Sagnir - 01.06.2005, Page 14
Karl Jóhann Garðarsson
Andleg úrkynjun?
Karl Jóhann
Garðarsson er fæddur
1980. Hann lauk BA
prófi í sagnfræði frá
Háskóla íslands vorið
2004 og stundar nú
MA nátn í hugmynda-
sögu við University of
Sussex.
Þjóðerni og siðgæði í tónlistarumræðu sjötta
áratugarins
Orion-kvintett í upptökusal RÚV með Hauki Mortens 1956.
Tunga, menning og saga voru hugleikin íslendingum á sjötta áratugnum.
Áratugalöng sjálfstœðisbarátta skildi eftir sig þá hugmynd að þessiþrjú atriði aðgreindu
íslendinga frá öðrum þjóðum og vœru lífsnauðsynleg áframhaldandi sjálfstceði
þjóðarinnar. Tónlistarumrceða, líkt og önnur menningarumrceða, litaðist mjög afþessum
hugsunarhcetti. Til að varpa Ijósi á hvernig þjóðernishugsun þessi birtist í gagnrýni á
tónlistarlífió verður púlsinn tekinn á þremur mismunandi umrceðum á tímabilinu.
Fyrst er fjallað um Ríkisútvarpið, hlutverk þess, dagskrárstefnu ogþá mótstöðu sem
sú stefna mcetti. Er þá horft örlitið aftur á fimmta áratuginn en eiitnig á upphaf þess
sjötta og athugað hvernig þjóðernis- og sjálfstceðisrök birtast i þessari umrceðu.
Keflavikurútvarpið hóf útsendingar í byrjun nóvember 1951 og vakti strax hörð
viðbrögð, bceði ifjölmiðlum og á Alþingi. Hvaó var þessari nýju útvarpsstöð helst fundið
til foráttu og hvernig tók annars vegar unga fólkið henni og hins vegar Ríkisútvarpið?
Eftir að Keflavíkurútvarpið hafði starfað í nokkur ár barst nýtt tónlistarceði yfir heiminn
frá Bandaríkjunum, rokkið. í fyrstu varð þess ekki mikið vart hér á landi en það kom þó
að lokum og hlaust nokkur usli af þessari nýju tónlist og dansi. Auk þess töldu menn að
siðspilling, múgmenning og skrílslceti fylgdu tónlistinni. Hér á landi, líkt og annars
staóar i heiminum, var hin nýja tónlist fordcemd og kvartað undan slcemum áhrifum hins
nýja ceðis á ungmenni. Rokkumrceðan á tslandi er nokkuð sérstök fyrir þcer sakir að
þjóðarstolt og þjóðararfur kemur þar mikið við sögu og þvi kemur þar fram skemmtileg
blanda af þjóðernishyggju og siðgceði. Að lokum er litið á fyrsta íslenska rokklagið, Vagg
og veltu, og viðbrögð við laginu og þó sérstaklega texta þess. Kaflaheiti eru fengin úr
Ijóði eftir Guómund Guðmundsson skólaskáld, fyrir utan síðasta kaflann, þar er lieitió
tekið úr texta Vagg og veltu.
„HLUTVERK VORT“
Ríkisútvarpið gegndi miklvægu hlutverki í íslensku tónlistarlífi frá upphafi útsendinga
og hélt því um margra áratuga skeið. Hlutverk útvarpsins var margþætt og fól meðal annars
í sér ýmiss konar fræðslu, jafnvel kennslu og uppeldisstarf í þágu tónmenningar
12 Sagnír 2005