Læknablaðið - 15.10.1998, Page 84
786
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
mega greina mikilvæga ástæðu
fyrir þessu frumvarpi en þar
segir: „Fyrir liggur að fram-
kvæmd af því tagi yrði gífur-
lega kostnaðarsöm og ekki
fyrirsjáanlegt að af henni geti
orðið á næstu árum, nema til
komi fjármögnun einkaaðila.“
Landlœknir bendir á að
engin slík kostnaðargreining
hefur séð dagsins Ijós, hvað
þá kostnaðar- og liagkvœmni-
greining. Upplýsingavœðingu
heilbrigðisþjónustunnar er
stillt upp gegn öðrum þáttum
hennar og gefið er í skyn að
fjárveitingar muni ekki fástfrá
hinu opinbera til slíkra upp-
lýsingakerfa en þess í stað
skuli framtak og fjármagn
einkaaðila virkjað. Spyrja má
hvort þær heilbrigðisstofnanir
sem safnað hafa heilsufars-
gögnum og varðveita þau verði
nauðbeygðar til að semja við
sérleyfishafann um afhend-
ingu gagna ef þær ætla sér að
upplýsingavæða sínar stofn-
anir. Ef lögjafinn ætlar sér á
annað borð að veita slíkt sér-
leyfi, hvers vegna er þá ekki
farið í útboð? Er það vísasti
vegurinn til að fá upplýsingar
um raunverulegt markaðsverð
gagnagrunns á heilbrigðis-
sviði.
Umsögn Tölvunefndar
um drög að frumvarpi til laga
um gagnagrunn á heilbrigðissviði
Hér er birtur sá hluti umsagnar Tölvunefndar sem nefndur er
í inngangi og hefur að geyma almennar athugasemdir nefnd-
arinnar við frumvarpsdrögin. Athugasemdir nefndarinnar við
einstakar greinar þeirra rúmast því miður ekki í blaðinu og
verður að vísa til þess að Heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið hyggst birta á heimasíðu sinni allar umsagnir sem
ráðuneytinu hafa borist um frumvarpsdrögin. Heimasíða
ráðuneytisins er: http://www.stjr.is/htr
I
Inngangur
í framhaldi af bréfi heil-
brigðisráðuneytisins, dags.
31. júlí sl., leyfir Tölvunefnd
sér hér með að senda yður um-
sögn sína um drög að frum-
varpi til laga um gagnagrunn á
heilbrigðissviði, en drög þessi
eru dagsett 31. júlí 1998.
Tölvunefnd hefur fjallað
um frumvarpsdrögin á nokkr-
um funda sinna, og tekur
fram, að hún tjáir sig einvörð-
ungu um efni þeirra út frá per-
sónuverndarsjónarmiðum. Er
því í umsögn nefndarinnar
engin afstaða tekin til annarra
efnisatriða, sem til umræðu
hafa verið í tengslum við fyr-
irhugaða framlagningu gagna-
grunnsfrumvarpsins á Alþingi,
hvorki vísindalegra, siðferði-
legra né viðskiptalegra. Tölvu-
nefnd tekur fram, að umfjöll-
un hennar um gagnagrunns-
frumvarpið er tvíþætt. Annars
vegar er að finna umfjöllun
um almenn atriði, sem nefndin
telur að jafnan þurfi að hafa í
huga, þegar stofnað er til laga-
setningar af því tagi, sem hér
um ræðir. Hins vegar er um-
fjöllun um einstakar greinar
frumvarpsins.
II
Almennar
athugasemdir
II.1. Tölvunefnd vill í upp-
hafi umsagnar sinnar taka fram,
að á árinu 1995 var samþykkt
tilskipum ESB um vernd ein-
staklinga að því er varðar
meðferð persónuupplýsinga
og frjálsan flutning slfkra upp-
lýsinga, þ.e. DIRECTIVE 95/
46/EC OE THE EUROPEAN
PARLIAMENT AND OF THE
COUNCIL of 24 October
1995 on the protection ofindi-
viudals with regard to the pro-
cessing of personal data and
on the free movement of such
data. I 1. mgr. 32. gr. tilskip-
unarinnar segir svo í enskum
texta hennar:
„Member States shall bring
into force the laws, regula-
tions and administrative pro-
visions necessary to comply
with this Directive at the latest
at the end of a period of three
years from the date of its
adoption.“
Náðst hefur samkomulag
milli EFTA og ESB, sem leiðir
til þess, að umrædd tilskipun
verður felld undir EES samn-
inginn, en af því leiðir, að efn-
isákvæði tilskipunar ESB Jiarf
að leiða í lög hér á landi. I því
felst, að almenn löggjöf um
meðferð persónuupplýsinga
þarf að vera í samræmi við