Læknablaðið - 15.05.1999, Qupperneq 96
476
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
s
Iðorðasafn lækna 111
Pétur Hannesson, læknir,
sendi tölvupóst vegna um-
fjöllunar um interventional
radiology (sjá 108. og 110.
pistil) og vildi vekja athygli á
því að heitið röntgenfræði
væri nú orðið úrelt sem heiti á
radiology. Hann benti á að
notkun röntgengeisla skipaði
nú lægri sess í sérgreininni en
verið hefði. Aðrar rannsóknar-
aðferðir, svo sem ómun (ultra-
sound) og segulómun (nuclear
magnetic resonance) hefðu
fengið meira vægi og nú væri
sérgreinin gjarnan nefnd
myndgreining.
Geislafræði
Um heitin radiologist
(geislalæknir) og radiogra-
pher (röntgentæknir) var fjall-
að í 73. pistli (Lbl. 1996; 82:
80). Vakin er athygli á því
vegna þeirrar ábendingar Péturs
að röntgenlæknar séu nú
nefndir myndgreiningarlækn-
ar. Heitið er mjög lýsandi, fyrir
þá sem til þekkja, og bendir á
myndgreininguna sem einn
aðalþáttinn í starfi geislalækna.
Það er þó að mati undirritaðs of
langt, framandi fyrir þá sem
ekki til þekkja og kemur því
eflaust til með að eiga erfitt
uppdráttar hjá almenningi.
Islenska heitið, geislalækn-
ir, sem birtist í íðorðasafni
lækna er einnig vissum ann-
mörkum háð. Við fyrstu sýn
virðist það vísa til læknis sem
læknar með geislum, radio-
therapist. Ur því mætti þó
bæta með því að taka greining-
arþáttinn inn og búa til heitið
geislagreiningarlæknir, en þá
er aftur komið að óæskilegri
lengd. Aðdáendur stjörnu-
stríðsþáttanna myndu vafalítið
gera ráð fyrir að geislalæknir sé
sá sem lækni með geislum.
Rétt er að geta þess að Iðorða-
safn lækna nefnir radiothera-
pist geislunarsérfræðing.
íhlutun
íhlutun, inngrip og afskipti
eru samheiti og tákna það að
höfð eru afskipti af tiltekinni
atburðarás. Heitinu interven-
tional radiology er ætlað að
afmarka það svið eða þá grein
röntgenlækninga sem beitir
ekki aðeins hlutlausum rann-
sóknum heldur einnig íhlutun
og meðferð. Röntgenlæknir-
inn, sem setur stoðnet í æðar,
er ekki lengur hlutlaus rann-
sakandi, heldur er hann farinn
að ástunda eða taka þátt í
meðferð. Það er meðal annars
þegar sótt er þannig inn á ný
svið í starfsemi eða fræðigrein
að þörf fyrir ný heiti getur
komið upp.
Myndgreining
Heitið myndgreining lýsir
vel þeim þætti í starfi röntgen-
læknisins sem felst í því að
greina sjúklegar breytingar
með myndskoðun. Vafalítið er
það einnig mjög gagnlegt til
þess að beina athyglinni frá
hefðbundnum röntgenmynd-
um og að þeirri myndgrein-
ingu sem byggir á notkun
tölvutækni. Tölvusneiðmynda-
tæknin gerir það meira að
segja mögulegt að búa til og
greina myndir sem aldrei hafa
verið „teknar“.
Röntgenlæknirinn er hins
vegar ekki einn um að fást við
myndgreiningu. Myndræn
greining fer einnig fram við
skoðun sjúkdómsbreytinga
með berum augum eða í smá-
sjá. Mynd-
greining er
reyndar bein
þýðing á
enska heitinu
image analysis og jafnvel
tölvur eru famar að fást við
slíkt. Heitið image analyser,
myndgreinir, vísar til dæmis
í tölvubúnað sem getur gert
mælingar eða aðrar athuganir
á ákveðnum tegundum mynda.
Oheppilegt væri því ef heitið
myndgreining væri tekið frá
til þess að nota það eingöngu
um iðju röntgenlæknisins.
Með útbreiðslu stafrænnar
myndatöku (digital photo-
graphy) munu myndvinnsla
og myndgreining vafalítið
breiðast út til tleiri sviða rann-
sókna og lækninga.
Að lokunt má benda á að
samsetningin íhlutunar-
myndgreining er hvorki sér-
lega lipur né lýsandi.
Serum marker
I tölvupósti kom einnig
beiðni um að taka enska heitið
serum marker til skoðunar.
Samhengið var það að hækk-
un á magni (eða aukin þéttni)
tiltekinna efna í sermi gæfi til
kynna að vefjaskemmd hefði
orðið. Slík efni væru þá nefnd
á ensku serum markers of
tissue damage. Upphaflega
hugmyndin var sú að íslenska
heitið yrði sermismerki. Is-
leifur Olafsson, læknir, kom
þá með tillöguna sermisvísir
og er það heiti hér með lagt
fram til umræðu. Ut frá þeirri
hugmynd má síðan búa til
heitin bólguvísir og vefja-
skemmdavísir.
Jóhann Heiðar Jóhannsson
(netfang: johannhj@rsp.is)