Læknablaðið - 15.05.1999, Side 99
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
477
Samningar Tryggingastofnunar ríkisins
um meðferð íslenskra sjúklinga
á bandarískum sjúkrahúsum
Hægt hefur verið að annast
hluta hjartaaðgerða á börnum
á Landspítalanum frá því í
mars 1997, en áður urðu öll
börn sem þurftu á slíkum að-
gerðum að halda að gangast
undir þær erlendis. Undanfar-
ið hefur fyrirkomulag hjarta-
aðgerða á íslenskum bömum
verið þannig að einföldustu
aðgerðirnar hafa verið fram-
kvæmdar á Landspítalanum,
flóknari aðgerðir í Lundúnum
og þær flóknustu í Boston.
Þjónustan í Boston hefur verið
dýrari en í Lundúnum.
Nú hefur Tryggingastofnun
ríkisins (TR) samið við
Children’s Hospital í Boston
um lægra verð en áður, með
það fyrir augum að geta sent
þangað öll börn sem þurfa á
hjartaaðgerð að halda og ekki
er unnt að sinna á Landspítal-
anum.
Children’s Hospital var á
síðasta ári útnefndur besti
barnaspítalinn í Bandaríkjun-
um (1) og hefur raunar hlotið
þessa útnefningu níu ár í röð.
Þar er stærsta hjartaaðgerða-
miðstöð fyrir börn þar í landi
og eru framkvæmdar um eitt
þúsund hjartaaðgerðir á ári.
Þjónustu sjúkrahússins er
þannig háttað að um 5% sjúk-
linga þess koma erlendis frá,
en um þriðjungur bama sem
Höfundar starfa viö Tryggingastofnun
ríkisins.
gangast þar undir hjartaað-
gerðir kemur frá útlöndum.
Samningurinn hefur það í
för með sér að hægt er að
tryggja íslenskum börnum
sem þurfa að gangast undir
flóknar hjartaaðgerðir þjón-
ustu þar sem árangurinn er
bestur. Með samningnum er
komið á beinni og virkari
tengslum milli TR og banda-
ríska sjúkrahússins, sem
tryggir börnunum og aðstand-
endum þeirra skilvirkari og
persónulegri þjónustu en áður.
Samvinna milli barnahjarta-
lækna á Landspítalanum og
barnahjartalækna og hjarta-
skurðlækna á Children’s Hos-
pital var hins vegar mjög góð
fyrir og var raunar kveikjan að
því að farið var út í þessar
samningaviðræður.
Samningurinn gefur jafn-
framt bætta möguleika á með-
ferð bama á Children’s Hos-
pital á fleiri sviðum læknis-
fræðinnar. Aðrar sterkar hliðar
spítalans eru til dæmis með-
ferð taugasjúkdóma og ill-
kynja sjúkdóma og bæklunar-
aðgerðir fyrir börn.
TR hefur einnig náð sam-
koinulagi við annað banda-
rískt sjúkrahús, Mayo Clinic í
Rochester, Minnesota, varð-
andi meðferð íslenskra sjúk-
linga. Þangað hafa undanfarið
verið sendir sjúklingar með
erfiða flogaveiki, sem þurft
hafa að gangast undir sér-
hæfðar aðgerðir á heila til að
draga úr flogunum. Árangur
þessara aðgerða hefur verið
mjög góður, enda var þjónusta
taugalækninga- og tauga-
skurðdeilda sjúkrahússins út-
nefnd sú besta í Bandaríkjun-
um á síðasta ári (1). Þótt farið
hafi verið út í viðræður við
sjúkrahúsið vegna flogaveiki-
aðgerðanna, þá er þetta sam-
komulag ekki einskorðað við
þær. Þarna er til dæmis boðið
upp á árangursríkar aðgerðir
við Parkinsons sjúkdómi og
sjúkrahúsið er í fremstu röð á
ýmsum öðrum sviðum læknis-
fræðinnar, sem gæti komið ís-
lenskum sjúklingum sem ekki
er hægt að bjóða fullnægjandi
meðferð hérlendis til góða.
Meðferð á hátæknisjúkra-
húsum í bestu röð er mjög
kostnaðarsöm. Tilgangur TR
með samningum við slík
sjúkrahús er sá að tryggja ís-
lenskum sjúklingum sem
þarfnast mjög sérhæfðrar með-
ferðar við erfiðum sjúkdóm-
um sem besta meðferð á sem
viðráðanlegustu verði. Er það
mat okkar að mikið hafi áunn-
ist í þá veru með framan-
greindum samningum.
Sigurður Thorlacius
Una Björk Omarsdóttir
Karl Steinar Guðnason
HEIMILDIR
1. Exclusive rankings. 1998 Annual
Guide. U.S.News & World Report,
27. júlí 1998.