Sagnir - 01.04.1989, Page 74

Sagnir - 01.04.1989, Page 74
Erla Hulda Halldórsdóttir Margir uoru á þeirri skoðun að með tilkomu kuenna í stjórnmálum yrðu öll skoðanaskipti hœuerskari og hið pólitíska skítkast myndi minnka. Höfundur myndarinnar er greinilega á allt öðru máli. egar frumvarp um kosninga- rétt kvenna til sveitastjórna var á dagskrá á Alþingi 1881 þótti þingmönnum frumvarpið svo sjálfsagt og í takt við tímann að ekki tók því að færa rök fyrir því.1 Þrjátíu árum síðar, þegar fjallað var um rétt kvenna til embætta og menntunar var komið annað hljóð í strokkinn. Þá féllu þung orð og niðurlægjandi fyrir konur, eins og þau sem eru titill þessarar greinar. ✓ Oþroskaðar konur og afbrigðilegar Aðalmótrök and-kvenréttindasinna hvar sem var í heiminum byggðust á því að konan væri líkamlega veikari en karlinn og mun síðri en hann andlega. Konur voru álitnar ófærar um að hugsa rökrétt og þar af leið- andi gætu þær ekki tekið skynsam- legar ákvarðanir. Konan er sköpuð af karlmannin- um til að hugsa um börn og bú, annað ekki. Þessar skoðanir voru t.d. áberandi í norskum bókmennt- um er kom fram á 20. öldina.2 í Nor- egi var mikil umræða um kvenrétt- indi og sitt sýndist hverjum. Árið 1907 var kosningaréttur kvenna til umræðu í norska þinginu og þar kom fram sú skoðun að með því að veita konum kosningarétt væri þeim fengið tvöfalt vald því þær hefðu til allrar óhamingju heilmikil völd bakvið tjöldin.3 Líklega hafa fleiri verið á sama máli án þess að gera sér grein fyrir því að konan var eftir sem áður réttindalaus þjóðfélags- þegn þó að hún gæti stjórnað manni sínum og vísast hafa þær verið fleiri konurnar sem engin áhrif höfðu á J menn sína. Bretar voru manna íhaldssamast- ir hvað varðar jafnrétti kynjanna og hrifnastir af konunni í hinu litlausa viktoríanska hlutverki; fögur og föl stássbrúða að spila á píanó eða sauma út allan guðslangan daginn. Þessar konur virtust afar brothættar og skoðanalausar og því fór það svo að þegar þær kröfðust réttinda sinna þótti séntilmönnunum bresku, eins og norskum kynbræðrum þeirra, að þær væru ófærar um að taka sjálf- stæðar ákvarðanir. Tilfinningasemi kvenna var álitin koma í veg fyrir skynsamlega hugsun og hlutlæg skoðanamyndun því ekki á þeirra færi. Margir karlar áttu auk þess erfitt með að sjá að nokkurt misrétti væri fólgið í hinni hefðbundnu hlutverka- skiptingu kynjanna því þeir töldu hana náttúrulegt og eðlilegt fyrirbæri sem ekki væri á valdi manna að breyta. Sú skoðun var einnig ríkjandi að þær konur sem tækju þátt í kvenna- baráttunni væru eitthvað afbrigði- legar eða: kynferðislega vanræktar, lesbísk- ar eða að öðrum kosti, stafi hegð- un þeirra af móðursýki af völdum tíðahringsins.'1 Lífsköllun kvenna: Húsmóðurhlutverkið Andstaða við menntun kvenna og þátttöku í nefndum er höfðu með velferðarmál þjóða að gera var í sjálfu sér ekki mikil því menntun var ekki ógnun við veldi karlmannsins, enda studdu flestir karlmenn kröfur kvenna í þá átt. Aukin menntun gerði konuna hæfari móður og hús- móður því að vel upplýst kona gerði börn sín (syni sína) að nýtum þjóð- félagsþegnum. Karlarnir stóðu hvað mest á móti kjörgengis- og kosn- ingarétti kvenna auk réttar þeirra til embætta á sömu forsendum og þeir. Þ.e. öll þau réttindi sem opnuðu konum leið inn á hin hefðbundnu svið karla. Kvennaskólar áttu töluverðu fylgi að fagna og var sá fyrsti stofnaður í Reykjavík 1874. Stofnun hans var mikilvægt spor í framfaraátt þar sem konur fengu loks tækifæri til að mennta sig meira en barnaskólarnir gáfu kost á. Sú menntun sem kvennaskólinn bauð upp á miðaði fyrst og fremst að því að gera kon- una hæfari móður og húsmóður. Námið fólst einkum í hinum ýmsu hannyrðum, þrifnaði, reglusemi, sparnaði og hússtörfum. Stúlkurnar fengu vitanlega tilsögn í bóklegum fræðum s.s. landafræði, sögu, dönsku, réttritun og reikningi,5 en markmið fyrstu forstöðukonunnar, Þóru Melsteð, var engu að síður að „veita ungum stúlkum tilsögn í hin- um helstu fræðigreinum, og þá verklega kunnáttu, sem þær þurfa á að halda í húsmóðurstöðu."6 Þóra taldi nauðsynlegt að mennta konur til hinna hefðbundnu starfa og áleit þær kynsystur sínar sem fara „út fyr- ir það svið sem, skaparinn hefur fyrst og fremst ætlað þeim,“ vera undantekningar.7 Þóra var vissulega ekki ein kvenna, hvað þá karla, um þessa skoðun. í ísafold frá árinu 1884 er að finna grein um kvenna- 72 SAGNIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.