Sagnir - 01.06.2009, Blaðsíða 79

Sagnir - 01.06.2009, Blaðsíða 79
Sagnir, 29. árgangur nýlendum sjálfstæði. Það var hins vegar ekki fyrr en árið 1960 sem loksins var staðfest, í ályktun frá Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, að sjálfsákvörðun væri lagalegur réttur sem veita skyldi nýlendum.6 Sjálfsákvörðunarréttur gilti þó á þessu stigi aldrei um allar nýlendur, hvað þá staka hópa innan nýlendanna. Á þessum tíma átti sjálfsákvörðunarréttur aðeins við um nýlendur sem voru „skildar að með saltvatni“7 frá herraríkinu. Þannig var friðhelgi yfirráðasvæðis að mestu leyti tryggð og landamæri heimsins héldust svipuð, aðeins nýlendur aðskildar frá herraríkjum fengu sjálfstæði og þærvoru ekki klofnar upp í smærri einingar. Fleiri möguleikar Þessi skilgreining ríkti ein, í það minnsta í lagalegum skilningi alþjóðasamfélagsins, fram á áttunda áratug 20. aldar, þegar farið var að nota hugtakið um kúgaða hópa sem ekki höfðu rétt á pólitískri þátttöku í eigin landi, svo sem svarta íbúa Ródesíu (nú Simbabve) eða Suður-Afríku. Sú skilgreining á hins vegar við um sjálfsákvörðunarrétt sem rétt íbúa ákveðins landsvæðis til jafnrar þátttöku í stjórnmálum, frekar en rétt þjóða til sjálfstæðis. Hugmyndir um hina síðarnefndu hlið sjálfsákvörðunarréttar tóku ekki að breytast aftur fyrr en í upphafi tíunda áratugarins, þegar Sovétríkin og Júgóslavía tóku að liðast í sundur. Þá var litið svo á að ríki innan sambandsríkja hefðu einnig sjálfsákvörðunarrétt. Það þýddi jafnframt að sjálfsákvörðunarréttur gat ekki gilt um aðrar, smærri einingar, sem ef til vill voru til staðar innan hvers ríkis fyrir sig, heldur aðeins ríkin sjálf. Þannig var litið á að Rússland hefði sjálfsákvörðunarrétt innan Sovétríkjanna (sem eitt sovétlýðveldanna sem mynduðu þau), en Tatarar sem þjóð innan Rússlands höfðu hann ekki.8 Þetta eru þær skilgreiningar sem enn er notast við. Þá er líka viðurkennt að þjóðir í sjálfstæðisbaráttu, sem ekki skilar árangri einungis vegna þess að erlendur her er í landinu og bælir hana niður, skuli einnig njóta sjálfsákvörðunarréttar. Þar að auki er oft viðurkennt að sjálfsákvörðunarréttur geti gilt fyrir aðra kúgaða hópa, en ekki skilgreint hverjir þeir skuli vera.9 Margir fræðimenn hafa fjallað um þetta, en ítarlegast hefur James Crawford lýst því hverjir njóti sjálfsákvörðunarréttar í skilningi alþjóðalaga.10 Til þess að draga saman möguleikana sem hér að framan var lýst og alþjóðasamfélagið hefur sammælst um í gegnum tíðina má segja að við lok tuttugustu aldar hafi eftirfarandi hópar notið lagalegrar viðurkenningar á sínum sjálfsákvörðunarrétti: 1) íbúar nýlendna, sem liggja ekki að herraríkinu. 2) Þjóðir sem eru kúgaðar og beittar skipulegu misrétti af öðrum þjóðum í sama ríki og njóta þar ekki nokkurs aðgangs að hinu pólitíska kerfi. 3) Þjóðir sem hafa ekki náð sjálfstæði vegna varanlegrar viðveru erlends hers semkemur í vegfyrir sjálfstæðisbaráttu. 4) Einstök ríki innan sambandsríkja. Þannig hafa hópar þurft að uppfylla þessar kröfur til þess að geta gert tilkall til sjálfsákvörðunarréttar. Aðrir hópar sem hafa gert einhvers konar tilkall til sjálfstæðis hafa hins vegar verið taldir til aðskilnaðarhreyfinga sem, hversu áhugaverður sem málstaður þeirra kann að vera, hafa ekki sjálfrafa gert kröfu um sjálfsákvörðun. Þeir verðaþannig, í augum alþjóðalaga, að hljóta hvaða sjálfstjórn sem þeir kunna að öðlast frá þeirri fullvalda einingu sem þeir eru taldir tilheyra, verða að öðlast viðurkenningu ríkisins sem ætlunin er að kljúfa sig frá. Þessar skilgreiningar hafa þó, eins og fram hefur komið, tekið miklum breytingum. Barátta sem á einum tíma er þannig talin hafa verið ólögleg aðskilnaðarstefna getur síðar verið álitin hafa verið réttmæt barátta fyrir viðurkenningu á hinum löglega viðurkennda sjálfsákvörðunarrétti. Þessar breytingar hafa, eins og hér hefur verið sýnt, ekki verið í formi hægfara þróunnar heldur hefur skilgreiningum verið bætt við eftir því sem alþjóðasamfélaginu sýnist þurfa hverju sinni. Nú er þetta að gerast á ný. Fimmti möguleikinn á því hverjir eigi að njóta sjálfsákvörðunarréttar er nú í þróun. Stríðið í Suður-Ossetíu og túlkanir á því í ágúst 2008 braust út stríð í Suður-Ossetíu. Suður- Ossetía er svæði sem á landakortum er sýnt innan landamæra Georgíu en hefur í raun stjórnað sér sjálft frá því í byrjun 10. áratugarins. Þegar Sovétríkin liðuðust í sundur tók við borgarastyrjöld í Georgíu þar sem tvö héruð landsins, Suður-Ossetía og Abkasía, lýstu yfir sjálfstæði oghlutu það í raun. Það sjálfstæði var hins vegar aldrei viðurkennt af nokkru ríki fyrr en í lok stríðsins í ágúst 2008. Þá viðurkenndi Rússland sjálfstæði svæðanna tveggja og naut í því stuðnings frá Níkaragva. Enn er deilt um nákvæmlega hvað átti sér stað í þessu stríði og hverjum hvað er að kenna. Þó má segja með nokkurri vissu að forseti Georgíu, Mikheil Saakhasvili, hafi ætlað sér að ná aftur yfirráðum Suður-Ossetíu með hervaldi. Rússar, sem höfðu haft friðargæslulið í bæði Suður- Ossetíu og Abkasíu frá því á tíunda áratuginum, sættu sig ekki við þetta og sendu inn aukinn herafla til þess að koma í veg fyrir að áætlanir Georgíumanna gengu eftir. Stríðið sem af hlaust var þannig í raun stríð á milli Rússlands og Georgíu, háð í Suður-Ossetíu.11 Niðurstaða stríðsins 77
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.