Sagnir - 01.06.2005, Page 73

Sagnir - 01.06.2005, Page 73
Staðamál fyrri og heimildagildi Oddaveija þáttar veittar miklar réttarbæturÞau formlegu réttindi sem kirkjun i Noregi fékk ú síðari hluta 12. aldar voru meðal annars þau að konungarnir afsöluóu sér réttinum til aó hlutast til um biskupskjör og rúóningu í hin ýmsu embœtti kirkjunnar."“ Kröfur kirkjunnar hlutu góðan hljómgrunn meðal valdhafa fyrstu úr eftir setningu erkibiskupsstóls í NiðarósL Fyrsta konungskrýningin i Noregi fór fram veturinn 1163-64 þegar Eysteinn Erlendsson erkibiskup krýndi hinn barnunga Magnús Erlingsson. Konungur varð lénsmaður Ólafs helga, kórónan geymd í Nióarósdómkirkju og Noregur varð erfðaríki. Því var það svo að aðeins tiu úrum frú stofnun erkibiskupsstóls hafði erkibiskup tryggt sér œðstu völd i ríkinu, a.m.k um stundarsakirÞað varþví einungis spurning um hvenœr íslenska kirkjan yrði vör við þessa þróun. ÍSLENSKA MIÐALDAKIRKJAN Hin íslenska miðaldakirkja laut löggjafarvaldi goðaveldisins. Biskupar hennar urðu æðstu menn þess, áttu sæti á miðpalli Lögréttu og höfðu mikil áhrif á löggjöf og réttarfar.x í upphafi 12. aldar komst kirkjan hér á landi í fastar skorður með formlegri skrásetningu kirkjulaga þegar Kristinréttur hinn fomi var settur, að öllum líkindum árið 1123.” í Kristinrétti hinum foma eru ákvæði um stöðu almennings gagnvart kirkjunni og stöðu kirkjunnar gagnvart þjóðfélaginu. Um efni þau er einungis snertu kirkju og klerka var fjallað í sérstökum Fræðimenn hafa kallað 12. öldina tíma hinna vígðu höfðingja. skipunum biskupa en á hið innra skipulag kirkjunnar er ekki minnst. Þar kom til kasta hinna veraldlegu laga þjóðveldisins.”1 Fræðimenn hafa kallað 12. öldina tíma hinna vígðu höfðingja.xiii Margir goðanna vom sjálfir prestar við kirkjur sínar eða stjómuðu a.m.k. prestunum við þær. Þeir áttu jörðina sem kirkjan stóð á og innheimtu því helming tíundar (prestatíundar og kirkjutíundar) í nafni kirkjustaða sem vom erfðalén þeirra. Tekjur og völd kirkjugoðanna vom því að miklu leyti kirkjunni að þakka.xiv Kirkjumar hér á landi vom svokallaðar einkakirkjur eða erfðakirkjur eins og tíðkaðist víða um norðanverða Evrópu. Kirkjan var reist á landi einstaklings, bónda eða höfðingja, sem ánafnaði henni miklum auðæfum í löndum og lausum aurum. Sá sem reisti kirkjuna hlaut því að ráða yfir henni en samkvæmt réttarhugmyndum germanskra þjóða gat einkakirkjan ekki verið sjálfseignarstofnun. Kirkjan gat ekki „átt sjálfstæða eignaraðild, heldur hlaut hún að vera í eigu tiltekins einstaklings. Bæði kirkja og kirkjufé varð því að teljast eign þess manns, sem hana reisti á landi sínu. Sá sem átti landið, átti því kirkjuna.“xv Þær kvaðir lágu samt á eigendum kirknanna að þeim var skylt að leggja til stofnfé með kirkju sinni í samráði við biskup og gera máldaga yfir eignir hennar og tekjur. Þannig átti að tryggja að kirkjan fengi næga heimanfylgju, dos ecclesiae, svo kirkjan væri messuhæf og gæti staðið undir eigin rekstri.XIi í máldaga þeim sem eiganda kirkjunnar var skylt að skrá áttu að vera taldar upp allar gjafir sem kirkjunni voru gefhar og ffá því skýrt hver atvinna þess fjár var.x,ii Lítil takmörk voru á umráðum bænda yfir eignum kirkjunnar og rekstri hennar. Kirkjan gekk i erfðir í ætt stofnanda hennar eða kaupum og sölum ásamt þeim hluta jarðarinnar sem var í einkaeign ef kirkjan átti aðeins hluta jarðarinnar. Lærður maður sem erfði eða eignaðist kirkju og kirkjustað á annan hátt gat gegnt embætti innan kirkjunnar án leyfis biskups.xvm Af þessu spruttu langvinnar og flóknar deilur sem jukust eftir því sem kirkjunnar þjónar öðluðust meiri skilning á almennum lögum kirkjunnar og sérstöðu kirkjunnar og klerka. í anda umbótastefnunnar sem var í gangi í Evrópu á þessum tíma kröfðust íslensk kirkjuyfirvöld yfirráða yfir eignum sínum og þjónum. Þegar Staðamál fóru á fullt hér á landi var eignaréttur skilgreindur á þann hátt að kirkjan væri í raun eign Guðs eða kirkjudýrlings, kirkjubóndinn væri aðeins varðveislumaður kirkjunnar, réttur