Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1930, Blaðsíða 60
154
Últrafjólubláir geislar og jurtagróður.
[Stefnir
amans. Sé tilfinnanlegur skortur
á sólarljósi, fara efnaskifti lík-
amans meira og minna úr eðli-
legum skorðum.
í Bandaríkjum Ameríku hafa
verið gjörðar tilraunir með börn
úr fátækrahverfum stórborganna
ium afkastasemi við námið, á
þann hátt, að láta börnin fá heil-
næmt fæði í skólanum, fæði, sem
veitti líkama þeirra fullnægingu
þeirra efna, sem hann þarfnað-
ist. . Þetta verkaði undantekning-
arlaust þannig á börnin, að þau
urðu eljumeiri og afkastasamari
við námið. Athygli, skilningur og
táp tók miklum breytingum til
hins betra. Börnin urðu ekki að-
eins útlits betri, rjóðari í' kinnum
og fjörmeiri, heldur urðu þau
að dómi kennaranna blátt áfram
greindari en áður.
Áhrif sólarljóss á sálarlíf manna
og dýra.
Flestir munu hafa veitt því eft-
irtekt, að sólarljós og birta hefir
hin mestu áhrif á flest dýr. All-
ar skepnur verða daufari, dapr-
ari og fjörihinni í myrkri. Oft
flykkjast þær saman í hópa á
kvöldin, þegar nóttin er dimm. Er
engu líkara en að þeim sæki
geigur, og þau finni til meira ör-
yggis, ef fleiri eru saman. Ef
kuldi fylgir myrkrinu, sækir að
þeim drungi og svefn. Það er
kunnugt, að sum dýr liggja í
dvala kaldasta hluta vetrarins,
svo sem björninn. Er kallað, að
hann liggi í híði óg er þá kallað-
ur híðbjörn.
Áhrif sólarljóss, birtu og yls á
sálarlíf manna, eru ekki ósvipuð
þessu, sem lýst hefir verið um dýr-
in, en þau eru aðeins miklu
greinilegri og ákveðnari, þar sem
um menn er að ræða, og stendur
það í sambandi við það, að sálar-
líf þeírra er miklu þroskaðra. Sól-
skin og hæfilegur hiti hefir örv-
andi áhrif á sálargáfurnar. Undir.
áhrifum þess verða menn glað-
sinna og bjartsýnir, hugurinn
reifur og starfsfús. Fólk, sem býr
í sólríkum löndum, er miklu létt-
lyndara, fjörugra og kvikara í
hugsunum og hreyfingum en við
Islendingar.
í myrkri verða menn daufir eða
fjörlitlir; hugsunin verður slóf-
ari og stirðari en í birtu og yl.
Þrek og hugdirfð þverr, og oft
fyllir kvíði og vonleysi hugann.
Margir verða þunglyndir eða
jafnvel hugsjúkir í skammdeg-
inu, en ná sér aftur, þegar dag-
inn lengir.
Engan efa tel eg á því, að hið
langa skammdegi, skortur á ljósi