Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.05.1934, Qupperneq 53
Stefnir]
St j órnmálaþættir.
51
leiðir það til hækkunar á kaupi og
til hárra bankavaxta. Til þess að
hamla móti óeðlilegri hagsveiflu
reynir því hver vitur stjórn, að
draga úr þessu með því, að fara
sér þá hægt. Það er löngu orðið
kunnugt, að á eftir svona tímum
kemur jafnan annað tímabil,
þegar deyfð er yfir öllu, lítið um
atvinnu og fáir, sem kæra sig um
eða þora að leggja í nokkur fyr-
irtæki. Þá á það opinbera að
komafram á sjónarsviðiðmeðþað,
sem það hefir safnað á góðu ár-
unum, og reyna þannig að halda
jafnvæginu.
Þet.a er nákvæmlega það, sem
stjórnin gerði á árunum 1924—
’27. Árin 1924 og 1925 voru góð-
æri, og þá var keppst við, að
borga skuldir. Atvinnuvegirnir
veittu næga atvinnu og engin þörf
á, að það opinbera gerðist þar
keppinautur. En síðan kom fjár-
kreppa, og þá hóf stjórnin miklar
framkvæmdir, sem þó hefðu orð-
ið miklu meiri, ef stjórnin hefði
ekki tekið við öllu í botnlausum
skuldum 1924, heldur getað lagt
upp féð.
Á árunum 1928—’31 var breytt
þvert gegn þessari undirstöðu-
kenningu allrar góðrar fjármála-
stjórnar. I góðærunum, þegar nóg
var eftirspurn eftir vinnukrafti og
peningum og þegar innflutning-
ur og umsetning var að komast í
mesta ógegnd, þá hóf stjómin
geipilegar framkvæmdir á öllum
sviðum. Hún lagði á háa skatta
og tæmdi lánstraustið og henti
öllu út í framkvæmdir í sam-
keppni við atvinnuvegina. Þetta
varð til þess, að kaupgjald hlaut
að spennast upp úr öllu valdi, of-
vöxtur hljóp í innflutninginn bæði
vegna innflutnings stjórnarinnar
sjálfrar og þó einkum vegna
þess stórfjár, sem stráð var út,
og óhugsandi var að bankavextir
gætu lækkað.
Þetta er svo stórt atriði, að
vert er að athuga það nokkru nán-
ar. Árferðið má sjá speglast í
verslunarumsetningunni.
Útflutt Innflutt
1928 80 milj. 64.4 milj.
1929 74.2 — 77 —
1930 60 — 72 —
1931 48 — 48.1 —
í sambandi við þetta má svo
athuga framferði stjórnarinnar í
fjármálunum.
Fjárl. útborg. umfram
1928 10,5 14,4 3,9
1929 10.9 18.4 7.5
1930 11.9 25.7 13.8
1931 12.8 18.2 5.4
4*