Sagnir - 01.06.2009, Side 53

Sagnir - 01.06.2009, Side 53
Sagnir, 29. árgangur Helgi Thordersen, biskup skynsamlegt að setja hér í lög hluta af þeim borgaralegu réttindum sem í kortunum voru á þessum tíma, heldur væri best að setja hér ein grundvallarlög (stjórnarskrá) líkt oggert var í Danmörku 1849. Hin leiðin, sem boðuð var með bænaskránni, væri „alveg öfug aðferð, og heldur en ekki kynleg.”29 Benedikt mælti þó ekki með nefnd í málinu. Jón á Gautlöndum gat ekki fallist á þau sjónarmið að hér væri nægjanlegt trúfrelsi og benti þingheimi á þá staðreynd að aðrir en „Lútherskrar trúar menn“ gætu ekki orðið hér embættismenn né alþingismenn og taldi Jón það „mjög fráfælandi fyrir útlenda menn, og annarrar trúar að nema hér bólfestu meðan þessi ákvörðun er í giidir30 Sama viðhorf var uppi hjá Sveini Skúlasyni þingmanni N-Þingeyinga, sem var þó heldur á móti málinu, en honum fannst það „illa hugsað, að vera lepja einstakar greinar upp úr grundvallarlögum Dana, sem vér allir vitum, að var hafnað hér áþjóðfundinum, ogkom oss alls eigi við.“31 Jón Pétursson, meðdómari Benedikts við Landsyfirrétt, taldiaðmeðþvíaðvísamálinutilnefndarístjórnbótamálinu gæti þingið rekið á eftir dönsku stjórninni um niðurstöðu í stjórnskipunarmálum fyrir ísland, „því þegar stjórnin sæi, að drátturinn á stjórnarbótinni stæði í vegi fyrir svo mörgu hjá oss, nýjum skattalögum, nýrri sveitarstjórn og trúarbragðafrelsi væri það sterkasta hvötin fyrir hana til að herða á sér.”32 Skoðanir þessara manna voru því ekki fjandsamleg trúfrelsinu sem slíku, heldur snérust viðhorf þeirra um það hvaða pólitísku leið væri hentugast að fara til að vinna sem flestum borgaralegum réttindum framgang. I þessu skipti einnig máli að rétt lagaleg leið væri farin. Jón Pétursson lét t.d. þau orð falla í fyrri ræðu sinni, að það samræmdist ekki gildandi lögum á fslandi að rýmka hér reglur í trúfrelsismálum. „En að gefa hér fullkomið trúarbragðafrelsi, er gagnstætt konungalögunum, þeim hér gildandi grundvallarlögum, því eptir þeim er konungurinn skyldur að vernda lútersku / ííX'í, trunna. Þorri þingmanna á báðum þingum var þvf á móti því að Alþingi færi þess á leit við dönsku stjórnina að hér yrði leitt í lög trúafrelsi kristnum söfnuðum til handa. Voru meginröksemdirnar þær að það væri með öllu ótímabært að rýmka hér um reglur í trúmálum þar sem allir landsmenn tilheyrðu sömu kirkjunni og hér væri þar að auki nægjanlegt trúfrelsi fyrir einstaklinga sem vildu játa trú sína á annan hátt en hinn ríkjandi. Sumir þingmenn létu þó í veðri vaka að tilveru íslensku kirkjunnar væri stefnt í voða með trúfrelsinu. Indriði Gíslason hreppstjóri ogþingmaður Dalasýslu sagði t.d. að með því að innleiða bónir Þingeyingana væri svo gott sem verið að biðja um „að katólskan komi aptur inn í landið“34. Taldi Indriði það ekki svo langt síðan sá siður hefði verið hér drottnandi „og þeir tímar ættu að vera oss svo minnisstæðir, að við reyndum ei til, að leiða hana inn aptun'35 Deilur þingmanna snerust mikið til um það að hversu mikið það trúfrelsi var, sem menn vísuðu til í umræðunum, en ekki verður séð að nokkur hafi véfengt einsleitni þjóðarinnar í trúmálum. Þá var einnig deilt um hvort danska þjóðkirkjan hefði veikst eða styrkst eftir innleiðingu trúfrelsis þar í landi árið 1849. Helgi Hálfdánarson prestur ogþingmaður Gullbringu- og Kjósarsýslu taldi á landinu vera „einungis ein trúarbrögð síðan katólskunni var útrýmt, og innan takmarka hinnar lútersku kirkju hér á landi hafa eigi heldur myndazt neinir flokkar.”36 Að því gefnu skildi Helgi ekki hvers vegna það væri verið að biðja um aukið frelsi í þessum málum. í sama streng tóku m.a. Pétur Pétursson prófessor Prestaskólans, Benedikt Sveinsson dómari og Helgi Thordersen biskup.37 Pétur taldi að á landinu væri sú almenna regla að einstaklingar mættu tilbiðja guð sinn svo lengi sem það bryti ekki gegn borgaralegum lögum 51

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.