Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1930, Blaðsíða 82
176 Hnapparnir sem hurfu. [Stefnir
Kennarinn; Heyrðu Pjetur, hvað getur þú sagt mjer um Montblanc?
Pjetur: Pabbi og mamma nota bœði Montblanc lindarpenna.
Fyrir 1000 krónur getið þjer ekki keypt betri lindarpenna en
Montblanc-Masterpiece með 25 ára ábyrgð. Verð frá 30-55 kr.
um þetta, því ringlaðri varð hann
í höfðinu.
Hann snæddi nú morgunverð í
skyndi og kvaðst svo ætla að litast
um í nágrenninu, því að systir
hans hlyti að hafa gengið inn í
eitthvert annað gistihús til morg-
unverðar.
En hann fann hana hvergi.
Hann leit inn í mörg gistihús og
veitingastaðf og svipaðist um á
aðalgötunum, en hún sást hvergi.
Viðburðurinn var nú farinn að
stíga honum til höfuðsins og hann
vildi fyrir hvern mun komast fyr-
ir, hvernig á ])essu stæði. Hann
spurði því hvern sem hann mætti,
hvort þeir hefði séð stúlku, sem
hann lýsti fyrir þeim eins og hann
væri að lýsa Helenu fögru eða
Kleópötru Egiptalandsdrotning,
en sú stúlka hafði ekki borið fyrir
neinn.
Þegar komið var undir kvöld
fór hann í búð, keypti sér ómerki-
lega ' skyrtuhnappa og hélt svo
heim til gistihússins þreyttur og
leiður á þessu öllu saman. Þangað
hafði stúlkan alls ekki komið og
var hann ekkert hissa á því. Hann
bjóst ekki við að sjá hana fram-
ar á æfinni. Spurði hann að því,
hvort nokkuð hefði horfið, og létti
mikið við að heyra, að enginn
hafði'' orðið var við neitt þess
háttar.