Sagnir - 01.06.2009, Page 11

Sagnir - 01.06.2009, Page 11
Sagnir, 29. árgangur klippimyndabók. Þetta hlýtur að teljast kaldhæðnislegt í Ijósi þess að bankinn hefur síðan hrunið og skilið okkur eftir í skuldasúpunni. Hvar er fagmennskan og fræðimennskan á bak við þetta? SP: Fólk er í það minnsta meðvitaðra. Einhvern tímann ætlaði ég að vera með málstofu á hugvísindaþingi um kosti og galla þess að utanaðkomandi aðilar, fyrirtæki eða stofnanir styrktu stöður við Háskóla íslands en fann ekki fyrir miklum áhuga á því innan sagnfræðiskorar. Mér fannst þetta mjög umhugsunarvert á sínum tíma eins og reyndar mörgum öðrum og velti því fyrir mér hvernig þetta myndi líta út í framtíðinni. ÁDJ: Maður hugsaði „þetta er nú ekki nógu gott“ en maður gerði ekki neitt. Sagnir: Afhverju ekki? ÁDJ: Maður forgangsraðaði, maður hefur bara ákveðinn tíma, maður er í vinnunni. Þetta var svo aftarlega í forgangsröðuninni. En égheld að það þýði allavega ekki að sitja og bíða eftir að hlutirnir gerist af sjálfu sér. Það verður einhver að berjast fyrir því að þetta gerist ekki aftur, að stíga fram. Annars gerist ekki neitt. SP: Þetta breytist náttúrulega af því að það eru færri sem virðast hafa ótakmarkaða íjármuni til að styrkja glæpi heimsvaldastefnunnar í þriðja heiminum - og á þrjátíu árum höfum við séð þessari stofnun hnigna niður í sérfræðingaveldi. Frjálshyggjan vill gera út af við ríkisvaldið. Háskólinn var fjársveltur, einkafjármagnið átti að hugsa um háskólamenntun. Það voru opnaðir tveir eða fleiri einkaháskólar og lá við að þetta yrði allt saman í höndum auðvaldsins. En það gengur ekki. Kreppan er búin að sýna okkur að við verðum að hafa sterkt ríkisvald og að ríkisvaldið verður að hafa hug- og félagsvísindadeildir á bak við sig til þess að geta fúnkerað. Þær verða að vera vel fjármagnaðar, fullkomlega frjálsar og gagnrýnar. Það er ásamt frjálsum fjölmiðlum einn af mikilvægustu grundvöllum lýðræðisins. Það er ótrúleg krísa sem háskólinn hefur lent í á síðustu tuttugu árum og það verður að sporna við því að svona geti gerst aftur. Sagnir: Hafið þið trú á því að það sé nógu mikill vilji til breytinga innan Háskólans ? Hér hefur ýmislegt gengið á síðustu árin. Landsvirkjun hefur verið með námskeið innan skólans á sínum snærum og styrkt kennarastöðu innan verkfræðideildarinnar. Sagnfræðideildin er heldur engin undantekning - þar kom Landsbankinn námsbrautinni í hagnýtri menningarmiðlun í rauninni á koppinn. Fyrstu misserin í náminu fóru í að setja upp sýningu um Landsbankann og búa til um hann Árið 2004 átti íslenska heimastjórnin hundrað ára afmæli. Sjálfstæðisflokkurinn var þá við völd ásamt Framsóknarflokknum og gerði afar mikið úr afmælishátíðinni, einkum þætti Hannesar Hafstein í sjálfstæðisbaráttu íslendinga og meintum samhljómi með baráttu hans og síðari tíma stefnu Sjálfstæðisflokksins. Sama ár kom út bókin Forsætisráðherrar ísland. Ráðherrar og forsætisráðherrar í 100 ár, en þar skrifaði einn höfundur um hvern forsætisráðherra landsins; byrjað á Hannesi Hafstein og endað á Davíði Oddssyni.

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.