Sagnir - 01.04.1989, Side 42
Hilmar Garðarsson
að ótta og sjúklega ímyndun hjá
fólki.17 Þau fyrirbæri sem fólk eign-
aði göldrum reyndi Eggert að skýra
með aðstoð náttúrufræðinnar. Um
meint galdraveður í Reykjafirði
sagði hann:
Hvirfilbylurinn stafar af því, að
fjörðurinn er mjór, en að honum
liggja há fjöll með hnjúkum og
skörðum á báða bóga. í gegnum
þau kemst loftstraumurinn ekki
nema með sérstökum ofsa og
krafti. ... þyt og hljóðgangi, sem
heyrist langt að.18
Þegar tal náðist af viðkomandi
„galdramanni", kom í ljós að hann
var einungis gæddur góðum gáfum
en galdurs varð ekki vart hjá honum.19
Besta vörnin gegn galdri var að
mati Eggerts, hreinn guðsótti og
vandað líferni eða m.ö.o. skynsam-
legur hugsunarháttur og lífsvenjur.
Enda hafa, sagði hann, ýmsir galdra-
meistarar orðið að játa að skyn-
sömu fólki væri ekki hægt að vinna
mein með galdri. Skynsamir og
djarfir menn lausir við alla hjátrú og
hugaróra voru óhræddir við að taka
á móti galdramönnum með vel úti-
látnum löðrung svo dreyrði úr nös-
um þeirra en við það misstu þeir all-
an mátt samkvæmt hjátrúnni.20 Að
alþýðu trú var einnig gott ráð að
hýða galdramenn með brenninetlu.
Þetta fannst Eggerti hreint ekki svo
óskynsamlegt, því líklegt þótti hon-
um að galdralöngunin myndi dvína
ef slík hýðing væri sá tollur, sem
galdrameistararnir þyrftu að greiða
fyrir kukl sitt.21
Þótt ekki fari vantrú Eggerts á
galdri milli mála, varar hann menn
þó við því að afneita alfarið tilvist
anda og mætti þeirra. Það leggur
hann að jöfnu við að bera brigður á
guðs orð og að samþykkja skaðlega
villu „aðeins vegna þess að vor tak-
markaða skynsemi og ófullnægj-
andi heimspeki getur ekki gefið
skýringar á þeim hlutum, sem vor
alvísi skapari hefir talið, að væri
mönnunum fyrir beztu að halda
leyndum."22
Sveinn Pálsson sagði frá því að al-
þýða manna hefði álitið séra Snorra
Björnsson á Húsafelli rammgöldr-
óttan og trúað því að hann gæti vak-
ið upp draug og látið kölska sjálfan
þjóna sér. „Orðrómur þessi hefur
skapazt af því, að síra Snorri er
óvanalega vel að sér í eðlisfræði,
landafræði og sögu.“23 Ummæli
Sveins um Snorra minna á það, sem
Eggert Ólafsson sagði um galdra-
manninn í Reykjafirði. Eggert átti
þess kost að skoða nokkra þá, sem
sýkst höfðu af völdum galdurs. Ekki
greindi hann á þeim neina galdra-
veiki en taldi mennina alla veiklaða
og haldna þunglyndi, flogaveiki og
hugarórum, enn fremur slagi og
krapateygjum í innyflum. „Á öðrum
var engin sérstök sjúkdómseinkenni
að sjá, en þá skorti sýnilega skyn-
semi og þrótt á sál og líkama. ímynd-
að'ur galdur hafði sýkt þá ,..“24
Hannes Finnsson og Magnús Steph-
Galdra-Leifi.
„Þorieifur heiti eg Þórðarson,
þekktur af mönnum fínum:
Hafði eg aldrei þá heimsku uon
að hafna skapara mínum."
ensen fjalla fremur lítið um galdur
en samt er ljóst að hvorugur trúði á
hann. Hannes setti galdur óðar í
samband við hjátrú og hindurvitni
og sagði börn sín hæðast að galdra-
sögum.25 Magnús lofaði 18. öldina í
eftirmælum um hana, fyrir að „öll-
um ofsóknum fyrir kukl, öllum
brennum og líflátum saklausra fyrir
svonefndan galdur" var þá „öldungis
hætt“.26
Draumar og fyrirboðar
Trúðu upplýsingarsinnar á fyrir-
boða? Hannes Finnsson virðist ekki
hafa lagt trúnað á slíka hluti og ekki
er laust við að hann hæðist að Giz-
uri nokkrum sem þóttist kunna að
ráða flesta fyrirboða. Hannes sagði:
„Fyrir bólunni dreymdi hann ekki, ...
fyr en eptir að hún var víða geingin
...“27 Þetta kallast að vera vitur eftir á
og fannst Hannesi lítið til koma. Jón
Espólín kunni heldur ekki að meta
slíkar gáfur. Þóru nokkurri Helga-
dóttur vitraðist eitthvað í draumi
árið 1628, sem menn töldu boða
ófrið mikinn og hernað „enn þat var
hellst at lesti at þær vitranir skédu
allar eptir hernadinn, enn engar ádr,
oc var sídan ecki rænt þat er telja
megi hjér vid land .,."28 Austur í
Álftafirði dreymdi tvo menn að mána-
myrkvi sem þeir höfðu séð myndi
boða sótt og blóðsúthellingar. Þetta
vildu menn ekki bera brigður á, jafn-
vel þótt ósannaðist. Og fannst Jóni
það skiljanlegt þar sem slíkur hé-
40 SAGNIR