Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1930, Blaðsíða 19
Stefnir]
113
Samvinna og sjálfstæði.
ingarlegri velgengni til styrktar.
Eðlisfar þjóðarinnar hefir fyr og
eíðar vísað þá leiðina, að takmark-
ið væri að vera sjálfum sér nóg-
Ur» og strjálbýli íslenzkra byggða
nieð öllum örðugleikum óhag-
stæðra samgangna, hefir á.liðnuin
■tímum leitt til einræningsháttar
og staðið sem steinn í vegi fyrir
félagslegri þróun.
Nú er svo komið að samgöngu-
bætur síðustu ára hafa víðast rutt
í burt þessum steini, xært lands-
fólkið óbeinlínis saman, og þar
með gert skilyrðin fyrir meiri, fjöl
bfeyttari og fullkomnari sam-
vinnu hagstæðari en verið hefir.
Svo er líka komið, að flestir eða
abir þeir, sem unna fjárhagslegu
ejálfstæði einstaklinga sjá og
skilja, að fullkomin og viturleg
samvinna í' ýmsum myndum er
eitt megin lundirstöðuatriði þess
að allur almenningur geti haft'
von um, að ná því takmarki að
,vera fjárhagslega frjáls.
kegar þessa er gætt og það jafn-
framt haft í huga, að á þessu sviði
er vandþræddur hinn rétti vegur,
tá er auðsætt, að hjá því verður
ei-&i komist í þessu sambandi, að
faka til athugunar hverju sú sam-
vinna, sem vér höfum, hefir til
Ve&ar komið, og hvort hún muni
vera á réttri leið, að því takmarki,
að gera allan almenning fjárhags-
lega og andlega sjálfstæðan og
stuðla að þroskun þess siðgæðis,
sem jafnan byggir á’ lögmáli
drengskapar og réttlætis í öllum
félagslegum viðskiftum.
Sú samvinna sem hér á landi
hefir einkum náð þroska, og sér-
staklega er höfð í huga, þegar rætt
er um samvinnumál, er aðallega
verzlunar samvinna. En hún er nú
orðin allt að 50 ára gömul í sum-
um héruðum landsins. Að þessi
greHn samvinnu kæmist fyrst á
legg er sennilega hægt að rekja til
þeirra orsaka, að á verzlunarsvið-
inu hefir kúgun erlendra yfirráða
gengið lengst og þörfin því mest
til félagslegra aðgerða. Þessu hafa
ýmsir beztu menn landsins, sem
upni voru á síðari helmingi síð-
ustu aldir, veitt eftirtekt, og því
hafist handa um stofnun kaup-
félaga almenningi til hagsbóta. Er
alkunnugt hve margvíslega örðug-
leika ýmsir þeirra áttu við að etja
í viðskiftunum við erlendar sel-
stöðu verzlanir annars vegar, en
tortryggni almennings hins vegar.
Lánsfjárskortur, húsaskortur og
margt fleira áttu sinn þátt í því
að gera aðstöðuna svo erfiða, að
ekkert annað en óbifanleg sann-
færing fyrir réttum málstað, og ör-
uggur vilji einlægrar fórnfýsi,
8