Sagnir - 01.04.1989, Page 53

Sagnir - 01.04.1989, Page 53
segir Magnús. En hann setur fyrir- vara og kemst að þeirri niðurstöðu að fólksfjölgun við sjó geti aðeins orðið landinu „sá þungbærasti skattur".45 Fjarstæðukenndar lýsingar Magn- úsar4G og fleiri höfunda á siðferði- legri upplausn í þurrabúðunum má ef til vill rekja til almennrar hræðslu við fólksfjölgun í landinu. í sveitum voru möguleikar fólks á að stofna fjölskyldu takmarkaðir af því jarð- næði sem fáanlegt var,47 með þeim afleiðingum að giftingarhlutfall á Islandi var óvenju lágt.48 En vinnu- fólk sem ekki fékk jarðnæði gat flust > þurrabúð „til að geta þar börn“ eins og Magnús segir. Ekki fór á niilli mála að landbúnaður var sá at- vinnuvegur sem guð hafði mesta velþóknun á49 og allir lifnaðarhættir 1 þéttbýli voru af þeim sökum tor- tryggilegir. En hræðsla við stjórn- lausa fólksfjölgun umfram það sem landið gat borið kann að hafa vegið enn þyngra á metunum. Vitnisburð um þá skoðun að best væri að þjóðin væri fámenn er helst að finna í ritum upplýsingarmanna sem reyndu að kveða þennan hugs- unarhátt niður. „Oft hefur mér sárn- að að heyra, hvað mjög sumir kvört- uðu yfir fólksfjöldanum,"50 segir Hannes Finnsson og mótmælir þess- um gamla „þenkingar-máta“.51 Jón Espólín mótmælir líka, en samræð- ur um þetta efni í skáldsögu hans hljóma næsta ótrúlega í eyrum nú- tímafólks. Hreppstjóri einn heldur því fram að fólk sé orðið of margt > landinu; „væri betur það fækkaði nokkuð."52 Bóndi að nafni Grímur mótmælir þessu og telur að ekkert gott leiði af mannfalli í harðindum. En hreppstjórinn á svar við því: Það væri besta fólksfækkunin ef barnadauðinn kæmi sem gekk hér eftir 1820, og héldist við, væri það minnstur söknuður á verka- fólki, létti á heimilum, og þar með væri börnunum sjálfum best að komast í Guðs ríki; en óneit- anlega væri það mikill hagur að fólkið væri færra.5:! Bóndinn samþykkir það „að börn- uhum er best að deyja sem fyrst"54 ef guð vill taka þau til sín, en segist þó hvorki mega óska dauða sínum e'gin börnum né „börnum almenn- 'ngs manna".55 Lútherskur rétttrúnaður og lögmál hallæranna Þvílík ósk er það að auki af illum rökum, því þegar grundvöllur hennar er sá að við vildum fólkið fækkaði til þess í landinu að því gengi betur sem eftir lifði, sýnir það að við höfum bæði vantraust á Guði, og erum óánægðir með hans fyrirhyggju, og líka að við erum svo skammsýnir að ætla að landsins lukku leiði af fólksfæð.36 Nálægð himnaríkis Eggert Ólafsson (1726-1768) for- dæmir „þá bölvaða heimsku (og máske stundum illmennsku)“5‘ að börnin séu best komin hjá guði, en „djöfullinn hefur haglega komið þeirri villu inn hjá of mörgum"58 segir hann. Á síðari hluta 18. aldar voru skrif af þessu tagi orðin algeng; foreldrar voru ásakaðir um hirðu- leysi og ástleysi til barna sinna.59 Hér eins og víðar eru það gagnrýn- endur hugarfarsins sem gefa vitnis- burðinn um að ákveðið viðhorf hafi tíðkast — og leggja það um leið út á versta veg. Þó má finna heimildir sem ekki eru litaðar af gagnrýni: Börnin eru best komin, þó bráðgjör séu og vel gefin, hyggin, fríð og hagfeldin hjá þér Jesús, fóstri minn.60 Líkt og saknaðarljóð Hallgríms Péturs- sonar um Steinunni dóttur sína, sem dó á fjórða ári,61 ber vísan vitni um ást og söknuð, en lýsir um leið þeirri sannfæringu að eftir dauðann taki við það líf sem öllu máli skiptir. Og aðeins saklaus börn sem ekki höfðu komist í tæri við syndina gátu verið örugg um himnavist. Ebenezer Henderson þótti þetta viðhorf svo framandi þegar hann rakst á það hér árið 1815 að hann vitnar beint í orð íslenskrar móður. Frá honum er því komin einstæð heimild um lífs- skoðun íslendinga: Ekki gat ég annað en veitt því at- hygli, hvernig húsfreyja talaði um börn sín. Þegar ég spurði hve mörg hún ætti svaraði hún: „Ég á fjögur. Tvö eru hjá okkur, hin tvö eru hjá guði. Þau eru betur komin sem hjá honum eru; og það sem mér þykir mestu skifta um hin, sem eftir eru, er að þau eigi vísa himnavist."1’-’ í Atla, sem út kom árið 1780, nefnir sr. Björn Halldórsson dæmi um „hversu að beiskustu hörmungar geta slökkt þann kærleika, serh að náttúrunni er viðkvæmastur",63 en gagnrýnir harðlega þá sem vilja börn sín dauð til að létta á heimil- inu og hafa trúna að yfirvarpi.64 „Þessi þín hræsni getur þó ekki náð yfir ræktarleysi þitt svo það hyljist",65 segir bóndi við Atla, og gefið er í skyn að hugsunarháttur íslenskra foreldra sé siðferðilega spilltur. En að mínu mati gefur fordómalaus lýsing Hendersons réttari mynd af viðhorfi íslenskrar alþýðu til lífs og dauða, enda hefur hann djúpa samúð með fátækum fjölskyldum sem óttast að verða settar á sveit og „sverja það, að hungur, og jafnvel dauðinn sjálf- ur sé betri kosturinn en að þurfa að skilja."66 Kærleikurinn stóð af sér ýmsar •hörmungar. En barnmörgum for- eldrum sem bjuggu við hungur- mörkin verður varla láð þótt þeir leituðu huggunar í eftirfarandi orð- um Jóns Vídalíns, og tækju þau jafnvel enn bókstaflegar en senni- lega var ætlast til: Því skyldu menn ... syrgja þeirra burtför af heiminum, allra helst þar vér höfum ekkert misst, held- ur undan oss sent og munum finna eitt heilagt barn fyrir syndugt, ódauðlegt fyrir forgengilegt og englunum samjafnt fyrir það, sem áður var þó ekki nema mold og aska. Levfið því börnum vðar til drottins að koma, kristnir menn og bannið þeim það ekki ...6' Að mínum dómi sýnir viðhorfið til barnadauða betur en nokkuð annað eðli þeirrar trúarsannfæringar sem einkenndi gamla samfélagið. Það sýnir að himnaríki var fólki Ijóslif- andi og nálægur raunveruleiki frek- ar en óljós hugmynd. Og það sýnir að fyrirheitið um betra líf að loknu þessu var það sem umfram allt ann- að gaf lífinu gildi. Rétttrúnaður og upplýsing Umræða um nauðsyn þess að verja íslenska tungu og íslenska menn- ingu fyrir erlendum áhrifum var haf- SAGNIR 51
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.