Nýtt Helgafell - 01.04.1959, Side 27

Nýtt Helgafell - 01.04.1959, Side 27
GESTURINN 21 Þá bíð ég eftir stríðsyfirlýsingunni. Balducci kinkaði kolli. Gott er nú það. En fyrirskipanirnar eru nú til staðar, og þær ganga ekki heldur framhjá þér. Það er víst ekki allt með kyrrum kjör- um. Menn segja að uppreisn sé í aðsigi. Við erum að vissu leyti kvaddir til vopna. Daru var þrjózkulegur á svip. Hlustaðu á mig, sonur, sagði Balducci. Mér er vel við þig, þú verður að skilja mig. Við erum tíu eða tólf saman í E1 Amör, og eig- um að halda vörð á litlu landsvæði, svo ég verð að fara aftur. Mér var sagt að trúa þér fyrir þessum náunga, og koma aftur um hæl. Það er ekki hægt að geyma hann niðurfrá. Það var ókyrrð í þorpinu hans, þeir vildu ná í hann. Þú átt að fara með hann til Tingví á morgun. Hraustmenni einsog þér óar ekki við tuttugu kílómetra leið. Síðan er það bu- ið. Þú færð nemendur þína og lifir góðn lifi einsog áður. Bak við vegginn heyrðist hesturinn frýsa og stappa niður hófum. Daru horfði ut um gluggann. Hríðarveðrið var sýnilega um garð gengið, það birti yfir allri snjóbreiðunni, sem þakti heiðina. Þegar snjórinn væri bráðnaður, mundi sólin aftur ríkja og brenna grýtta jörð- ina. Dögum saman mundi þurr birtan streyma af himnum ofan yfir þessa eyðilegu heiði, þar sem ekkert minnti á fólk. Nú já, sagði hann og sneri sér að Balducci, hvað hefur hann gert? Og hann spurði, áður en lögreglumaðurinn hafði ráðrúm til að svara: Talar hann frönsku? Nei, ekki orð. Það er búið að leita að hon- um í mánuð, en þeir földu hann. Hann hefur drepið frænda sinn. Er hann á móti okkur? Ég held ekki. En maður veit aldrei. Af hverju drap hann? Fjölskyldumál, held ég. Annar skuldaði hin- um víst korn. Það er óljóst. En sem sagt, hann drap frænda sinn mcð hníf. — Skar hann einsog kind, svona! . . . Baldueci hreyfði höndina cinsog hann brygði bníf á háls sér, og Arabinn, sem tók eftir því, leit á lmnn með nokkrum kvíða- svip. Daru fvlltist skyndilega bræði gagnvart þessum manni, gagnvart öllum mönnum og fúlum illverkum þeirra, gagnvart óslökkvandi hatri þeirra og blóðþorsta. En tevatnið sauð á katlinum. Hann hellti aftur í bollann hjá Balducci, hikaði, hellti síðan einnig í hjá Arabanum, sem svolgraði græðgislega í sig sem fyrr. Þegar hann lyfti handleggjunum, opnaðist skikkjan nokkuð og kennarinn sá magurt og vöðvamikið brjóstið. Þakk fyrir, drengur minn, sagði Balducci. Og nú sting ég af. Hann stóð upp, gekk að Arabanum og dró snæri upp úr vasa sínum. Hvað ertu að gera? spurði Daru þurrlega. Balducci varð hissa og sýndi honum snærið. Það tekur því ekki. Gamli lögreglumaðurinn hikaði: Eins og þú vilt. Þú ert auðvitað vopnaður? Eg hef veiðibyssuna mína. Hvar? í koffortinu. Þú ættir að hafa hana við rúmið þitt. Hvers vegna? Ég hef ekkert að óttast. Þú ert ekki með öllum mjalla, sonur. Ef þeir rísa upp, er enginn óhultur, það er jafnt á komið með okkur öllum. Ég get varið inig. Ég hef nægan tíma til að sjá þá koma. Balducci fór að hlæja, en fyrr en varði þakti skeggið aftur tennurnar, sem enn voru hvítar. Þú hefur nægan tíma? Jæja. Það er einsog ég sagði. Þú hefur alltaf verið dálítið skrít- inn í kollinum. Það er þessvegna, sem mér er vel við þig. Sonur minn var þannig. Um leið dró hann upp skammbyssuna sína og lagði hana á kennaraborðið. ITafðu hana, ég þarf ekki tvær byssur á leiðinni héðan til E1 Amör. Skammbyssan gljáði á svartmáluðu borð- inu. Þegar lögreglumaðurinn sneri sér að kenn- aranum, fann kennarinn af honurn leður- og hrossaþef. Iíeyrðu mig, Balducci, sagði Daru skyndi- lega, ég hef andstyggð á þessu öllu, og sér- staklega á þessum náunga. En ég fer ekki með hann. Ég get barizt, ef í það fer. En hitt geri ég ekki. Gamli lögreglumaðurinn stóð fyrir framan hann og horfði á hann strangur á svip. Þú hagar þér heimskulcga, sagði hann hægt. Mér líkar þetta ekki heldur sjálfum. Þó að maður sé kominn til ára sinna, getur maður ekki vanizt því að færa mann í fjötra, nei,

x

Nýtt Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.