Nýtt Helgafell - 01.04.1959, Side 50

Nýtt Helgafell - 01.04.1959, Side 50
44 HELGAFELL búa, heldur en frændur þeirra eða foreldri í sveitunum. 1 ástæðum fyrir tilskipuninni 6. janúar 1857 segir: „Þingið hefir hér nefnilega ítrekað uppástungu sína, sem það gjörði 1853, um að þurrabúðarmenn ættu að gjalda til sveitar 6 rd. til þess að hafa kosn- ingarétt, þar sem frumvarpið hafði ekki stungið upp á meira en 4 rd. Alþingi hefir þessu viðvíkjandi getið þess, að eins og nefndin, sem sett var 1853 um þetta málefni, ekki hafi viljað veita þurrabúðarmönnum kosningarétt, eins hafi nefndin, sem nú var sett í málið, fundið það ísjárvert að veita þurrabúðar- mönnum kosningarétt með sömu kjör- um og borgurum verzlunarstaðanna, þar fleiri af þurrabúðarmönnum eru þangað komnir úr ýmsum héruðum landsins, og sumstaðar, t.a.m. í Reykja- vík, væri fjöldi þeirra svo mikill (140:60), að óttast mætti fyrir, að þeir kynni hafa allt of mikla verkun á kosn- ingarnar ef þeirra kjör-kostum væri ekki að öðru leyti meira þraungvað en borgaranna. Konungsfulltrúinn hefir sett sig á móti, að þessi uppástunga væri tekin til greina, og hefir hann einkum tekið fram, að bæði væri það óeðlilegt og ósanngjarnt, að þurrabúðarmenn, sem eru minna metnir og fjáðir en kaup- staðarborgarar, skyldu gjalda meira til sveitar til þess að hafa kosningarétt. Það var einnig þessi skoðun, svo og það, að flestum þurrabúðarmönnum mundi verða bægt frá kosningarétti, ef ákveð- ið væri, að þeir skyldu gjalda 6 rd , sem á sínum tíma kom innanríkisstjórninni til að stinga uppá því, að upphæðin væri lækkuð til 4 rd. En þar eð þingið oftar, og nú með 16 atkvæðum gegn 5, hefir staðið fast á, að kjörkostum þurrabúðar- manna væri þraungvað á þenna hátt, þótti stjórninni ekki næg ástæða til að fella þessa uppástungu, þar svo líti út sem þinginu þætti svo mikið í hana var- ið“. (Tíð. um stjórnarmálefni íslands, I. b., bls. 154—155). Segja má, að það sem miður fór um af- greiðslu kjördæmamálsins á hinum fyrstu þingum, hafi stafað af því, að menn réðu ekki við viðfangsefnið, eins og aðstæður voru. En þarna er í fyrsta og einasta sinn, þar til nú á síðustu áratugum, vitandi vits verið að bola flokki manna frá því að njóta jafnréttis við aðra þegna í landinu. Þeir sem í ár draga merki misréttisins við hún, vitna mjög til „sögulegra röksemda“, þótt af takmarkaðri þekkingu eða heilindum sé. Þarna hafa þeir þó ótvírætt fordæmi úr þingsögunni, og mega þeir þakka mér fyrir að benda þeim á það. Tóninn gagnvart þurrabúðarmönnum má víða sjá í umræðunum, t. d. þegar síra Eiríkur Kúld, þingmaður Snæfellinga, set- ur þrjú upphrópunarmerki á eftir orðun- um: „Eg veit nú ekki, hversu tómthúsmenn hér við Reykjavík eru að sér eða hve upp- byggilegir landi og lýð!!!“ Síðan bætir hann við: „Tómthúsmennirnir rangla hingað of- an úr sveitum, annaðhvort af því þeir loða ekki í vist eða tolla þar ekki, eða þykja ei nýtir til að verða bændur, og eru oftast nær ekki mjög svo uppbyggilegir11. (Alþt. 1855, bls. 181). — í Reykjavíkurpóstinum er í febrúar 1847 birt „samtal á Hellisheiði“ milli Reykjavíkurpósts og lausamanns. Þar segir: Reykjavíkurpóstur: „ . . . Mun það þá vel hugsað, að þröngva kosti bóndans, þess manns, er svo mörg skyldukvöð liggur á herðum, til þess að fá uppklak- ið nokkrum sjálfræðisfullum smá-herr- um, er engum eru til lofs né dýrðar, nema sjálfum sér; engin borgaraleg lög kannast við, nema sér til verndar, og eru því utan við borgaralegt félag, nema að því leyti sem þeir féfletta það og skaða“. Lausamaður: „Þú mátt ærast sem þú vilt, það fær lítið á mig og þarna mun það við verða; ég vona bráðum, að hver megi verða laus sem vill, því svo kvað það vera erlendis. Ég hef það traust til hans Jóns Sigurðssonar, að hann stvngi - upp á því á alþingi að sumri, og taki

x

Nýtt Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.