Nýtt Helgafell - 01.04.1959, Qupperneq 40

Nýtt Helgafell - 01.04.1959, Qupperneq 40
34 HELGAFELL að sönnu grundvallarlaus von hjá mér, sem þekkti svo glöggt, hvað ómögulegt alþingi er að rétta nokkurn hlut í lög- um, þar sem það aldrei hefir brugðizt, að hafi breytingaratkvæði þess slampazt á að hitta eitthvað órétt, hafa þau altént komið með verri vitleysu í staðinn. Það er ekki ýkt, sem ég hér segi. Ég vildi, að ég hefði einhverntíma tíð og tæki- færi til að færa sönnur á það mál, því ég er viss um að geta sannað það öld- ungis skýlauslega fyrir hverjum manni, sem hefir fulla skynsemi og vill veita því eftirtekt. En það er nú mannleg nátt- úra að vona það, sem menn vilja. Ég er öldungis hissa á því ófrelsi, sem alstaðar kemur fram í gjörðum Íslendinga. Og þó eru þeir að babla um frelsi, og læra þar að lútandi talshætti, sem lagðir hafa verið út handa þeim. Sjálfræðið vilja þeir hafa. En jöfnuðinn og réttlætið og kristilega bróðurást og allt annað, sem í frelsinu býr, þekkja þeir ekki, eða láta að minnsta kosti sem þeir ekki gjöra það.. En, segir þú! hvar gerir almenn- ingur það. Óvíða, segi ég. En alstaðar annarstaðar sé ég þó einstöku menn gera það. Og þó er vankunnáttan hjá lönd- um okkar miklu verri en ófrelsisandinn. Ég hef enn aldrei á alþingi séð nokk- urn mann koma fram, sem hugsar skarpt. Það er þó merkilegt. Stundum koma nefndirnar með mestu mönnunum fram með vitleysur, sem eru öldungis óútgrundanlegar, og allir fallast á þær. Mikið hefir nú tímaleysið og öldungis vitlaus þingsköp gjört að verkum. En það er þó ekki nóg afsökun. Er það nú ekki örvinglunarefni að eiga við þetta að sýsla. Ég verð að koma aftur til efn- isins. Konungsfrumvarpið var mesta óræsti og hafði einkum einn annmarka; en hann og' allt annað illt, sem í því finnst var komið frá alþingi sjálfu. Svo var um tvöföldu kosningarnar, ef þær skal kalla með því nafni, því þær eru þó ekki óréttlátar, heldur deila öllum jafnan rétt. Svo var og um að sýslurnar skyldu vera kjördæmi og kosningarnar fyrir það sama vera án alls jafnaðar. Eins var um versta atriðið í kosn- ingarlögunum, að kjörmannakosningar skyldu fram fara á manntalsþingum. Ég setti mig á móti öllum þessum atriðum hér af öllum krafti og þó einkum þeim síðustu tveimur, en þau höfðu þingið fyr- ir sér, og ég komst ekki upp fyrir moð- reyk. Hefði nú þingið nú tekið úr þessi atriði og sett annað gott í staðinn, þá hefði það farið rétt að. En hvernig fer það nú að? Það tekur burt tvöföldu kosn- ingarnar, sem er það eina, sem gjörir sýsludæmin þolanleg, og heldur þ ó sýslukjördæmunum og eykur þar á of- an þann órétt, sem af þessu leiðir við einfaldar kosningar með því að gjöra öll kjördæmin jöfn (það er jöfnuður!!!). Ég hef sjaldan heyrt aðra eins vitleysu úr manns munni koma, eins og ástæður nefndarinnar fyrir þessu. Þær eru svona: Fyrst segir nefndin, að úr því enginn almennilegur eða fullkominn jöfnuður eftir fólksfjölda sé á frumvarpinu, geti hann eins vel verið helmingi minni, og svo bætir hún við: „En þar til hyggur nefndin, að engin sé ástæða til að líta á neinn fólksfjölda eða fólks- fæð, þegar til þjóðfundar skal kjósa, sem aðeins á að ræða alls- herjarmál, en vart nein einstak- leg.“ Þessa ástæðu tvítekur nefndin (nei! hún þrítekur hana). Segðu mér nú: hafa þeir menn, sem svona tala, og þeir þingmenn, sem á þetta fallast, nokkurn snefil af ímynd um, hvað þjóð- vilji er, eða hvað fulltrúakosning þýð- ir? og þessir menn eiga að búa til kosn- ingalög!! Guð hjálpi mér það er ótta- legt að hugsa til þess. Það er óttalegt að sleppa löggjöf lausri við aðra eins menn. Mér þykir miklu minna varið 1, að sýslukjördæmin gjöri það að verkum, að þau leggja á mikið stóran „indirekte Census“ og að einföldu kosningar þings- ins þannig eru orðnar miklu minna al- þýðulegar (demokratiske) en tvöföldu kosningarnar frumvarpsins. En þegar nú þingið bindur svona kosningarréttinn „indirecte“ við fjáreign og þar á ofan heimtar, að kjósendur leggi til sveitar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.