Sagnir - 01.04.1989, Page 55

Sagnir - 01.04.1989, Page 55
Lútherskur rétttrúnaður og lögmál hallæranna Marmlíf i þurrabúð °S suði þóknanlegi. Þar kenndu uitrir húsbændur börnum og hjúum guðhrœðslu og góða siði, iðjusemi, nœgjusemi og hlýðni. En til voru þeir sem létu sér ekki segjast heldur kusu að stofna heimili í þurrabúð og lifa afsjósókn. Þetta fólk uar talið sýna fyrirhyggjulausa og lostafulla löngun til að giftast, skeytingarleysi um þjóðarhag, syndsamlega gróðafíkn og leti. Letin uar uerst, þuí iðjuleysið ól af sér alla þá lesti sem einkenndu t>urrabúðalifið. Uppeldi barna uar þar og talið með endemum. En huersu trúuerðugar eru þessar lýsingar á mannlifi uið sjó og i sueit? Þuí er til að suara að frá sjónarhóli sagnfræðinga hafa þœr nánast ekkert heimildagildi, enda ber stöðugt að spyrja um upphaflegan tilgang ritheimildar, hagsmuni höfundar og fordóma. En meðal menntamanna átti tðmthúsmannastéttin sér formœlendur fáa. Ein ástæðan fyrir tregðu fólks til að taka við hinni nýju hugmynda- fræði hefur vafalaust verið hversu köld og lífvana hún var í saman- burði við íslenska kristni. í Skaga- firði sótti Henderson tvær messur hjá presti af gamla skólanum: Prédikanir hans voru lifandi og kenndu rétt, enda virtust þær hafa mikil áhrif á söfnuðina, því þorri kirkjugesta flóði í tárum, er hann ræddi um kærleika guðs til synd- ugrar veraldar.78 Olíklegt er að predikanir þeirra yugri presta sem boðuðu nýjan trúar- sannleika með skynsamlegum rök- Unfi hafi vakið tilfinningaleg viðbrögð af þessu tagi, enda ekki til þess ^etlast. En til að skilja tortryggni fólks gagnvart hugsunarhætti upp- fýsingarmanna verðum við að skoða ! samhengi marga þætti í lífsskoðun Islendinga, og einkum þá sem höfðu, við upphaf 19. aldar markað Þeim sérstöðu meðal þjóða Vestur- Evrópu. Hugarheimur kyrrstöðuþjóðfélagsins í Vídalínspostillu voru íslendingar stranglega varaðir við að tileinka sér hugsunarhátt annarra þjóða og bent á að taka sér þess í stað forfeður sína til fyrirmyndar.79 Það var vel- sældin í útlöndum sem talin var hafa orðið til þess að fólk gleymdi guði og lagði sálu sína í hættu með því að treysta á sjálft sig og taka veraldleg gæði fram yfir himnesk. íslendingum tókst að varast hvort tveggja með því að tileinka sér ekki þann kristna boðskap að maðurinn væri herra jarðarinnar og útiloka þann möguleika að hægt væri að ná valdi yfir náttúrunni. Hér á landi var náttúran almennt talin lúta lögmál- um sem gerðu mannleg áform um efnahagslegar framfarir að hégóma. Litið var á hana sem lifandi og ógn- vekjandi afl er refsaði mönnum fyrir að hreykja sér hátt og leitaði jafn- vægis með því að taka gjafir sínar til baka ef árferði var venju fremur gott. Sá auður sem safnaðist í langvar- andi góðæri var einnig talinn aftur- kræfur í næsta hallæri, en þeirra var vænst með reglulegu millibili sam- kvæmt ófrávíkjanlegu náttúrulög- máli. Afleiðingin var sú að fólk ótt- aðist velgengnina, eða öllu heldur sjálfstraustið og þá auknu trú manna á mátt sinn og megin sem fylgdi henni. í slíkri afstöðu til um- hverfisins fólst hættulegur hroki sem kallaði á refsingu. Svo virðist sem kirkjan hafi styrkt þessi viðhorf til náttúrunnar í sessi með því að leggja áherslu á boð- skap sem samræmdist þeim. Hræðsl- an við velgengni var gerð kristileg um leið og sjálfstraustið sem fylgdi henni var gert syndsamlegt, þar sem það samræmdist ekki hinu sanna trausti á guði. Trúin á að náttúran tæki gjafir sínar til baka fékk aukið vægi í þeim boðskap að auður væri yfirleitt illa fenginn, ágirnd synd- samleg en fátækt góð. Trúin á refs- ingu náttúrunnar fyrir ofdirfsku var styrkt með boðskapnum um refs- ingu guðs fyrir ókristilegt líferni. Kristileg undirgefni við vilja guðs fól SAGNIR 53
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.