Sagnir - 01.06.2005, Blaðsíða 44

Sagnir - 01.06.2005, Blaðsíða 44
„En sautjándi júní hefur sigrað” sögu. Þau voru dreifð um byggðir landsins en átti eftir að fjölga umtalsvert á næstu árum.™1' Kannski var lítið ungmennafélag í Flóanum, Samhygð í Gaulverjabæjarhreppi, dæmigert fyrir þau ungmennafélög sem ekki áttu heima nærri neinum af fyrmefndum hátíðastöðum en vildu minnast frelsishetjunnar. Hinn 5. júní 1911 er bókað í fundargerð félagsins að samþykkt hafi verið „að hefja fána á loft á Aldar afmæli Jóns Sigurðssonar.““x“ „EN 17. JÚNÍ HEFUR SIGRAГ Eftir aldarafmælið höfðu menn hægt um sig og næstu árin var lítið um að vera í þjóðhátíðarmálum landsins. Flaggað var á Akureyri á fæðingardegi Jóns Sigurðssonar 1912 en engin hátíðahöld fóru fram.xl Söngfélagið 17. júní stóð fyrir söngskemmtun af svölum Hótels Reykjavíkur að kvöldi 17. júní það ár.xli Fyrri heimsstyrjöldin hafði letjandi áhrif á hátíðahöld og mannfagnaði. Ungmennafélag íslands gekkst þó fyrir Landsmóti í Reykjavík í annað sinn 1914. Var þar ekki minna um að vera en í fyrra skiptið og íþróttavöllurinn þéttsetinn dag eftir dag. Mótið hófst 17. júní og stóð til 24. júní. En þetta voru íjörbrot Landsmóta UMFÍ um sinn. Eftir þetta féllu þau niður í 26 ár og hafa Þannig tókst íþróttahreyfingunni aö slá tvær flugur í einu höggi. Henni tókst að festa 17. júní í sessi sem hátíðisdag Reykvíkinga og einnig náði hún að tengja daginn íþróttahreyfingunni sterkum böndum. ekki síðan verið haldin í Reykjavík. Það kom því í hlut íþróttasambands íslands, ÍSÍ, sem stofnað var 1912 að hafa forgöngu um hátíðarhald í höfuðstaðnum þann 17. júní næstu árin. Samkomur voru haldnar á íþróttavellinum og nú bættist knattspyman í hóp með frjálsíþróttum og glímu, um sinn að minnsta kosti.xl" í Vísi 20. júní 1913 birtist grein um 17. júní og var þá frá því skýrt að þann dag hefði það líklega gerst í fyrsta sinn á hátíðisdegi að „Dannebrog var ekki sjáanleg á einni einustu stöng 1 öllum bænum...“ Þá var hin fræga fánataka varðskipsins fslands Falk á Reykjavíkurhöfh nýlega um garð gengin og þjóðræknum íslendingum svall móður. Greinarhöfundur sem nefnir sig „íslending“ gerir það að tillögu sinni fyrstur manna að 17. júní verði gerður að lögskipuðum helgidegi.xliii Líklega hefur hann ekki grunað hversu langur tími myndi líða þar til sá draumur yrði að vemleika. Ellefu ámm síðar var þó svo komið að 17. júní var orðinn ffidagur allra nema verkamanna sem vom famir að halda 1. maí hátíðlegan.xliv Hinn 14. júní 1916 er sagt frá því í Vísi að ÍSÍ ætli að halda 17. júní hátíðlegan með „margvíslegum skemtunum: glímum, söng, knattspymu, danzi, gamanvísum ofl.“xlv í Vísi tveim dögum síðar er auglýsing ffá Kaupmannafélagi Reykjavíkur þar sem þess er getið að stjóm félagsins vænti þess að kaupmenn loki búðum sínum kl. 2 daginn eftir.xl,i Sú hefð myndaðist á næstu ámm að búðir væm lokaðar 17. júní. í grein í Morgunblaðinu 2. ágúst 1916 er minnt á það að sá dagur hafí lengi verið þjóðminningardagur íslendinga en nú hafi 17. júní bolað honum frá og sé orðinn þjóðhátíðardagur okkar. „Baráttan milli þessara daga hefur nú staðið í nokkur ár og hefur valdið dálitlum raglingi. En 17. júní hefur sigrað.