Nýtt Helgafell - 01.04.1959, Page 39

Nýtt Helgafell - 01.04.1959, Page 39
TÍMINN FLETTIR SPILUNUM TVISVAR 33 ákvarðanir, sem snerta einstaka hluti þess sér í lagi“, og ennfremur eru nokkrir fram- kvæmdar-örðugleikar til tíndir. (Alþt. 1849, bls. 567). Kóróna röksemdafærslunnar fyrir jafnri fulltrúatölu allra kjördæmanna kom þó frá Ásgeiri Einarssyni í Kollafjarðarnesi. Þess hefir verið getið hér að framan, að þing- maður Strandamanna gat komizt skemmti- lega að orði, og má nefna annað dæmi frá þinginu 1847, er hann sagði, að sér væri ,,líka kunnugt, hvað mörgum skynsömum kjósendum hefir verið annt um að kjósa þá, er þeir hefðu bezt traust til“ (Alþt. bls. 779). Nú tók Ásgeir af skarið í kjör- dæmamálinu með þessum orðum: „Það er þó ein ástæða sem mælir með Vestmannaeyjarmönnum, að þeir hafa aldrei getað kosið hingað til . . . ; er því ekki ólíklegt, að þeir hafi litlar mætur á þinginu, því það er þeim til óánægju að sjá þingtíðindin og lesa strax á fyrsta blaðinu, að enginn hafi verið þingmaður frá Vestmannaeyjum, af því enginn hafi getað kosið. Af þessu flýtur, að líklegt er, að þeir hafi lítið hugsað um kosn- ingar, og er hætt við þeim tækist ófim- lega fyrst, ef þeir ættu að kjósa einung- is einn mann; en ef þeir mættu kjósa 2, eru meiri líkindi til, að vel tækist með annanhvorn“. (Alþt. 1849, bls. 584). Slíkum rökum reyndist ekki unnt að mótmæla. Alþingi hafði nú loks samþykkt frum- varpið og var aðeins eftir hin formlega samþykkt bænarskrárinnar til konungs, þegar þeir komu skyndilega, konungsfull- trúi og Jón Sigurðsson. Jón hafði, að hon- um f jarverandi, verið kosinn forseti í þing- byrjun, og var bænarskráin um kosningar til þjóðfundarins afgreidd í einu hljóði á fyrsta þingfundinum, sem hann stýrði, 31. júlí 1849. Konungsfulltrúi hafði með sér frumvarp ríkisstjórnarinnar um kosningar til þjóð- fundarins. í því hafði í meginatriðum ver- ið farið eftir tillögum Alþingis 1847, en nú höfðu þegar verið gerðar samþykktir, sem í ýmsum greinum voru öndverðar því, sem þá hafði verið beðið um. Það var ekki að furða, þótt þingmenn væru í nokkrum vandræðum með stjórnarfrumvarpið. Það var í rauninni sjálfdautt, en samt varð að sýna þá kurteisi að gera útför þess með sóma. Var því vísað til nefndar og síðan rætt af þingheimi. Konungkjörinn þing- maður andlegu stéttarinnar, Pétur Péturs- son, síðar biskup, veitti því nábjargirnar með þeim frumlega hætti, að hann bar fram breytingartillögur, sem að lyktum komu texta þess í samræmi við vilja Al- þingis í málinu. Síðan var frumvarpið fellt, þegar það var að efni til orðið aðgengilegt. ]\ /Teðan því fór fram á íslandi, sem nú ■*-*■*■ hefir verið lýst, sat Brynjólfur Péturs- son úti í Danmörku og vann að málefnum landsins í íslenzku stjórnardeildinni 1 Kaupmannahöfn. Hann átti við ramman reip að draga, þar sem var þekkingarskort- ur og skilningsleysi Dana á íslands-mál- um. Þegar nú þar við bættist losið á stefnu landsmanna sjálfra um ýmis meginatriði í bænarskránum, var ekki að furða, þótt honum gæti ofboðið. Hinn 14. september 1849 skrifaði hann Pétri bróður sínum langt bréf, þar sem hann leysir ærlega frá skjóð- unni: „Bezti bróðir! I gær fékk ég frá þér kærkomið bréf frá Helsingjaeyri, og er Rosenörn [stift- amtmaður] víst þangað kominn (4 dög- um eftir að þeir eru komnir Johnsen og Jón Sigurðsson). Eg skal þakka þér fyr- ir það seinna, ef ég lifi, þegar ég skrifa þér bréf. Nú er ég ekki að skrifa þér bréf, heldur ætla ég að létta ofurlítið á hugskoti mínu, sem nú er of þungt af alþingismálum, sem ég fékk í gærkveldi. Þegar ég komst ekki fram í vor með baráttu mína við Bardenfleth [fyrrv. stiftamtmann, nú ráðgjafa í stjórn kon- ungs] og Melsteð um kosningalögin, lifði ég í þeirri von, að þingið mundi reisa við það, sem rangsnúið var. Það var nú

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.