Sagnir - 01.06.2009, Side 60

Sagnir - 01.06.2009, Side 60
Sagnir, 29. árgangur Nyr skriður - undirbúningur alþingishátíðar 1930 Alþ ingishátíðarnefnd var sett á fót árið 1926.31 Nefndin lét fljótt til sín taka í margvíslegri undirbúningsvinnu við Yfirlit yfir Þingvelli við Öxará, þingstaðinn forna. Skýringar 0 40 80 Metrar I l ll I að talsverður áhugi væri á, taldi hún að ekki ætti að veita slík leyfi né samþykkja „nema með ráði skógræktarstjóra og skipulagsnefndar bæja og kauptúna, og þá einungis á svæðinu sunnan akvegarins milli Hrafnagjár og almenningsins."29 Ennfremur taldi nefndin að varast þyrfti byggingu sumarhúsa á þeim hluta Brúsastaðalands sem næstur væri þingstaðnum, til að spilla ekki staðnum. Við skoðun á áliti Þingvallanefndarinnar þarf að hafa það í huga að Matthías var hliðhollari enskri friðunarleið, þar sem einstaklingar tækju sig saman og stofnuðu félagasamtök sem síðan tækju að sér að friða ákveðin svæði. Hann hafði áður líst yfir efasemdum um að stórt svæði þyrfti að friða á Þingvöllum í álitsgerð sem honum var gert að skila af sér vegna þingsályktunarinnar frá 1919, sem hann hafði sjálfur átt þátt í að senda sem stjórnarmaður í þingvallanefndinni sem þá var starfandi. I því áliti sagði Matthías: Án þess að jeg geti tjáð mig hlynntan uppástungunni um þennan „þjóðgarð”, svo sem hann hefur verið fyrirhugaður, verð jeg að mæla mjög með því að hið umrædda svæði verði verndað fyrir eyðileggingu svo vel sem kostur er.”30 Matthías hafði alltaf verið í nöp við stærð svæðisins því þá þyrfti að sitja um svæðið sér lög og það tilheyrði ekki lengur fornminjaverði. lagfæringu Vallanna á Þingvöllum og var Matthías Þórðarson þeim innan handar við þá vinnu.32 Einnig var lögð fyrir nefndina skrifleg friðunartillaga Guðmundar Davíðssonar, sem var ekki ósvipuð þingsályktunartillögunni frá 1919 og endanlegu friðunarfrumvarpi 1928. Talsverður vilji var hjá nefndarmönnum að ná fram hinum „gamla“ svip Þingvalla eins og hann hafði verið á þjóðveldisöld.33 Alþingishátíðarnefndin sá fyrir sér margar verklegar 58

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.