Sagnir - 01.06.2009, Page 81

Sagnir - 01.06.2009, Page 81
Sagnir, 29. árgangur Á sjálfsákvörðunarréttur við? Þetta vekur óhjákvæmilega upp spurningar um hvort sjálfsákvörðunarréttur þessi sem Rússar tala um sé raunverulega viðeigandi. Þegar hafa verið taldir upp þær fjórar mögulegu leiðir sem á 20. öldinni urðu smám saman viðurkenndar sem leiðir að sjálfsákvörðunarrétti. Til þess að komast að því hvort Suður-Ossetar og Abkasar eigi raunverulega rétt, í lagalegum skilningi, á sjálfsákvörðun er nauðsynlegt að líta aftur á þessar íjórar leiðir. Sú fyrsta fjallar um íbúa nýlendna sem ekki liggja að herraríkinu. Fyrir utan þá staðreynd að Abkasía og Suður-Ossetía liggja svo sannarlega að Georgíu hafa svæðin tvö aldrei verið nýlendur heldur einfaldlega hlutar af georgíska ríkinu. Ekki er hægt að segja að Suður-Ossetar og Abkasar hafi verið kúgaðir innan Georgíu eða verið hindraðir frá aðgangi að hinu pólitíska kerfi. Georgísk stjórnvöld hafa ekki haft raunveruleg yfirráð yfir héruðunum tveimur frá því að nútímaríkið Georgía varð til árið 1991 ogþannig ekki verið í neinni stöðu til þess að kúga íbúa þeirra. Varðandi aðgang að hinu pólitíska kerfi þá hefur hann ætíð verið formlega tryggður, þó ekki hafi raunveruleg á það reynt vegna ástandsins sem ríkt hefur. Ekki er hægt að tala um að sjálfstæðisbarátta héraðanna tveggja hafi verið bæld af erlendum her með varanlega viðveru. Eini herinn með varanlega viðveru í Abkasíu og Suður-Ossetíu er sá rússneski og sá hefur á engan hátt komið í veg fyrir það að héruðin kljúfi sig frá Georgíu. Síðust mögulegra leiða að sjálfsákvörðunarrétti eins og skilgreiningarnar hafa þróast á 20. öld er leið einstakra ríkja innan sambandsríkja en Suður-Ossetía og Abkasía hafa aldrei verið aðildarríki að Georgíu heldur einfaldlega hlutar ríkisins, eins og áður hefur komið fram. Engin þessara skilgreininga á þannig við um Suður- Ossetíu eða Abkasíu. Þrátt fyrir það upptalningu er ekki hægt að afneita því með öllu að íbúar héraðanna tveggja hafi rétt til sjálfsákvörðunar. Þessar skilgreiningar sem upp voru taldar voru endanleg upptalning á öllum mögulegum forsendum sjálfsákvörðunarréttar sem til urðu á 20. öldinni. í upphafi 21. aldarinnar virðist hins vegar sem ný leið sé að bætast við. Kosovo-fordæmið Það sem skiptir sköpum í þessu er Kosovo. Þann 17. febrúar 2008 lýsti þing Kosovo yfir sjálfstæði frá Serbíu. Sjálfstæðisyfirlýsingin var sú síðasta af mörgum í kjölfar þess að Júgóslavía liðaðist í sundur. Munurinn á henni og öðrum var sá að þær einingar sem áður höfðu hlotið sjálfstæði voru aðilar að sambandsríkinu Júgóslavíu á Rússneski björninn rífur burt Suður-Ossetíu og Abkasíu, mynd úr georgísku vikublaði sérstöðu innan Júgóslavfu þar sem þrátt fyrir að vera ekki aðildarríki að sambandinu átti það sjálfstæða aðild að forsetaráði ríkjasambandsins.18 Þannig var Kosovo ekki eins og hvert annað hérað innan aðildarríkis heldur svæði sem viðurkennt var innan Júgóslavíu sem aðskilið frá Serbíu, þó það hafi líka heyrt undir hana að mörgu leyti. Með öðrum orðum voru þarna færð rök fyrir því að aðstæðurnar sem komu fram í Kosvo og ollu því að héraðið öðlaðist sjálfsákvörðunarrétt hafi í raun verið mjög sérstakar og afar ósennilegt að fram kæmi hérað sem myndi uppfylla þessar kröfur: Þjóðernishreinsanir, viðvarandi stríðsástand, orðið það rofið frá herraríkinu að sameining væri í raun óásættanleg niðurstaða og þar að auki hefði áður notið opinberrar stjórnmálalegrar viðurkenningar á aðskilnaði sínum fráþví ríki sem svæðið vildi kljúfa sig frá. Þetta eru sannarlega þröngar kröfur og erfitt að uppfylla. Það þýðir þó ekki að þær séu einsdæmi. Ekkert er svo algjörlega einstakt að það sé fullkomnlega ómögulegt að svipaður atburður eigi sér stað síðar meir. Og það er það sem gerðist í Abkasíu og Suður-Ossetíu. Aðstæðurnar sem þar komu fram voru einstaklega líkar þeim sem stuðningsmenn sjálfstæðis Kosovo beittu sem rökum í deilunum þar. Fyrir þessu hafa meðal annars hafa Benedikt Harzl og Rein Múllerson fært sterk rök.19Vissulega eru 79

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.