Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1999, Síða 31

Læknablaðið - 15.05.1999, Síða 31
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 415 sníkjudýrasjúkdómurinn meðal barna í Banda- ríkjunum og tíðni hans er hærri meðal barna en fullorðinna (2). Lyme-sjúkdómurinn finnst út um allan heim. I Evrópu er álitið að tugir þúsunda einstaklinga sýkist af Lyme-sjúkdómnum á hverju sumri, einkum í Þýskalandi, Austurríki, Sviss, Frakk- landi og Svíþjóð. Greint hefur verið frá tilfell- um í nánast öllum löndum Evrópu (3,4). Lyme- sjúkdómurinn hefur einnig greinst í Kína, Jap- an og Ástralíu (5-7) Lyme-sjúkdómurinn getur komið fram í margbreytilegri mynd (protean) og er þar skír- skotað til gríska guðsins Prótevs, sem var sjáv- arguð og gat breytt sér í allra kvikinda líki og þannig smogið úr greipum þeirra sem reyndu að fanga hann. Þessi þjóðsagnakenndi blær hefur skyggt á skilning manna á Lyme-sjúk- dómnum, enda hefur B. burgdorferi haft yfir sér ákveðna dulúð. Þó enn sé ýmislegt óljóst um Lyme-sjúkdóminn, er hann þó áþreifanlegri en Prótevs og auðsigranlegri. Klínísk einkenni sjúkdómsins geta verið breytileg milli Banda- ríkjanna annars vegar og Evrópu/Asíu hins vegar. Líklegasta skýringin á því er mismun- andi sýkingarhæfni ólíkra undirflokka B. burg- dorferi. Algengasta birtingarmynd sjúkdóms- ins í öllum heimsálfum er flökkuroði. Greining á Lyme-sjúkdómi er fyrst og fremst byggð á nákvæmri sjúkrasögu og líkamlegum einkenn- um. Viðeigandi rannsóknir geta stutt klíníska greiningu (8). Sjúkratilfelli Fjórtán ára gamall drengur leitaði til heilsu- gæslulæknis vegna vökvasöfnunar í vinstri hnélið. Fjórum dögum fyrir skoðun fór að bera á vaxandi bólgu og vökva í hnénu. Drengurinn hafði nokkru áður hlotið vægan hnykk á hnéð við hjólabrettaiðkun. Á heilsugæslustöð var stungið á liðnum og dregnir út 56 ml af ljós- gulum liðvökva sem var sendur í ræktun. Næsta dag leitaði drengurinn aftur til síns heilsugæslulæknis, enda aftur kominn vökvi í liðinn. Hann var hitalaus en verkjaði við að stíga í fótinn. Blóðsýni sem tekin voru á heilsu- gæslustöðinni sýndu hvít blóðkorn 12.500 x 10E9/L, CRP 10 mg/L, blóðflögur 366 x 10E9/L og blóðflöguskilun (hematocrit) 0,42 L/L. Ræktun var enn neikvæð. Hann var sendur á Barnaspítala Hringsins til frekari skoðunar. I fyrri sögu kom fram að hann hafði bólgnað upp á hægri olnboga þremur mánuðum áður. Þau meiðsli voru rakin til falls á hjólabretti. Hann er almennt hraustur, á tvö yngri systkini, sem bæði eru hraust. Móðir er með liðkvilla- sóra og móðuramma með iktsýki. Systurdóttir móður er með iktsýki frá bamsaldri. Drengur- inn notar engin lyf að staðaldri en hefur of- næmi fyrir grasi. Drengurinn er búsettur á íslandi ásamt fjöl- skyldu sinni. Hann bjó áður erlendis; í New York, Bandaríkjunum fyrstu tvö ár ævinnar, í Þýskalandi frá fimm til 11 ára aldurs og í Mary- land, Bandaríkjunum frá 11 til 13 ára aldurs. Fjölskyldan var tvívegis erlendis í leyfi það ár sem hann veiktist, fyrst á Flórída, Bandaríkjun- um sjö mánuðum fyrir upphaf veikindanna og í Normandí, Frakklandi þremur mánuðum fyrir upphaf veikindanna. Við skoðun var pilturinn frísklegur, húð heil og án útbrota. Hiti var 37°C, þyngd 55 kg og hæð 170 cm. Mikill vökvi var í vinstra hné, enginn roði á húð yfir liðnum. Hann gat ekki rétt fyllilega úr hægri olnboga. Líffærastækk- anir þreifuðust ekki og skoðun var að öðru leyti eðlileg. Röntgenmynd staðfesti vökvasöfnun í liðn- um en engar beinbreytingar sáust. Mælingar á ANA (anti-nuclear antibody), C3, C4, CH50 og RF (rheumatoid factor) voru allar innan eðli- legra marka. Veirumótefni gáfu ekki markverð- ar upplýsingar. PCR (polymerase chain reac- tion) fyrir klamydíu í þvagi var einnig nei- kvætt. Antistreptólýsín O (ASO-títer) var lág- ur, sem og mótefni gegn Yersenía (gerð 3 og 9). Liðástunga á vinstra hné, leiddi í ljós mikið af hvítum blóðkornum í liðvökvanum eða 55.400 x 10E6/L, einkjarnafrumur 10%, fjöl- kjarnafrumur 90% , rauð blóðkorn voru 2.800 x 10E6/L og vottur af kalsíum-pýrófosfat krist- öllum. Niðurstaða á liðvökvarannsókn benti til bólgusvörunar, annað hvort sýkingar eða gigt- sjúkdóms. Áverki var talinn ólíklegri orsök. Liðvökvaræktanir voru allar neikvæðar og voru sýklalyf ekki gefin. Augnskoðun var eðlileg og segulómun stað- festi frekar fyrri röntgengreiningu. Á þriðja degi innlagnar var liðástunga end- urtekin. Dregnir voru út 65 ml af liðvökva. Fjöldi hvítra blóðkorna í liðvökvanum var áfram mikill eða 58.400 x 10E6/L, einkjarna- frumur 8%, fjölkjarnafrumur 92% og fjöldi rauðra blóðkorna einnig aukinn eða 5.000 x 10E6/L. Gefin var Triamcinolonum innspýting (20 mg).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.