“xivii Fleiri dagar komu þó til greina. ísland hlaut fullveldi 1. desember 1918 og fljótlega var farið að halda daginn hátíðlegan, meðal annars af háskólastúdentum. Margir litu á hann sem þjóðhátíðardag. Þessi dagur var valinn af stjómvöldum en hafði ekki táknræna merkingu í augum þorra íslendinga sem virðast ekki hafa borið til hans djúpar tilfinningar. í grein sem Jónas Jónsson birti í Timanum 16. maí 1940 ber hann saman 17. júní og 1. desember þeim síðamefnda mjög i óhag. Hann leggur til að fæðingardagur Jóns Sigurðssonar verði löghelgaður þjóðhátíðardagur því þá sé vorið í algleymi og flytji þjóðinni fógnuð bjartra og mildra daga. Þá „...yrði hætt að binda nokkum sérstakan þjóðarfagnað við 1. desember, úr því að þjóðinni hefur aldrei tekist að tengja við þann dag aðrar endurminningar en þær sem beinlínis snerta harða veðráttu, sólarlitla daga, málamiðlunarkennda samninga og skammdegismyrkur.“xiviii ALLSHERJARMÓT ÍSÍ Árið 1920 efhdi ÍSÍ til leikmóts á íþróttavellinum í Reykjavík dagana 17.-20. júní. íþróttafélag Reykjavíkur sá um ffamkvæmd mótsins i umboði ÍSÍ. Mótið var í raun arftaki Landsmóta UMFÍ enda tekið ffam í blöðum að sex ár væm nú liðin ffá síðasta leikmóti. Nokkuð var um þátttöku íþróttamanna utan af landi og styrkti það stöðu mótsins. Það varð einnig til að auka vægi þess að Íslandsglíman var ein af keppnisgreinunum. Svokallað leikmót ÍSÍ var haldið með þessu sniði 1921 en árið 1922 hlaut það nafnið Allsherjarmót ÍSÍ og hélt því nafni allt til lýðveldisstofnunar. Mótið var haldið annað hvert ár að nafninu til, hitt árið hét það einhverju öðm nafni en var þó í raun sama mótið. Mótið hófst jafhan 17. júní og stóð ffá þremur dögum upp í viku. Fijálsíþróttir vom hryggjarstykki mótanna en fimleikar, glíma og reiptog vom einnig meðal keppnisgreina. Reykvíkingar fjölrnennm á mótin og óhætt er að segja að þau hafi verið stærsti íþróttaviðburður ársins.xlix Fimleikasýning á Melavelli 17. júní 1927. Þetta var íþróttahátíð með Landsmót UMFÍ sem fyrirmynd og fastur liður var skrúðganga íþróttamanna út á Melavöll 17. júní. Þá var staðnæmst 1 kirkjugarðinum við Suðurgötu og forseti ÍSI lagði blómsveig frá íþróttahreyfingunni á leiði Jóns Sigurðssonar. Benedikt G. Waage, forseti ÍSÍ 1926-1962 var mikill áhugamaður um eflingu 17. júní og var jafnan viðstaddur hátíðahöld íþróttamanna þann dag og hélt oft hátíðarræðu á íþróttavellinum. Þannig tókst íþróttahreyfingunni að slá tvær flugur í einu höggi. Henni tókst að festa 17. júní í sessi sem hátíðisdag Reykvíkinga og einnig náði hún að tengja daginn íþróttahreyfingunni sterkum böndum. Mótin vom vel sótt af almenningi sem kom þúsundum saman á Þessi þátttaka íþróttamanna sýnir hve sjálfsagðar íþróttir þóttu á hátíðinni og má jafnvel líta á hana sem einskonar umbun til ungmennafélags- og íþróttahreyfinganna fyrir dugnað þeirra við að halda 17. júní hátíðlegan undanfarna áratugi. íþróttavöllinn þótt misjafnlega viðraði. Árið 1931 var svo komið að 17. júní var nefndur dagur íþróttamanna.1 Þetta fyrirkomulag hélst í stómm dráttum allt til 1938 en þá var Allsheijarmótið fært affur til miðs júlí en í staðinn var stofnað til sérstaks „17. júní móts“ af hálfu ÍSÍ. Ástæðan var sögð sú að 17. júní væri það snemma sumars að íþróttamenn, sem flestir byijuðu að þjálfa sig með vorinu, væm ekki komnir í fúlla æfingu. Skrúðgangan, blómsveigurinn og ræðan við leiði Jóns forseta vom á sínum stað sem fyrr. Reyndar þurfti að ffesta fyrsta 17. júní mótinu til 19. júní vegna veðurs en ný dagskráratriði, pokahlaup og 42 Sagnir 2005
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.