Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Page 105

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Page 105
Ymislegt 519 sinn, að gera það í góðri samvinnu við starfsfólkið. Eðlilega hafa starfsmenn einhverjar efasemdir í upphafi um hvernig svona mat á sér stað, hvort það sé nægilega hlutlaust og síðast en ekki síst, hvort yfirmennirnir séu hæfir til að framkvæma slík möt. Því er nauðsynlegt að kynna vel fyrir starfs- fólkinu hvað frammistöðumat er og hvernig það fer fram. Mikilvægt er að hafa eftirfarandi í huga: Aður en frammistöðumat getur átt sér stað þarf að upplýsa starfsfólk um markmiðið með eigin starfi og hvað stofnunin telji „eðlilegan“ árangur í viðkomandi starfi. Þetta krefst að yfirmenn hafi nákvæma þekkingu á innihaldi starfs, þannig að hægt sé að setja fram raunhæfar kröfur um árangur og að frammistöðumat sé framkvæmanlegt. Frammistöðumatið ber að byggja þannig upp að hægt sé að bera saman mat á mismunandi einstakl- ingum. Frammistöðumatið er mat á mörgum ólíkum þáttum. Allir starfsmenn hafa sínar sterku og veiku hliðar, sem geta haft mismunandi mikilvægi eftir því um hvaða starf er að ræða. Við að fá fram mat á sem flestum þáttum er hægt að athuga þá þætti sem skipta máli hverju sinni. Gæta þarf vel að því að frammistöðumatið verði ekki of þungt í vöfum eða svo fræðilega uppbyggt að það verði aldrei notað. Grundvallaratriði er að bæði þeir sem fram- kvæma matið og þeir sem metnir eru treysti kerf- inu og séu tilbúnir að fallast á niðurstöður þess. Framkvæmd frammistöðumatsins Hverjir framkvæma frammistöðumatið? Engin algild regla er til um hverjir framkvæma frammistöðumat en nokkrir möguleikar eru fyrir hendi. Algengast er að yfirmenn meti undirmenn sína en einnig er þekkt að undirmenn meti yfir- menn sína, jafningjar (peers) meti hver annan eða sambland þessa alls. Þá er einnig þekkt að starfs- maðurinn meti sjálfan sig. Á síðustu misserum hefúr færst í vöxt svokölluð 360° endurgjöf. í því felst, að auk þess að vera með hlutlægar mælingar á starfsmanninum þá gefi allir þeir aðilar, sem við- komandi starfsmaður hefúr samskipti við, sitt álit á honum. Þessir aðilar eru t.d. yfirmenn, sam- starfsfólk, undirmenn og viðskiptavinir. Algengast er að yfirmenn meti undirmenn sína enda byggt á þeirri hugmynd að yfirmenn séu hæf- astir til að meta undirmenn sína raunhæft, huglægt og réttlátt. Hitt er svo annað mál hvort svo sé ætíð. í stærri fyrirtækjum og stofnunum þar sem sérstakur aðili gegnir starfi starfsmannastjóra er þó algengt að þeir sjái um matið og einnig er algengt að utan- aðkomandi ráðgjafar séu kvaddir til að sjá um það. Starfsmannasamtöl Hvers vegna starfsmannasamtöl? Eins og áður hefúr verið minnst á eru starfs- mannasamtöl órjúfanlegur hluti frammistöðumats en starfsmannasamtöl geta þó staðið ein og sér, þ.e. hægt er að bjóða upp á starfsmannasamtöl án þess að um formlegt frammistöðumat sé að ræða. Gæta verður þess að starfsfólkið fái það ekki á tilfinn- inguna að starfsmannasamtalið sé einhvers konar yfirheyrsla yfir því. Meginástæðurnar fyrir starfs- mannasamtölum eru: • Að starfsmaðurinn hafi betri skilning á því til hvers er ætlast af honum í starfi, • að starfsmaðurinn verði metinn að verðleikum, • að starfsmaðurinn njóti leiðsagnar til betri/meiri árangurs, • að starfsmaðurinn verði upplýstur um þróun starfs- ins og möguleikum á stöðubreytingum og frama, • að starfsmaðurinn geti þroskað hæfileika sína og aukið starfsánægju, • að starfsmaðurinn verði betur búinn undir fram- tíðarverkefni. Meginmarkmið starfsmannasamtals: Meginmarkmiðin með starfsmannasamtali eru að: • Veita upplýsingar, • fá tillögur frá starfsmanni um úrbætur, • styrkja góða frammistöðu starfsmanna, • breyta rangri hegðun starfsmanna, • hvetja starfsmann, • setja markmið og aðgerðaáætlun, • komast að sameiginlegri niðurstöðu. Kostir starfsmannasamtala: Ýmsir áþreifanlegir kostir eru við starfsmannasam- töl. Þeir helstu eru að: • Þau eru stjórntæki til starfsþróunar, • þau veita yfirmönnum yfirsýn yfir mannauð fyrirtækisins/stofnunarinnar, • þau eru gagnleg tæki til að samræma aðgerðir í starfsmannastj órnun, • þau leiða til aukins upplýsingaflæðis, • þau stuðla að bættum samskiptum yfir- og undir- manna, • þau eru góð tækifæri til að ræða liðsheildina,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.