Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1998, Side 35

Læknablaðið - 15.10.1998, Side 35
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 745 Tafla I. Aldur barnanna og svör foreldra (%) um málörðugleika eftir því hvernig þeir merktu viÖ á spurningalista yfir atferli barna og unglinga (0,1,2). Málörðugleikar (%) 0 1 2 Aldur Ekki Stundum Oft Fjöldi 2 (87,6) (11,2) (1,1) 89 3 (85,7) (10,7) (3,6) 56 4 (84,0) (11.1) (4,9) 81 5 (85,3) (12,0) (2,7) 75 6 (88,9) (6,9) (4,2) 72 7 (93,0) (4,2) (2,8) 71 Fjöldi alls 388 42 14 444 Hlutfall alls (87,4) (9,5) (3,1) (100) fremst að flokka talvandamál, hljóðfræðilegs eðlis, en síður þætti sem tengjast málskilningi (16). I yfirlitsgrein frá 1994 var þessi vandi ítrekaður (4). Það er því líklegt að aðgreining í tal og mál taki nokkurn tíma að festa sig í sessi hjá almenningi. Urvinnsla málhljóða og mál- skilningur eru auk þess þroskaþættir sem erfitt er að átta sig á. A hinn bóginn vefst ekki fyrir neinum ef böm eiga erfitt með að bera fram ákveðin hljóð eins og r og 5. Þar af leiðandi er viðbúið að foreldrar hafi meiri áhyggjur af tali en máli hjá börnum sínum. Til þess að fá fram óháð mat á þessari tilgátu voru fjórir talmeinafræðingar fengnir til þess að flokka athugasemdir foreldra eftir tegund erfiðleika, hvort þeir snerust fyrst og fremst um tal, fyrst og fremst um mál eða hvort um væri að ræða þriðja möguleikann, að ekki yrði ráðið af athugasemdunum hvort ætti betur við. Til þess að fá einnig óháð mat sérfræðinga á stig áhyggja, eins og þeim var lýst í athugasemdum foreldra, flokkuðu talmeinafræðingar þær í þrennt, hvort þeir töldu að áhyggjur væru óþarfar (vísuðu til eðlilegs málþroska), eða að þær gæfu til kynna að um vægt eða alvarlegt frávik væri að ræða. Hér er því um að ræða flokkun á áhyggjum foreldra en ekki mat á vandamálum barnanna. Allir talmeinafræðingamir skoðuðu allar at- hugasemdir foreldra.Við flokkunina höfðu þeir aðgang að aldri bamanna, en hvorki að merk- ingum foreldra (7 eða 2), né kyni barnanna. Til þess að meta innbyrðis samræmi í flokkun tal- meinafræðinganna var reiknað út samhljóða- og meirihlutaálit. Til þess að meta þátt tilvilj- unar í innbyrðis samræmi í flokkun var notuð innanflokkafylgni (intraclass correlation) (17) fyrir stig erfiðleika, en kappastuðull (18) fyrir tegund erfiðleika. Niðurstöður Notuð voru öll gild svör við atriðinu um málörðugleika í aldurshópunum tveggja til sjö ára á spurningalista yfir atferli, það er 0,1 eða 2. I 50 af 56 skiptum bættu foreldar við skrifuðum athugasemdum eftir að hafa merkt við 1 eða 2. Meirihluti svarenda voru mæður eða yfir 90% (13). í töflu I kemur fram aldur og fjöldi barnanna í hverjum aldursflokki. Fjöldi einstaklinga dreifist nokkuð jafnt á aldursflokka ef þriggja ára böm eru undanskil- in. Taflan sýnir dreifingu svara foreldra eftir aldri barnanna. Langflestir foreldranna, eða rúmlega 87%, hafa engar áhyggjur af mál- þroska. I 12,6% tilvika merktu foreldrar við 1 eða 2 í öllum aldurshópum samanlagt. Dreifing svara gaf við fyrstu sýn til kynna að þeim fækki með hækkandi aldri sem teljast með málörðug- leika. Þessi tilhneiging reyndist langt frá því að vera marktæk (%2(5, N=444)=3,4, p=0,6)*. Á því aldursbili sem rannsakað var reyndist fjöldi foreldra sem hafði einhverjar áhyggjur af málþroska því ekki háður aldri bamanna. Foreldrar tilgreindu fleiri drengi (15,6%) en stúlkur (9,8%) þótt sá munur væri ekki fylli- lega marktækur (X2(L N=442)=3,3, p=0,07). Þetta kynhlutfall (1,5:1) er ekki dæmigert þeg- ar alvarleg frávik eru annars vegar, þar sem reiknað er með þremur til fjórum drengjum á móti hverri stúlku. Til þess að afla meiri upplýsinga um svör foreldra voru fjórir talmeinafræðingar fengnir til að flokka skriflegar athugasemdir þeirra eft- ir tegund (tal eða mál) og stigi erfiðleika (eðli- legur málþroski, væg eða alvarleg frávik), sem lýst var. Gott samræmi var í flokkun talmeina- fræðinga á tegund erfiðleika, en í 90% tilvika voru að minnsta kosti þrír þeirra sammála um flokkun á athugasemdum foreldra. Þetta var einnig metið með kappastuðli fyrir öll hugsan- leg pör talmeinafræðinga (1,2; 1,3; 1,4; 2,3; 2,4; 3,4). Kappastuðull reyndist breytilegur eft- ir pörum en að meðaltali 0,54 (0,32-0,77) sem er miðlungs samsvörun (18). I 72% tilvika reyndust athugasemdir foreldra vísa fyrst og fremst til tals en í 18% tilvika til máls, en óvíst í 10% tilvika, samkvæmt ofan- greindri flokkun talmeinafræðinga. Þær at- hugasemdir sem talmeinafræðingar flokkuðu undir tal vísuðu aðallega til framburðar, nokkr- um sinnum til stams, sjaldan til vansköpunar á talfærum og aldrei til raddvandamála. Mál vís- aði til athugasemda um verulega seinkaða mál-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.