Sagnir - 01.04.1989, Side 44
Hilmar Garðarsson
dögum og jafnvel ársfjórðungum
saman og eftir því fara snjóalög.39
Við árið 1630 sagði Jón Espólín frá
sólmyrkva sem talinn var boða
meiri tíðindi en venja var vegna
þess hve óvenjulega litskrúðugur
hann var. Hann taldi sig þekkja or-
sökina og áleit litadýrðina stafa af
„dömpum ... er jafnann verda utar-
lega oc nedarlega í dampahvolfi ,..“40
Af framan sögðu má ljóst vera að
upplýsingarmönnum þótti trú al-
mennings á drauma og fyrirboða
vera að mestu úr lausu lofti gripin.
Það sem hjátrúin ætlar fyrirboða á
sér flest náttúrulegar skýringar, svo
sem halastjörnur.
Af draugum, álfum og
tröllum
í íslenskri þjóðtrú er til aragrúi af
alls konar yfirnáttúrulegum verum
hverra tilvist náttúruvísindin ekki
viðurkenna. Nefna má álfa, risa og
drauga. Var eðli þeirra með ýmsu
móti, sumar voru góðar en aðrar
illar. En lærðir menn á upplýsingar-
öld höfnuðu tilvist þeirra.
Þegar fávísa alþýðu skorti skiln-
ing á fyrirbærum náttúrunnar
kenndi hún þau illum öndum. Og
reyndu upplýsingarsinnar mjög að
finna skynsamleg rök fyrir því sem
almenningur áleit verk drauga eða
álfa. Eitt af því sem hreinsast þurfti
og betrast að mati Hannesar Finns-
sonar, var draugatrúin. Hann hafn-
aði tilvist drauga og sagðist oft hafa
séð draug, en ætíð reynt þá við nán-
ari athugun vera „einasta missýn-
ingar". Og reyndist svo um nábleika
loðna höfuðið sem strákhnokki
nokkur, Lýður að nafni, þóttist hafa
séð á heimili biskups. Hannes ráð-
lagði börnum sínum er þau þættust
sjá draug, að ganga þar að óhrædd
og kanna hvað það væri, því nátt-
úrulegar orsakir mætti ætíð finna
fyrir þess háttar „missýningum".41
Ef vansköpuð lömb fæddust voru
draugar og huldufólk talin valda
því, með því að þvælast fyrir augum
ánna. En þeir sem líta skynsamlega
á málin og það gera flestir að sögn
Eggerts Ólafssonar, vita að
Þær ær, sem ganga í fjörum og
eta þang og þara, fæða miklu oft-
ar vansköpuð lömb en hinar, sem
á grasi ganga, jafnvel þótt þær
gangi nærri sjó. í fjörunni er
margt stórra og smárra skorkvik-
inda. Þar eru einnig fuglar og
fiskar. Þetta ásamt gufum þeim,
er stíga upp í loftið, þegar heitt
er, getur auðveldlega skapað
ýmsar skrípamyndir í ímyndun
lambfullra áa.42
Náttúran sjálf orsakar sem sé þenn-
an vanskapnað í ánum en ekki álfar
og draugar enda tilvist þeirra ekki á
rökum reist að mati upplýsingar-
manna. En nú þykjast skyggnir
menn hafa séð drauga? Skyggnir
menn „sjá ekki drauga með augun-
um, heldur eru bæði þeir og aðrir,
sem slíkt skynja, sjúkir á einhvern
hátt,“ sagði Eggert.43
Jón Espólín sagði frá því að árið
1518 hafði Erlendur nokkur átt barn
með álfkonu. Var á þeim tímum
lagður trúnaður á sögur af því tagi.
En Jón var vantrúaður og kallaði
þetta „gamlar kerlingasögur".44
En hvað með tröllin? Sannar ekki
stafurinn langi í Hrútafirði og trölla-
þefurinn tilvist þeirra? Ekki fallast
upplýsingarsinnar á það. Jón Espólín
gat þess við árið 1666, að 20 álna
langan staf hefði rekið í Hrútafirði
og „eignudu menn tröllum, hvad
sem verit hefir med réttur."45 Trölla-
þefur sem menn segjast hafa fundið
42 SAGNIR