Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1998, Page 96

Læknablaðið - 15.10.1998, Page 96
796 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 byggðum á Egilsstaðakerfinu í einn gagnabanka hér á landi og fá reglulegar upplýsingar um heilsufar og vinnubrögð lækna. Ég hef talað fyrir því í 10 ár að koma upp slíkum gagnabanka án nokkurra við- bragða nokkurs staðar frá fyrr en nú á síðustu mánuðum að doktor Kári Stefánsson kom fram á völlinn og sér notkun- armöguleika slíks gagnabanka. Aðrar heilsufarsupplýsingar í landinu liggja hins vegar ekki fyrir á jafn aðgengilegan, skipulegan og vísindalegan hátt og í Egilsstaðakerfinu, sem ég lýsti hér að framan. Gagnsemi og áreiðanleiki þeirra upplýs- inga sem finna má annars stað- ar hefur ekki verið metinn. Hvernig önnur upplýsingakerfi sem eru í notkun á heilsu- gæslustöðvum, læknastofum og á sjúkrahúsunum reynast er ekki nægilega þekkt. Ég var einn af þeim sem vann upplýsingar úr sjúkra- skýrslum, til að setja inn í Egilsstaðakerfið, á nokkrum stöðum þar sem ég starfaði úti á landsbyggðinni fyrir meir en 10 árum síðan. Ég get sagt ykkur hér og nú, og ég veit að margir eru sammála mér, að það er ótrúleg vinna, því að upplýsingar sem færðar eru í sjúkraskýrslur eru oft afar óvísindalegar, oft ónákvæmar og gloppóttar, faldar innan um orðaflóð og óljósar fullyrð- ingar. Hvernig á ég að túlka þær og vinna úr þeim? Vinnan við að ná upplýsingum út úr sjúkraskýrslum er gríðarleg og þarf að vinna, ef hún er þá unnin, á strangvísindalegan hátt til að gagn sé af og gæta þess að öll skilmerki vísinda- legra vinnubragða séu upp- fyllt. Upplýsingar úr sjúkra- skýrslum verða ekki að verð- mæti fyrr en farið hefur verið höndum um skýrslurnar á vís- indalegan og skipulegan hátt. Læknar og margir aðrir vita mæta vel að greiningar eru ekki alltaf nákvæmar og stundum hreinlega rangar og allt þetta er að finna í sjúkra- skýrslum í belg og biðu. Sá þáttur sjúkraskýrslunnar sem þrátt fyrir allt er áreiðanleg- astur er greiningin og með- ferðin og líklega frekar með- ferðin, en þá gerist það oft í sjúkraskýrslum að upplýsing- ar um meðferð vantar og hvað þá upplýsingar um árangur meðferðar. Inn í flestar sjúkraskýrslur hvort sem þær eru á pappír eða í tölvu vantar síðan allar upplýsingar um einstakling- inn sjálfan. Einfaldir hlutir eins og hæð og þyngd eru ekki til staðar, hvað þá hárlitur, augnlitur, líkamsbygging, menntun, atvinnuferill, hjóna- band, börn, skilnaðir og bú- setuflutningar. Ef við ætlum virkilega að vinna með heild- stæðar upplýsingar um ein- staklinginn þá þurfum við að fá þessar upplýsingar líka til að meta áhrif á heilsu og heilsufar. En það er þrátt fyrir þessi orð hægt að komast langt með upplýsingar um greiningu sjúkdóms og með- ferð til að hafa gagn af gagna- banka. Ljóst er að semja verður forrit sem er ígildi Egilsstaða- forritsins í söfnun vísinda- legra gagna með þægilegu og auðveldu viðmóti fyrir heil- brigðisstarfsfólk. Við þurfum á þessu forriti að halda fyrir heilbrigðiskerfið okkar í heild sinni með eða án gagnabanka, en að öllu óbreyttu er ekki ljóst hver fjármagnar þann kostnað sem því fylgir. I mín- um huga tekur langan tíma að þróa og prófa slíkt kerfi til að vera viss um að það þjóni sín- um tilgangi, vísindalegt, þjált og einfalt. Afrakstur minn 250 þúsund samskipti 50 þúsund einstak- linga við heilsugæsluna náði yfir eitt ár. Framreiknað eru því 1,2-1,4 milljónir samskipta á ári við heilsugæsluna utan sjúkrahúsa, það er að segja við heimilislækna og sérfræð- inga! Þetta eru miklar upplýs- ingar að vinna með og kemur til með að kosta miklar upp- hæðir að flokka þær og aga vinnubrögð heilbrigðisstarfs- manna. Afrakstur af gagna- banka sem þessum gæti samt orðið okkur öllum til góðs. Hvað er að gerast annars staðar? Það eru ekki margir, hvorki hér á landi né erlendis, sem hafa reynslu af söfnun gagna í gagnabanka. Aðallega hefur söfnunin átt sér stað í kringum heilsugæslustöðvar enda upp- lýsingaflæðið þar feikimikið. Talið er að þar sem heilsu- gæslukerfi sé virkt sé hægt að leysa um 90% af öllum heilsu- kvörtunum þar. Það hefur því verið mikil þörf á því að safna upplýsingum og greina hvað verið sé að gera í heilsugæsl- unni og hvaða meðferðarúr- ræðum og greiningaraðferð- um sé rétt að beita. Bæði hér á landi og erlendis er samt að finna stofnanir og rannsóknarstofur í heilbrigð- isvísindum, sem hafa að meg- inmarkmiði eða samhliða markmiði að safna afmörkuð- um upplýsingum um einstak- linga. Þessar upplýsingar hafa síðan verið notaðar til vís- indarannsókna sem margar hverjar hafa reynst stórmerk- ar. Menn hafa sett fram hug- myndir hér á landi og erlendis um notkun á heilsukortum,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.