Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Side 50

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Side 50
Erlend samskipti Þorsteinn Brynjar Björnsson stjórnmálafrœðingur: Hagsmunagæsla íslenskra sveitarfélaga í Evrópusamvinnu Niðurstöður samneíndrar skýrslu sem unnin var fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga Á undanförnum mánuðum hefur vaknað upp töluverð urnræða um stöðu íslenskra sveitarfélaga í Evrópusamvinnu, sem sennilega náði hámarki eftir að hópur sveitarstjórnarmanna og fulltrúa félagsmálaráðuneytisins heimsótti stofnanir Evr- ópusambandsins í Brussel sl. vor. í kjölfar þeirrar heimsóknar lét Samband íslenskra sveitarfélaga gera úttekt á málefninu. Hér verður gerð stutt grein fyrir umfjöllunarefni skýrslunnar, niðurstöðum hennar og helstu ábendingum höfundar. Eftir að samningurinn urn Evrópska efnahags- svæðið (EES) öðlaðist gildi árið 1994 er óhætt að segja að íslenskt löggjafarumhverfi mótist að rnjög rniklu leyti innan stofnana Evrópusambandsins, með takmarkaðri aðkomu íslenskra stjórnvalda. Með undirritun samningsins skuldbundu lands- menn sig til að fella í lög stóran hluta þágildandi gerða sambandsins, auk fjölda reglugerða og til- skipana sem settar skyldu á ýmsum sviðum í fram- tíðinni. Umrædd löggjöf hefur allar götur síðan haft mikil áhrif á íslenska samfélagsþætti og er þar sveitarfélagastigið engin undantekning. Gott dæmi um það er tilskipun um fráveitumál og hreinsun skólps en rætt er um að hún muni kosta sveitar- Þorsteinn Brynjar Björns- son er stjómmálafrœðingur að mennt og stundar nú nám í Evrópufrœðum við Eberhardt-Karls háskólann í Tiibingen í Suður- Þýskalandi. Hann hefur skrifað ýmsar greinar um Evrópumál i blöð og tímarit og stundað ráðgjöf í þeim málaflokki. félögin um 20 milljarða króna þegar upp verður staðið. Þótt áhrifin af þessu rnikla átaki hafi að langmestu leyti verið jákvæð verður ekki fram hjá því litið að umrædd tilskipun er ekki sett fram með íslenskar aðstæður í huga. Líkt og margar gerðir Evrópusambandsins tekur hún fyrst og fremst mið af þéttbýlinu á meginlandi álfunnar, enda höfum við valið þann kost að taka ekki fúllan þátt i ákvarðanatöku um löggjafarmótun innan sam- bandsins. Löggjafarsetning á EES-svæðinu Sambandi íslenskra sveitarfélaga er ætlað að gæta hagsmuna sveitarstjórnarstigins hér á landi, ekki síst gagnvart stjórnvöldum, en nú standa rnenn frammi fyrir þeirri staðreynd að þessir hagsmunir mótast að miklu leyti innan stofnana Evrópusambandsins í Brussel. í ljósi þeirrar stað- reyndar er eðlilegt að menn spyrji sig hvernig fylgjast megi betur með hagsmunamálum sveitar- félaganna í Evrópusamvinnu og öðlast betri aðgang að mikilvægum upplýsingum. Áður en við leitum svara við slíkum spurningum verðum við að gera okkur grein fyrir stöðunni eins og hún er nú. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er eina stofnunin sem rétt hefur til að leggja fram nýjar tillögur til lagasetningar á Evrópska efnahags- svæðinu. Þegar undirbúningur að slíkum tillögum er hafinn nýtur hún aðstoðar fjölda sérfræðinga- nefnda en í þeim hafa seturétt fulltrúar frá öllum ríkjum Evrópusambandsins, auk Islands, Noregs og Liechtenstein. Fulltrúar fastanefndar EFTA (Frí- verslunarsamtaka Evrópu) skiptast jafnframt reglu- lega á skoðunum við starfsmenn framkvæmda- stjórnarinnar og koma þar sjónarmiðum ríkis- stjórna sinna á framfæri. Þegar framkvæmda- stjórnin hefur lokið við tillögugerðina eru þær
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.