Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.05.1999, Side 96

Læknablaðið - 15.05.1999, Side 96
476 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 s Iðorðasafn lækna 111 Pétur Hannesson, læknir, sendi tölvupóst vegna um- fjöllunar um interventional radiology (sjá 108. og 110. pistil) og vildi vekja athygli á því að heitið röntgenfræði væri nú orðið úrelt sem heiti á radiology. Hann benti á að notkun röntgengeisla skipaði nú lægri sess í sérgreininni en verið hefði. Aðrar rannsóknar- aðferðir, svo sem ómun (ultra- sound) og segulómun (nuclear magnetic resonance) hefðu fengið meira vægi og nú væri sérgreinin gjarnan nefnd myndgreining. Geislafræði Um heitin radiologist (geislalæknir) og radiogra- pher (röntgentæknir) var fjall- að í 73. pistli (Lbl. 1996; 82: 80). Vakin er athygli á því vegna þeirrar ábendingar Péturs að röntgenlæknar séu nú nefndir myndgreiningarlækn- ar. Heitið er mjög lýsandi, fyrir þá sem til þekkja, og bendir á myndgreininguna sem einn aðalþáttinn í starfi geislalækna. Það er þó að mati undirritaðs of langt, framandi fyrir þá sem ekki til þekkja og kemur því eflaust til með að eiga erfitt uppdráttar hjá almenningi. Islenska heitið, geislalækn- ir, sem birtist í íðorðasafni lækna er einnig vissum ann- mörkum háð. Við fyrstu sýn virðist það vísa til læknis sem læknar með geislum, radio- therapist. Ur því mætti þó bæta með því að taka greining- arþáttinn inn og búa til heitið geislagreiningarlæknir, en þá er aftur komið að óæskilegri lengd. Aðdáendur stjörnu- stríðsþáttanna myndu vafalítið gera ráð fyrir að geislalæknir sé sá sem lækni með geislum. Rétt er að geta þess að Iðorða- safn lækna nefnir radiothera- pist geislunarsérfræðing. íhlutun íhlutun, inngrip og afskipti eru samheiti og tákna það að höfð eru afskipti af tiltekinni atburðarás. Heitinu interven- tional radiology er ætlað að afmarka það svið eða þá grein röntgenlækninga sem beitir ekki aðeins hlutlausum rann- sóknum heldur einnig íhlutun og meðferð. Röntgenlæknir- inn, sem setur stoðnet í æðar, er ekki lengur hlutlaus rann- sakandi, heldur er hann farinn að ástunda eða taka þátt í meðferð. Það er meðal annars þegar sótt er þannig inn á ný svið í starfsemi eða fræðigrein að þörf fyrir ný heiti getur komið upp. Myndgreining Heitið myndgreining lýsir vel þeim þætti í starfi röntgen- læknisins sem felst í því að greina sjúklegar breytingar með myndskoðun. Vafalítið er það einnig mjög gagnlegt til þess að beina athyglinni frá hefðbundnum röntgenmynd- um og að þeirri myndgrein- ingu sem byggir á notkun tölvutækni. Tölvusneiðmynda- tæknin gerir það meira að segja mögulegt að búa til og greina myndir sem aldrei hafa verið „teknar“. Röntgenlæknirinn er hins vegar ekki einn um að fást við myndgreiningu. Myndræn greining fer einnig fram við skoðun sjúkdómsbreytinga með berum augum eða í smá- sjá. Mynd- greining er reyndar bein þýðing á enska heitinu image analysis og jafnvel tölvur eru famar að fást við slíkt. Heitið image analyser, myndgreinir, vísar til dæmis í tölvubúnað sem getur gert mælingar eða aðrar athuganir á ákveðnum tegundum mynda. Oheppilegt væri því ef heitið myndgreining væri tekið frá til þess að nota það eingöngu um iðju röntgenlæknisins. Með útbreiðslu stafrænnar myndatöku (digital photo- graphy) munu myndvinnsla og myndgreining vafalítið breiðast út til tleiri sviða rann- sókna og lækninga. Að lokunt má benda á að samsetningin íhlutunar- myndgreining er hvorki sér- lega lipur né lýsandi. Serum marker I tölvupósti kom einnig beiðni um að taka enska heitið serum marker til skoðunar. Samhengið var það að hækk- un á magni (eða aukin þéttni) tiltekinna efna í sermi gæfi til kynna að vefjaskemmd hefði orðið. Slík efni væru þá nefnd á ensku serum markers of tissue damage. Upphaflega hugmyndin var sú að íslenska heitið yrði sermismerki. Is- leifur Olafsson, læknir, kom þá með tillöguna sermisvísir og er það heiti hér með lagt fram til umræðu. Ut frá þeirri hugmynd má síðan búa til heitin bólguvísir og vefja- skemmdavísir. Jóhann Heiðar Jóhannsson (netfang: johannhj@rsp.is)
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.