Læknablaðið - 15.10.1998, Qupperneq 86
788
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
væri að ná fram, þegar hann
gaf upplýsingarnar á viðkom-
andi stöðum.
Það er og hefur lengi verið
meginmarkmið vestrænnar
löggjafar um persónuvernd að
sporna við því, að hægt sé að
ná fram slíkri heildarmynd af
þegnum þjóðfélagsins, sem
hér var nefnd. Er það gert með
því að banna í lögum sam-
tengingu viðkvæmra persónu-
upplýsinga, nema í algjörum
undantekningartilvikum og að
undangengnu umfangsmiklu
hagsmunamati, þar sem aðal-
áherslan liggur á því að
tryggja, að einstaklingshags-
munir séu ekki fyrir borð
bornir. Ekki endilega vegna
þess að þær upplýsingar sem
fram koma, séu þeim manni til
hnjóðs, sem þær varða, heldur
miklu fremur vegna þess við-
horfs, að þær upplýsingar eigi
ekki að vera öðrum aðgengi-
legar, sem sanngjamt er og
eðlilegt að leynt fari.
II.4. Tölvunefnd tekur fram,
að drög þau, sem nú liggja
fyrir að frumvarpi til laga um
gagnagrunn á heilbrigðis-
sviði, ganga lengra í þá átt að
tryggja persónuvernd, heldur
en frumvarp sama efnis, sem
lagt var fram á síðasta löggjaf-
arþingi gerði. I því sambandi
telur Tölvunefnd þrjú atriði
skipta mestu máli.
I fyrsta lagi er í núverandi
frumvarpsdrögum lagt til
grundvallar, að einstaklingur-
inn sjálfur eigi forræði á því,
hvort upplýsingar um hann
fari inn í hinn miðlæga gagna-
grunn eða ekki, og felst í því
mikil réttarbót. Eins og síðar
verður rakið í umsögn þessari
telur Tölvunefnd þó, að ýms-
um álitaefnum í þessu sam-
bandi sé ósvarað, og er þar um
að ræða álitefni sem nauðsyn-
legt er að tekin verði afstaða
til í væntanlegri löggjöf.
í öðru lagi telur Tölvunefnd
miklu máli skipta fyrir per-
sónuverndina það fyrirkomu-
lag, sem frumvarpsdrögin
gera ráð fyrir, sbr. 3. tl. 5. gr.
þeirra, að skráning og úr-
vinnsla heilsufarsupplýsinga
verði framkvæmd eða henni
stjórnað af fólki með starfs-
réttindi á sviði heilbrigðis-
þjónustu. Er það nánar áréttað
í 2. mgr. 7. gr. frumvarpsdrag-
anna, að það séu starfsmenn
viðkomandi heilbrigðisstofn-
ana eða sjálfstætt starfandi
heilbrigðisstarfsmenn, sem
búa skulu upplýsingar til
flutnings í gagnagrunninn.
Kemur sú skýring fram í at-
hugasemdum við 7. gr., að
mikilvægt sé að tryggja, að
starfsmenn væntanlegs rekstr-
arleyfishafa fjalli ekki á neinu
stigi um persónutengdar upp-
lýsingar.
í þriðja lagi telur Tölvu-
nefnd það ótvírætt horfa til
bóta, að eftirlit með fram-
kvæmd væntanlegra laga um
gagnagrunn á heilbrigðissviði
verði falið óháðum eftirlitsað-
ila, þ.e.a.s. Tölvunefnd. Eigi
að síður telur nefndin, að
ýmsum spurningum varðandi
hlutverk hennar sé ósvarað í
frumvarpinu, og verður nánari
grein gerð fyrir því síðar.
Læknablaðið á netinu:
http://www.icemed.is/laeknabladid