Sagnir - 01.06.2009, Blaðsíða 31

Sagnir - 01.06.2009, Blaðsíða 31
Sagnir, 29. árgangur fagna í nútímasamfélagi. Allir íslendingar eru jafnir fyrir lögum,27 allir hafa kost á þeirri menntun sem þeir kjósa og mega sækja um þau störf sem þeir vilja. Valfrelsið er mikilvægt og fæstir vildu líklega vera án þess. Catherine Hakim er félagsfræðingur við London School of Economics en hún hefur meðal annars rannsakað og skrifað mikið á sviði mismunandi atvinnuvals karla og kvenna. Rannsóknir hennar gæta að vissu leyti sérstöðu þar sem hún er ein fárra sem leitast hafa við að renna fræðilegum stoðum undir frjálslyndan femínisma. Hún hefur sett fram kenningu sem hún kallar „preference theory”. Hakim segir kenningu þessa vera byggða á vandlega greindum niðurstöðum rannsókna á lífstílsvali kvenna í nútímasamfélögum á áratugunum eftir að getnaðarvarnabylting sjöunda áratugarins og jafnréttisbarátta þess áttunda færðu konum raunverulega möguleika á að haga lífi sínu á þann veg sem þær kusu.“s Ein af meginniðurstöðum hennar er að launamunur karla og kvenna sé ekki sprottinn af karlaveldi eða því að vinna kvenna sé lægra metin en vinna karla heldur því að konur velji oftar störf sem eru hlutastörf, feli í sér minni ábyrgð og séu þess vegna lægra launuð en störf sem fleiri karlar velji.29 Rannsóknarniðurstöður hennar sýna að lífsval kvenna skiptist í þrjá flokka. Þannig velji um 10-30% kvenna heimavinnandi lífsstíl, þar sem frami á vinnumarkaðnum víki fyrir áherslu á fjölskylduna. Stærsti hlutinn, eða 40-80%, velji blandaðan lífsstíl, blandi saman fjölskyldulífi og atvinnuframa og fái þannig ,,..hið besta beggja heima...“ eins og Hakim orðar það.30 Þriðji hópurinn, önnur 10-30%, séu svo konur sem kjósi atvinnuframa umfram ijölskyldulíf, einbeiti sér að vinnunni og eignist margar elcki börn.31 Það að karlar velji oftar en konur að einbeita sér að framanum skýri hvers vegna færri konur skili sér í hærri stöður en karlar og hvers vegna konur hafi oft lægri laun en karlar. Hakim spáir því með kenningu sinni að karlar muni halda áfram að ná í meirihluta lengst á vinnumarkaði, í stjórnmálum og í öllum „gráðugum“ atvinnugreinum þar sem samkeppni og fórnir skipti máli. Staðreyndin sé sú að miklu færri konur en karlar velji að fórna fjölskyldulífi fyrir atvinnuframa.32 Hakim segir að þarna skipti vinnutími miklu. Þannig feli hæstu stöðurnar oftast í sér óreglulegan og oft mjög langan vinnutíma, jafnvel einnig töluverð ferðalög. Það gefi því auga leið að sá sem þarf að sækja barn á leikskólann á hverjum degi klukkan fimm myndi illa ráða við starf þar sem vinnutíminn er ekki niðurnegldur. Ástæðan fyrir því að „kvennastörf “ eru oft verr launuð sé því vegna þess að þær leggi elcki eins mikið á sig og karlarnir og að þeir næli frekar í hærri stöður vegnaþess að þeir reyni það miklu meira.33 Hér má benda á að rannsóknir hafa sýnt að kynjaskipting starfa sé einn áhrifamesti einstaki þátturinn í launamun kynjanna vegna þess að „kvennastörf“ eru oftast lægra metin en „karlastörfl134 Kenning Hakim hefur meðal annars verið gagnrýnd fyrir að byggja á eðlishyggju.35 Hún hafnar því og segir að þvert á móti sýni kenningin fram á að kyn skipti sífellt minna máli og lífstílsval einstaklinga komi í staðinn.36 Þarna má finna ákveðnar mótsagnir í máli Hakim. Hún segir að kyn skipti ekki máli á sama tíma og hún flokkar val kvenna annars vegar og karla hins vegar, eftir kyni, auk þess sem hún spáir áframhaldandi yfirburðum karlanna, vegna þess að karlar velji öðruvísi en konur. Kenning Hakim rímar afar vel við eftirfarandi athugasemd Samúels T. Péturssonar penna vefritsins Deiglunnar þar sem hann gagnrýnir femínista fyrir að setja spurningamerki við verðmætamat á hefðbundnum „karla- og kvennastörfum" og segir að ...Feministar...[megi]...ekki útiloka þann möguleika að það sé einfaldlega munur á konum og körlum. Að þessi munur valdi því að konur velji frekar önnur störf en karlar. Störf sem í eðli sínu er[u] misverðmæt oggefa ólíkar tekjur. Að konur kjósi...frekar störf sem krefjast nálægðar við fólk en karlar velji störf sem krefjast nálægðar við hluti. Og að karlar þrái völd og leiðtogahlutverk í auknu magni borið saman við konur, alveg óháð skilaboðum umhverfisins og samfélagsins.37 Valið skiptir hér öllu, það er einkamál hvers og eins hvort hann velur vel eða illa launað starf. Allt snýst um valkostina en sjónum er ekki beint að því hvernig þeir geti endurspeglað valdatengsl, hvort valdaójafnvægi skapist til dæmis inni á heimilum þar sem aðeins annar aðilinn heldur því uppi fjárhagslega. Samúel slær þarna á sama eðlishyggjustrenginn sem Hakim afneitar. Það hlýtur þó að teljast hæpið að skoðanir sem þessar lýsi engri eðlishyggju. Kenningin rímar einnig vel við stefnu Sjálfstæðisflokksins sem fjallað var um hér að framan og Ieggur áherslu á val einstaklinga og hæfni óháð kyni. Snjólfur Ólafsson, prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla Islands, hefur að nokkru tekið í sama streng og Hakim. I tveimur greinum sem hann skrifaði í Morgunblaðið 2005 leggur hann áherslu á að kynin séu ólík og að þau velji ólíkar leiðir í lífinu. Hver sé sinnar gæfu smiður og raunveruleikinn sé sá að karlar velji frekar að takast á við störf sem gefa möguleika á háum launum en konur velji oftar frekar að forgangsraða þannig að fjölskyldan gangi fyrir vinnunni. Helstu skýringu 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.