Sagnir - 01.04.1989, Side 49

Sagnir - 01.04.1989, Side 49
Lútherskur rétttrúnaður og lögmál hallæranna Lúther brennir hér lagasafn kaþólsku kirkjunnar, Summa theologia eftir Thomas Aquinas og páfa- bréf, árið 1520. Rétttrúnaðurinn gaf fólki ekki suigrúm til persónulegrar túlkunar á orðum ritn- ingarinnar heldur var því œtlað að lesa og lœra utanað hina einu réttu túlkun. Auðvitað má deila um þessa túlkun mína, enda er hún sett fram hér til umhugsunar, en ef við náum að lesa og túlka Vídalínspostillu á svipaðan hátt og forfeður okkar erum við komin vel á veg með að skilja hugsunarhátt gamla íslenska kyrrstöðuþjóðfélagsins. Að setja sig •nn í hugmynda- og tilfinningaheim lútherska rétttrúnaðarins er hins veg- ar ekki auðvelt því að verðmætamat og viðhorf til lífs og dauða ganga að mörgu leyti þvert á það sem nútíma- mönnum finnst sjálfsagt og eðli- legt. Hér verður leitast við að skýra nokkur af þeim viðhorfum sem enn einkenndu íslenskt þjóðlíf um miðja 19. öld, löngu eftir að kapítal- ísk þróun tók að umbreyta efna- hags- og menningarlífi annarra Evr- ópulanda. Einkum verður horft á gagnvirk áhrif viðhorfa til náttúrunn- ar og lúthersks rétttrúnaðar og at- hugað með hvaða hætti blöndun þessara viðhorfa í heilsteypta lífs- skoðun hafði skapað íslendingum nokkra sérstöðu meðal Evrópu- Þjóða á 18. öld og jafnvel fyrr. Val mitt á viðfangsefni ræðst meðal annars af því að ég tel æskilegt við ritun hugarfarssögu að skýra grund- vallarlífsviðhorf (skilning mannsins á hlutverki sínu, umhverfi og handan- heimi) áður en reynt er að lýsa við- horfum til einstakra þátta mannlífs- *ns (t.d. barnauppeldis). Að fengnum niðurstöðum ætti að vera ljóst hvort túlkun mín á orðum Jóns Vídalíns hér að framan fær staðist. En áður en lengra er haldið er ekki úr vegi að bera þau saman við ljóð eftir Bjarna Gissurarson (1621-1712) sem hefur líka skoðun a hlutverki íslendinga og stöðu meðal þjóðanna. Fyrir það skelfist fávís þjóð, að felliveturnir koma, og læðist héðan í löndin góð að lifa í sældarblóma. Orðið guðs úr sálarsjóð selur þá burtu margur hver — sumar kveður, sól fer — fyrir það dapra dalanna hljóð, sem dvínar í seinni tíðum. Það skulum allir þakka drottni blíðum.2 Ógn hins óþekkta Árið 1794 gengu Sveinn Pálsson og félagar hans á Snæfell. Bændur í nágrenninu óttuðust að sú ferð gæti haft alvarlegar afleiðingar: Þau munnmæli loða við fjall þetta — eins og mörg önnur — að eng- inn megi ganga upp á það og sé út af brugðið, verði slíkri ofdirfsku jafnan refsað með illviðri.3 Þegar Ebenezer Henderson gekk á Snæfellsjökul 20 árum síðar var hann einnig varaður við slíku athæfi: „Sumir halda að Bárður, verndar- vættur jökulsins muni hefna sín á þeim sem ganga á hann.“4 Hér eru greinilega enn við lýði leifar af heiðnum animisma, en það er sú trú að öll náttúran hafi vitund og stjórnist af dularfullu afli sem gefur henni líf.5 Þrátt fyrir viðleitni tókst kristninni ekki að uppræta þessa trú meðal íslendinga. Þeir ótt- uðust að sönnu guð, en þeir óttuð- ust einnig náttúruna sjálfa og töldu sig ekki mega misbjóða henni á nokkurn hátt. Þetta má meðal ann- ars sjá á þeim lífsreglum sem sjó- mönnum voru lagðar: Varastu búra, hross og hund; haltu svo fram um langa stund: stökklinum stýrðu frá; nautið ekki nefna má nokkur maður sjónum á.6 Óttinn við yfirvofandi hættu gerir víða vart við sig þar sem náttúran er annarsvegar, jafnvel í kyrrð hennar skynja menn dulda ógn: Bármikill sjór blekkir mig ekki, við logn er ég hálfu hræddari.7 Hræðslunni má líkja við þá ögn sem myrkfælnum manni stafar af myrkr- inu. Hann þykist skynja í því líf sem gerir það hættulegt. Áður fyrr fannst mönnum náttúran búa yfir vitund og vilja og vera manninum fjandsam- leg, líkt og myrkrið. Lognið var því svikalogn, en óvenju góð tíð varð mönnum sérstakt áhyggjuefni eins og fram kemur hér á eftir. Meðan óttinn gekk laus var loku fyrir það skotið að fslendingar gætu tileinkað sér það kristna viðhorf annarra Evrópubúa að maðurinn væri herra náttúrunnar. En sigur kristninnar á animisma hefur verið talin ein höfuðorsök þess að Evrópu- menn náðu að tileinka sér það hlut- læga viðhorf sem gerði náttúruvís- indin og gernýtingu náttúruauðæva mögulega.8 Með því að fullyrða að aðeins maðurinn hefði sál gerði kristnin mögulegt að líta á allt sköpunarverkið, að manninum frá- töldum, sem vél er hegðaði sér í samræmi við skynsamleg og skiljan- leg lögmál. Og manninum var gefið vald yfir sköpunarverkinu.9 SAGNIR 47
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.