Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1930, Side 97

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1930, Side 97
Stefnir] Kviksettur. 191 annars að gera hingað að St. Ge- orges-húsinu ? Því var ekki auð- velt að svara. En Priam Farll var nú einu sinni svona gerður, að það voru í honum tveir menn. Annar var feiminn, og var fyrir löngu búinn að ráða við sig, að koma hvergi nærri nokkrum manni. En hinn var til í allt, reglulegur slarkari og æfintýra- maður, og góður með að vera í kunningsskap við allt mannkyn- ið. Og þessi síðari maður kom hin- um stundum í afskaplegan bobba. Það hafði t. d. verið þessi síð- ari maður, sem gekk ein$ og ekk- ert væri upp eftir Regent Street, og það til þess eins að komast í æfintýri með stúlku, sem bæri rauðar rósir í hattinum, og nú var fyrri maðurinn, feimni mað- urinn, að súpa seyðið. Farll fálmaði upp í hattinn, og í sama bili sá hann að stúlkan var með rauðar rósir í hattinum. Hann var kominn á flugstig með að taka til fótanna. En það var eins og hægri fóturinn vildi ekki hlýða. Og á næsta augnabliki heils- uðust þau með handabandi. »,Eg var farin að halda, að þér munduð ekki koma,“ sagði hún, »»en af því að eg vildi ekki missa AOalumboðsmaður CARL PROPPÉ Reykjavik Sími 385. Pósthólf 207. af sýningunni, þá brá eg mér inn á meðan eg beið“. „Hvers vegna bjuggust þér ekki við mér?“ spurði hann í van- trúarhreim. „Jæja,“ sagði hún. „Eg gat nú búist við því. Húsbóndi yðar var að deyja og þér hafið náttúrlega haft um margt að hugsa, og svo þetta, að svona viðburðir gera mann annars hugar.“ „Já, það er svo,“ sagði hann og fór að hugsa, að hann mætti til að tala varlega. Hann var al- veg búinn að gleyma því, að Farll var dáinn. „Hvernig vitið þér, að h^nn er dáinn?“

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.