Sagnir - 01.06.2009, Side 48

Sagnir - 01.06.2009, Side 48
Sagnir, 29. árgangur ekki gild rök að kristindómurinn samræmist skynseminni af því svo margir fylgi honum. „Fáar kenningar eru svo allri skynsemi þarstæðar, að eigi megi finna heilan flokk gáfaðra manna, sem hafi álitið þær skynsamlegar. Sjálf kenningin verður að tala fyrir sér, en eigi tala þeirra, sem hafa leiðst til að trúa henni.“47 Hindrunin í vegi fyrir því að Guðmundur geti talið kristindóminn skynsamlegan var sú að í honum er því trúað gagnrýnislaust sem haldið var fram fyrir hundruðum ára sem eigi gat samræmst vísindalegri þekkingu. Hann gat ekki látið eins og kraftaverkin í Biblíunni hefðu verið raunverulegir atburðir. Hann hafði lesið sér til um að ómögulegt væri að sanna að þau hefðu í raun átt sér stað. Hann taldi því afar vafasamt að draga einhverjar raunverulegar ályktanir um hluti sem voru skrifaðir í trúarrit, sem væru uppfull af þjóðsögum og hjátrú.48 Guðmundur var þjálfaður vísindamaður og hafði yfirgripsmikla þekkingu á náttúrufræði og því hefur hann talið sig skyldugan til að mótmæla því í kristindómnum sem hann taldi móðga skynsemina. Niöurlag Gagnrýni á trúna og kirkjuna var nokkuð lífleg í kringum aldamótin 1900 en rénaði svo er frjálslyndari guðfræði tók við í þjóðkirkjunni sem lagði mörgum af sínum eldri kreddum og aðlagaðist nútímanum betur. Þeir menn sem skrifuðu hvað harkalegast gegn kirkjunni og trúnni voru ósáttir við það sem þeir töldu rökleysi kirkjunnar manna í boðskap sínum og töldu vísindin fremri í sannleiksleit mannsins. Þorsteinn Erlingsson var sérstaklega gagnrýnin á það sem hann taldi valdníðslu kirkjunnar í aldaraðir og liggja rætur hans trúargagnrýnu í sósíalisma og mannúð hans. Þorsteinn Gíslason og Guðmundur Hannesson gagnrýna frekar skynsemi trúarinnar oglíta á hvað vísindin hafa fram á að bjóða fram yfir trúna. Trúargagnrýni þeirra liggur því í rökhugsun og vísindahyggju meðan gagnrýni Þorsteins Erlingssonar er tilfinningalegri. Það voru ekki ýkja margir sem tóku þátt í þessari gagnrýni enda var trúleysi og trúargagnrýni vafalaust ekki vinsæl skoðun á þeim tíma þegar kirkjan hafði enn sterk ítök í landinu. Það hefur ekki verið sérlega vænlegt til frama ungra manna að ráðast á kirkjuna í litlu samfélagi þar sem kunningjatengsl réðu mestu um velgengni manna. Deilur brutust reglulega út á Alþingi um skáldastyrk Þorsteins Erlingssonar þar sem sumir þingmenn töldu ekki rétt að greiða jafn róttæku skáldi laun frá Alþingi. Trúargagnrýni hans hefur vafalaust farið fyrir brjóstið á sumum. Enda lifði hann oft við nauman skort á lífsleiðinni. Guðmundur Hannesson hefur þó vafalaust talið sig öruggan með sínar skoðanir vegna þeirrar virðingar sem hann naut sem landsfrægur læknir. Hörð trúargagnrýni Þorsteins Gíslasonar má svo efalaust rekja til unggæðingsháttar eins og Matthías Jochumsson orðaði það. Hann lét minna fara fyrir trúargagnrýninni seinna eftir heimkomuna frá Kaupmannahöfn. Var trúargagnrýnin á Islandi hörð? Víðsvegar erlendis eins og t.d. í Frakklandi var gagnrýnin miklu harðari og byrjaði fyrr. A miðað við það virðist trúargagnrýnin nokkuð mild. En á íslenskan mælikvarða var hún nokkuð hörð ef miðað er við hversu lítil og nýtilkomin stétt menntamanna var á íslandi og þá staðreynd að trúin og kirkjan höfðu lítið sem ekkert orðið fyrir gagnrýni fyrr en á síðustu áratugum 19. aldar. Ahrif trúargagnrýninnar er erfitt að meta. Lítil aukning varð í þeim sem voru skráðir í manntölum með enga trú á síðustu áratugum 19. aldar en þeim fór þó fjölgandi. Vinsældir þessara nýju hugmynda hjá almenningi voru greinilega ekki miklar. Þó má velta því fyrir sér hvort að þessi gagnrýni hafi hjálpað til að frjálslyndari guðfræði var viðhöfð í íslensku þjóðkirkjunni upp úr aldamótunum 1900 þó erfitt sé að leggja mat á það. Tilvísanir 1) Armstrong, Karen: A history of God: from Abraham to the present: the 4000-year quest for God. London, 1999, bls. 330-331. 2) Samaheimild, bls. 33T332. 3) Þórunn Valdimarsdóttir: Til móts við nútímann IV. Kristni á íslandi. Reykjavík, 2000, bls. 45. 4) „Álit ungs prests um kirkjulífið“. Fjallkonan 6:31 (1889), bls. 121. 5) Benedikt Kristjánsson: „Til ungaprestsins í 31. bl. Fjallk. 1889“. Fjallkonan 7:2 (1890), bls. 5. 6) Pétur Pétursson: „Trúarlegar hreyfingar í Reykjavík tvo fyrstu áratugi 20.aldar“. Saga 28:1 (1980), bls. 186. 7) Valdimar Briem: ,,„Að afkristna landið““. KirkjublaðiÓ 6:10 (1896), bls. 149. 8) Sama heimild bls. 151. 9) Þórunn Valdimarsdóttir: Til móts við nútímann, bls. 44. 10) Sama heimild, bls. 44. 11) Þorsteinn Gíslason: „Um ritdóma og ní kvæði IIT. Sunnanfari 3:11 (1894), bls. 86. 12) Gils Guðmundsson: I nœrveru sálar. Einar Hjörleifsson 46

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.