Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1930, Page 44

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1930, Page 44
138 Hætturnar í hafdjúpunum. [Stefnir Það draup olía úr skipsskrokkn- um, og þegar allt þetta hrærðist saman, sjórinn, olían og leirinn, varð úr því hlveg ógagnsær graut- ur. Ljósin dugðu þeim því ekki, og þeir urðu að starfa í kol-svarta- myrkri. Það var ógurlegt líf. En dag og nótt var unnið, þegar nokk- ur tiltök voru vegna vetrarveð- ursins. Þeir voru að reyna að bjarga öðrum, en oft urðu þeir að bjarga hvor öðrum, og sífellt að berjast af alefli við að bjarga sínu eigin lífi, því að hvert fótmál var hættulegt. Stundum var búningur þeirra svo frosinn, að það varð að höggva hann utan af þeim. Stundum komu þeir baðaðir í svita, eftir einhverja orustuna upp á líf og dauða. Hjálparskipið hét s/s „Falcon“. Á því var allur sá útbúnaður til björgunar, sem til er, og þar var saman komið mesta einvalalið kaf- ara, sem nokkurn tíma hefir ver- ið á einum stað. Þar voru um 60 úrvals kafarar, sem buðu hjálp sína, er flotamálaráðherrann sen li út hjálparbeiðni. Flestir voru þeir frá flotanum sjálfum. Aðrir voru úr varaliði flotans. Og loks komu nokkrir annarsstaðar að. Allt voru þetta hugprúðir menn, en ekki all- ir jafn reyndir. Og það voru ekki rnerna 15 af þessum 60, sem veru- lega urðu að gagni. Sýnir það, hví- líkt voða-starf hér var að vinna. Jim Frazer festi krók í þung- an hlut, sem draga átti upp. Gaf hann merki um að taka í, en gætti þess ekki, að líftaug hans var föst við krókinn. Var hann því dreg- inn með miklum hraða upp. Þrýst- ingurinn minnkaði svo snögglega, að hann varð að hleypa út lofti til þess að fötin springi ekki utan af honum. Þannig var hann dreginn h. u. b. 80 fet. Þá losnaði hann allt í einu og hrapaði. Þrýstingurinn óx í skyndi án þess að hann fengi ráðrúm til þess að hleypa lofti inn, til þess að taka á móti. Þrýstingurinn „kreisti" hann og hann féll í ómeg- in. Hann hefir lýst því sjálfur, hvaða tilkenning hann hafði, áður en leið yfir hann. „Það voru ógurlegar kvalir“, segir hann. „Það var engu líkara en allur líkaminn ætlaði upp í höf- uðið á mér. Eg skil ekkert í því, að það skyldi ekki springa sundur. Það mun hafa bjargað lífi mínu, að talsvert vaf eftir af lofti í föt- unum. Annars.hefði þrýstingurinn áreiðanlega kreist öll innýflin upp í höfuðið á mér. Eg var strax dreg- inn upp“. Þrír menn sköruðu fram úr öll- um hópnum, sem þarna var sam-

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.