hans til kirkjufjárins væri einungis afnotaréttur.”x Miðstjómarvald íslensku kirkjunnar var mjög veikt, biskupar voru kosnir af höfðingjum og Lögrétta setti valdi þeirra miklar skorður. Vald biskupa var því minna í veraldlegum efnum en gert var ráð fyrir í almennum kirkjulögum og tíðkaðist erlendis. Miðstjómarvald kirkjunnar styrktist ekki að neinu viti á Islandi fyrr en effir að erkibiskupsstóll var settur í Niðarósi 1152-1153. Þá fór erkibiskup að reyna að beita valdi því sem honum var ætlað. Valdsvið innlendra biskupa náði þó yfir eitt atriði sem reyndist t.d. Þorláki Þórhallssyni notadrjúgt í staðamálum hans. Nefnilega kirkjuvígslur. Biskup gat neitað kirkjubónda um vígslu kirkju ef hann sá einhverja meinbugi á umgjörð kirkjunnar." Til að neita vígslu þurfti biskup þó ástæðu og hvaða ástæða var betri en bein fyrirmæli erkibiskups? ÞORLÁKUR BISKUP REKUR STAÐAMÁL HIN FYRRI I Oddaverja þœtti Þorlúks sögu krefst biskup staðaforrúða í vísitasíuferð sinni um Austfirðingaíjórðung. Hvað em staðir? Magnús Stefánsson hefur skilgreint hugtakið staðir ítarlega. Hann fullyrðir að staður sé ekki stytting á hugtakinu kirkjustaður eins og flestir íslenskir fræðimenn hafa skilið það. Hann telur hugtakið vera þýðingarlán eða tökuþýðingu latneska orðsins locus. Um staðarhugtakið segir Magnús: Kirkjustaðir sem sóknarkirkjan átti í heild sinni vom, ásamt kirkjunni, staðir. ... Kirkjur sem, að minnsta kosti síðar, vom kallaðar bændakirkjur og áttu aðeins hluta heimalands eða jafnvel einungis útjarðir vom, ásamt kirkjuhluta, einungis kallaðir staðir í undantekningatilfellum."1 Mistök sagnffæðinga em þvi samkvæmt Magnúsi að álykta að kirkjustaðir og staðir séu samnefni. Enda spyr Magnús spumingar sem að hans mati er áleitin: Hvemig gat erkibiskupinn upp á eigin spýtur veitt biskupum vald yfir öllum kirkjustöðum, einnig þeim sem kirkjan átti einungis að hluta ... eða þar sem kirkjan átti ekkert í heimajörðu en aðeins útjarðir eða útlönd."'' Því er eðlilegt að spyrja hvort Þorlákur hefur þá aðeins verið að heíja upp Staðamál á kirkjustöðum þar sem kirkjan átti mestan hluta heimalandsins en látið kirkjur sem ekkert áttu í jörð vera? Magnús bendir á að Guðrún Ása Grímsdóttir sé sammála sér þegar hún segir í formála Árna sögu að Ámi Þorláksson biskup „beitti fyrir sig kirkjulögum og boði páfa og erkibiskups um forræðisvald biskups á eigum kirkjunnar.“xxiii Staðamál vom því deilur leikmanna og Því er eðlilegt að spyrja hvort Þorlákur hefur þá aðeins verið að hefja upp Staðamál á kirkjustöðum þar sem kirkjan átti mestan hluta heimalandsins en látið kirkjur sem ekkert áttu f jörð vera? forystumanna kirkjunnar um forræði yfir eignum kirkjunnar. Því virðist eðlilegt að áætla að Þorlákur biskup hafi aðeins mátt gera tilkall til forráða yfir stöðum en ekki bændakirkjum (þar sem bændur áttu landið en ekki kirkjan). En það hefur þó ekki stöðvað Þorlák. Magnús bendir á að þegar Þorlákur hafi komið að bændakirkju sem ekkert átti í jörðinnixxiv hafi hann krafist þess að fá heimalandið allt í heimanfylgju áður en hann gæti vígt kirkjuna. Breytti hann með því bændakirkjunni í stað og krafðist siðan yfirráða yfir staðnum. Kröfur Þorláks um forráðarétt yfir stöðum sýndu mönnum „að stofnun staða í kirkjulegri heildareign gat auðveldað kirkju og biskupum að fá kröfum um forræði og vald yfir stöðunum framgengt. Eftir að Þorlákur hóf staðatilkall sitt mun hafa tekið fyrir stofnun nýrra staða.“xxv Því leiðir Magnús líkur að því að Þorlákur og kirkjunnar menn hafi aðeins reynt að fá forráð yfir stöðum sem voru að þeirra mati kirkjunnar eign. Þetta styrkir einnig heimildagildi Oddaverja þúttar í B-gerð Þorlúks sögu. Oddaverja þúttur segir að Þorláki hafi tekist vel til í Austfirðingafjórðungi þegar hann reið þar yfir. Enda sýna heimildir að staðir þar eru mun fleiri en annars staðar á landinu. Því hefur Jón Sigurðsson ekki farið fjarri sannleikanum fyrir um hundrað og fimmtíu Sagnir 2005 71
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.