt að flest krabbamein myndast vegna uppsafnaðra skemmda í erfðaefninu. Vissar skemmdir virð- ast geta spáð fyrir um myndun krabbameins síðar á ævinni og aðrar sagt til um horfur greindra krabbameinssjúklinga. í þessari grein hefur verið minnst á nokkrar erfðaefnis- skemmdir sem sýnt hefur verið fram á að hafa áðurnefnt forspárgildi. Skilningur á mikilvægi þessara erfðaefnisskemmda í myndun krabba- meina eykur jafnframt skilning manna á for- sendum eðlilegs frumuvaxtar og heilbrigðs lífs. Þessi staðreynd knýr vísindamenn til frekari rannsókna og munu niðurstöður þeirra væntan- lega hjálpa læknum að komast nær takmarki sínu, það er að lækka nýgengi krabbameina, bæta horfur krabbameinssjúklinga og jafnvel lækna sjúkdóma sem áður hafa verið ólæknan- legir. Þakkir Höfundur vill þakka eftirtöldum aðilum fyrir yfirlestur handrits og gagnlegar ábendingar: dr. Helga Sigurðssyni yfirlækni á krabbameins- lækningadeild Landspítalans, dr. Helgu M. Ög- mundsdóttur yfirlækni á rannsóknastofu í frumu- og sameindalíffræði, Krabbameinsfé- lagi Islands, Steinunni Thorlacius líffræðingi á rannsóknastofu í frumu- og sameindalíffræði, Krabbameinsfélagi Islands og dr. Sigurði Ingv- arssyni líffræðingi á Rannsóknastofu Háskóla Islands í meinafræði. HEIMILDIR 1. Frei E. Pathobiology of cancer. Scientific American, Inc. 1996: 1-23. 2. Fearon ER. Colorectal cancer: molecular genetic studies and their future clinical applications. Med Pediatr Oncol 1996; Suppl. 1:35-40. 3. Cline MJ. Mechanisms of disease: The molecular basis of leukemia. N Engl J Med 1994; 330: 328-36. 4. Basic Genetic Mechanisms. In: Alberts B, Bray D, Lewis J, Raff M, Roberts K, Watson JD, eds. The Molecular Biology of the Cell. New York: Garland Publishing 1989: 201-71. 5. Weinberg RA. The action of oncogenes in the cytoplasm and nucleus. Science 1985; 230: 770-83. 6. Sinn E, Muller W, Pattengale P, Tepler I, Wallace R, Leder P. Coexpression of MMTVIv-Ha-ras and MMTVIc-myc genes in transgenic mice: synergistic action of oncogenes in vivo. Cell 1987; 49: 465-75. 7. Harris H, Miller OI, Klein C, Worst S, Tachibana T. Sup- pression of malignancy by cell fusion. Nature 1969; 223: 363-7. 8. Stanbridge EJ, Der CJ, Doersen CJ, Nishimi RY, Peehl DM, Weissman BE, et al. Human cell hybrids: analysis of trans- formation and tumorigenicity. Science 1982; 215: 252-9. 9. Knudsen AG. Mutation and cancer; statistical study of retinoblastoma. Proc Natl Acad Sci 1971; 68: 820-3. 10. Sparkes RS, Murphree AL, Lingua RW, Sparkes MC, Field LL, Funderburk SJ, et al. Gene for hereditary retinoblast-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.